Fréttatíminn - 20.01.2017, Blaðsíða 56
alla föstudaga
Fjölskyldustund í Kópavogi
Laugardaginn 21. janúar hefjast Dagar ljóðsins í Kópavogi, en klukkan 13
lifna ýmsar kynlegar verur við á tónleikum í Salnum sem ætlaðir eru öllum
aldurshópum.
Ivanka Trump hefur lag á að róa föður sinn
Dóttir Donalds Trump verður hans helsti ráðgjafi bak við tjöldin.
Ivanka Trump, dóttir Donalds
Trump, sem tekur við embætti for-
seta Bandaríkjanna í dag, verður
hans helst ráðgjafi í Hvíta húsinu.
Lögum samkvæmt má hin 35 ára
gamla Ivanka reyndar ekki opin-
berlega gegna stöðu ráðgjafa eða
hafa skrifstofu í Hvíta húsinu vegna
skyldleika við föður sinn. En hún
mun engu að síður veita honum
ráðgjöf í ýmsum málum, líkt og hún
hefur gert hingað til, en Donald spyr
dóttur sína ráða um nánast hvað
sem er.
Eiginmaður Ivönku, Jared Kus-
hner, mun hins vegar opinberlega
fá að gegna starfi ráðgjafa þó líklegt
þyki að konan hans muni hafa meiri
áhrif á gjörðir forsetans.
Ivanka þykir tiltölulega skynsöm
og hefur sérstakt lag á því að róa
föður sinn niður, en slíkir hæfileikar
munu líklega koma sér vel á næstu
fjórum árum. Hún leyfir honum yfir-
leitt að rasa út og segja sínar
skoðanir og þegir á meðan.
Þegar hann hefur lokið
máli sínu útskýrir hún sín
sjónarmið og færir rök
fyrir máli sínu. Þannig
nær hún oft að koma
í veg fyrir að hann
geri meiri vitleysu
en ella.
Í ljósi þess að Melania
Trump, eiginkona Dona-
lds, ætlar sér að halda heim-
ili í New York á meðan yngsti
sonur þeirra klárar nám, þá
mun það einnig koma í hlut
Ivönku að sinna einhverjum
skyldum sem forsetafrúin
myndi annars sinna. Það
er því óhætt að segja að
Ivanka hafi öðlast ansi
mikil völd nú þegar faðir
hennar er orðinn forseti.
Ivanka kann að láta pabba gamla
hlusta á það sem hún hefur að
segja og hann hlustar.
Sonur Sjonna Brink
í Eurovision
Lögin sem keppa í undan
keppni Eurovision verða kynnt í
sérstökum þætti í Sjónvarpinu í
kvöld. Ragnhildur Steinunn Jóns
dóttir stjórnar þættinum en þar
verða flytjendur kynntir og brot
úr lögunum spiluð. Mikil leynd
hefur hvílt yfir þeim sem komust í
gegnum síu dómnefndar en sam
kvæmt heimildum Fréttatímans á
Svala Björgvinsdóttir eitt laganna
og flytur hún það sjálf. Þá mun
leiklistarneminn Júlí Heiðar Hall
dórsson sömuleiðis spreyta sig í
keppninni en hann gerði garðinn
frægan með laginu Blautt dans
gólf fyrir nokkrum
árum. Mikil athygli
mun svo vera á lagi
Þórunnar Ernu Clau
sen. Flytjandi lagsins
er stjúpsonur hennar,
Aron Brink, sonur
Sjonna Brink sem
féll frá fyrir aldur
fram fyrir nokkrum
árum.
Flóttinn úr Efstaleiti
Fréttastofu RÚV
hefur gengið erf
iðlega að undan
förnu að halda í
þá sem sinna er
lendum fréttum. Á
síðasta ári réðu þrír
fréttamenn sig sem
upplýsingafulltrúar
og alger endurnýj
un hefur því orðið
í deildinni. Rún
Ingvarsdóttir reið á
vaðið í byrjun ársins
og réð sig til starfa í markaðs og
samskiptadeild Landsbankans.
Um mitt ár var komið að Guðjóni
Helgasyni sem tók að sér starf
samskiptastjóra Öryrkjabanda
lags Íslands. Og nú á dögunum
kvaddi Sveinn H. Guðmarsson
kollega sína í Efstaleitinu og færði
sig yfir til Landhelgisgæslunn
ar þar sem hann er nú titlaður
upplýsingafulltrúi. Fjórði RÚV
arinn, sem skipti um starfs
vettvang nýlega, er svo Kjartan
Guðmundsson, sem getið hafði
sér gott orð fyrir útvarpsþættina
Bergmál á Rás 1. Kjartan hefur
tekið við starfi upplýsingafulltrúa
Tryggingastofnunar.
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT
1964
TEKK COMPANY OG HABITAT | SKÓGARLIND 2, KÓPAVOGI
SÍMI 564 4400 | OPIÐ MÁN - LAU KL. 10-18 OG SUN KL. 13-17
VEFVERSLUN Á WWW.TEKK.IS
Stell og glös
20-40%
afsláttur
Mottur
20%
afsláttur
Jólavara
50%
afsláttur
ÚTSALAN ER HAFIN
ALLT AÐ 60%
AFSLÁTTUR
Húsgögn
20-60%
afsláttur
Ljós
20-50%
afsláttur
Sófi N101
40% afsláttur
3ja 220.000.- nú 132.000.-
2ja 166.000.- nú 99.600.-
Stóll 115.000.- nú 69.000.-
3litir – Grár, olivu grænn
og ljós
25-50%
afsláttur
af öllu frá
Ethnicraft