Fréttatíminn - 21.01.2017, Qupperneq 2
Helgi Guðbergsson
segir að einungis
hafi verið greitt fyr-
ir liðskiptiaðgerðir
en fleiri aðgerðir
komi til álita.
Sjúklingar á biðlistum geta
átt rétt á aðgerð erlendis
Heilbrigðismál Sjúkratrygggingar
Íslands eru að kanna hvort hægt
sé að semja við erlend sjúkrahús
um að gera liðskiptiaðgerðir á
Íslendingum sem eiga rétt á slíku
vegna biðtímareglugerðar EES, ef
það kemur holskefla af umsókn-
um um slíkar aðgerðir. Þannig
væri hægt að fá hagstæðara verð.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Nokkrir Íslendingar hafa nýtt sér
nýlega heimild í lögum til að gang
ast undir læknisaðgerðir erlend
is, ef biðtími hér fer yfir ákveðin
mörk. Sjúklingar fá þá endurgreitt
frá Sjúkratryggingum.
Alls greiddi stofnunin 14 milljón
ir í fyrra vegna 7 slíkra aðgerða, en
þær voru allar vegna liðskipta en
biðtíminn eftir þeim verulegur og
sjúklingar oft óvinnufærir.
Allir geta leitað upplýsinga hjá
alþjóðadeild Sjúkratrygginga um
hvort þeir eiga rétt á slíku, ef þeir
hafa beðið lengi eftir nauðsynlegri
aðgerð en fjölmörg skilyrði þurfa að
vera til staðar.
Helg i Guðbergsson, y f ir
tryggingalæknir hjá Sjúkratrygging
um, segir ljóst að fleiri aðgerðir en
liðskipti geti komið til álita. Lengstu
biðlistarnir séu í dag eftir aðgerðum
á augasteini, þar hafi sumir þurft að
bíða í allt að tvö ár, en þær aðgerð
ir eru gerðar á LSH og einkastof
um. Þá er dæmi um að sjúklingur
hafi sótt um niðurgreiðslu vegna
kæfisvefnsrannsókna.
Sjúkratryggingarnar greiddu
ennfremur 3 milljónir vegna 27
einstaklinga undir landamæra
tilskipuninni, 170 milljónir vegna
endurgreidds sjúkrakostnaðar utan
EES, 170 milljónir vegna notkunar
íslenskra EES sjúkrakorta í Evrópu
og 1,9 milljarða vegna brýnnar með
ferðar erlendis.
En þar með er ekki öll sagan
sögð. EES og Sviss koma til með að
greiða íslenskum yfirvöldum tæpar
500 milljónir vegna notkunar er
lendra EES sjúkrakorta á Íslandi á
árinu 2016. Þessi upphæð fer stig
vaxandi í takt við aukinn fjölda er
lendra ferðamanna á Íslandi.
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 21. janúar 2017
FER
Ð
A
FÉLA
G
ÍSLA
N
D
S
Ferðafélag Íslands
Ferðaáæ
tlun 201
7
www.fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðaáætlun
FÍ er komin út
Ferðafélag Íslands var stofnað 1927 og verður 90 ára gamalt 2017. Framundan er því afmælisár með tilheyrandi afmælisferðum og
afmælisfagnaði. Fyrsta ganga ársins verður Borgarganga sunnudaginn 15. janúar kl. 10.30 frá Perlunni. Þá mun Pétur H. Ármannsson
arkitekt leiða för um Öskjuhlíð og Nauthólsvík og rifjar hann upp merkilega sögu svæðisins. Þátttaka ókeypis, allir velkomnir.
Heilbrigðismál Dómstóll í Toulon
í Frakklandi hefur dæmt þýska
vottunarfyrirtækið TÜV til að
greiða tuttugu þúsund konum,
þar af 204 íslenskum, sextíu millj-
ónir evra í sekt vegna gallaðra silí-
konpúða sem komið hafði verið
fyrir í brjóstum þeirra. Upphæðin
nemur hátt í sjö og hálfum millj-
arði íslenskra króna.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Það vakti heims at hygli þegar upp
komst að Poly Implant Prot hè
se notaði iðnaðarsi lí kon í brjósta
púðana sem það fram leiddi en púð
ar frá fyr ir tæk inu voru grædd ir í
440 ís lensk ar kon ur.
TÜV Rhein land, sá um eft ir lit
með fram leiðslunni í Frakklandi.
Púðarnir, svonefndir PIP púðar,
reyndust vera fylltir með iðnaðarsi
líkoni. Efnið lak úr púðunum og olli
konunum margvíslegum óþægind
um og heilsustjóni. Saga Ýrr Jóns
dóttir, lögmaður kvennanna, var að
fara yfir niðurstöðuna þegar Frétta
tíminn náði tali af henni. Í hlut
kvennanna kemur á fjórða hundrað
þúsund íslenskra króna fyrir hverja
konu núna en til viðbótar á að meta
afleiðingar hjá hverri og einni konu
og leitast við að bæta miskann. Saga
segir að hafa verði í huga að þetta sé
einungis fyrsta dómstig af þremur í
Frakklandi. Niðurstöðunni verði að
öllum líkindum áfrýjað.
Sigur kvennanna í
brjóstapúðamálinu
204 íslenskar konur fá skaðabætur vegna gallaðra brjóstapúða.
Slys Kona á sjötugsaldri slasaðist
illa á heimili sínu í vikunni, en í
fyrstu var talið að um sakamál
væri að ræða.
Kona á sjötugsaldri er þungt
haldin á gjörgæslu Landspítalans
eftir að hafa dottið illa á heimili
sínu í miðborg Reykjavíkur í kring
um miðnætti síðastliðinn miðviku
dag. Nágranni konunnar virðist
hafa orðið var við óhljóð á heim
ili konunnar og athugað með líðan
hennar í kjölfarið.
Aðkoman var slík að í fyrstu
var ekki útiloka að um sakamál
gæti verið að ræða. Konan var ein
á heimilinu þegar slysið varð og
var með áverka víðs vegar um lík
amann og meðvitundarlítil.
„Við rannsókn málsins kom fljót
lega í ljós að um slys væri að ræða,“
sagði Jóhann Karl Þórisson, að
stoðaryfirlögregluþjónn hjá lög
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Konan var á gjörgæsludeild í gær
en ekki er vitað um líðan hennar í
dag. Eins og fram kom þá var hún
meðvitundarlítil þegar hún fannst.
| vg
Fannst alvarlega
slösuð á heimili sínu
Flotkvíin í Óseyrarhöfn í Hafnarfirði.
Bifreiðinni var lagt þar í 40 mínútur á
laugardagsmorguninn. Mynd | Hari
Símagögnin hafa
mesta þýðingu
Sakamál Lögreglan hefur enga vit-
neskju um hvar rauði Kia Rio bíla-
leigubíllinn, sem er þungamiðjan í
rannsókn lögreglunnar, var milli 7
og 11 á laugardagsmorgun. Bílstjór-
inn var í 40 mínútur við flotkvína
í Hafnarfirði áður en hann ók
bílnum út af svæðinu.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Leit er að fullu lokið um borð í græn
lenska togaranum Polar Nanoq sem
er við landfestar í Hafnarfjarðarhöfn
en áhöfnin fékk að snúa þangað aft
ur í gær. Búist er við að haldið verði
til veiða á mánudag.
Tveir skipverjar, sem hafa verið
úrskurðaðir í tveggja vikna gæslu
varðhald, neita aðild að málinu og
lögreglan hefur engar upplýsingar
sem varpað gætu ljósi á hvar Birnu
Brjánsdóttur er að finna. Unnið er
út frá þeirri kenningu að henni hafi
verið ráðinn bani en hún hefur verið
týnd í sex sólarhringa.
Mennirnir eru báðir á þrítugs
aldri. Lífsýni úr bíl sem þeir höfðu
á leigu nóttina sem Birna hvarf hafa
verið send til Svíþjóðar til rannsókn
ar. Lögreglan hefur vitneskju um
að Birna og mennirnir hafi verið á
svipuðum slóðum í borginni á sama
tíma en ekki er hægt að slá því föstu
enn sem komið er að hún hafi farið
inn í bílinn þótt rökstuddur grun
ur sé um það. Grímur Grímsson vill
ekki svara því hvort búið sé að rekja
saman farsíma Birnu og mannanna
tveggja. Hann segir þó að farsíma
gögnin séu grundvallargögn í mál
inu og hafi verið þýðingarmest við
rannsóknina.
Öflugt eftirlitskerfi er á hafnar
svæðinu í Hafnarfirði þar sem Polar
Nanoq lá við festar. Fram hefur kom
ið að mennirnir koma akandi á rauð
um Kia Rio um klukkan 06.10 um
morguninn. Þá fór annar maðurinn
upp í skipið en athygli vekur að hinn
ekur út að bryggjusporðinum þar
sem flotkvíin er, fer út úr bílnum og
gengur í kringum hann. Hann sest
svo aftur inn í bílinn þar sem hann
situr svo í um 40 mínútur aðgerðar
laus. Ekki sést hvað hann gerir inni
í bílnum, en að lokum ekur hann út
af svæðinu um sjö leytið, og sést ekki
aftur fyrr en nokkrum klukkustund
um síðar.
Aldrei sést Birna Brjánsdóttir, né
hafa náðst upptökur af því hvernig
skór hennar enduðu á bryggjunni,
nærri bensínstöð Atlantsolíu. Af
þessum ástæðum hefur lögreglan
lagt mikla áherslu á að leita í kring
um flotkvína en ekkert hefur fund
ist á svæðinu enn sem komið er sem
getur útskýrt afdrif Birnu.
Nýjustu gögn benda til þess að
bíllinn hafi ekki verið inni á hafnar
svæðinu á tímabilinu 7 til 11.30 eða
í tæpa fjóra tíma en lögreglan hefur
enga vitneskju um hvar hann var á
þeim tíma.
Móðir Birnu Brjánsdóttur, Sigur
laug Hreinsdóttir biðlaði, síðdegis í
gær, enn og aftur til þeirra sem vissu
um afdrif Birnu eða kynnu að hafa
gert henni mein að gefa sig fram.
Mennirnir voru fluttir á Litla
Hraun síðdegis í gær, föstudag, en
þeir höfðu verið í haldi á lögreglu
stöðinni við Hverfisgötu. Grímur
Grímsson, stjórnandi rannsóknar
innar, segir ýmislegt nýtt hafi komið
fram við yfirheyrslur yfir mönnun
um en ekkert sem hægt sé að tjá
sig um á þessu stigi. Þá er skipverji
í haldi lögreglu vegna 20 kílóa af
hassi sem fundust um borð í skipinu.
Skipverjar á Polar Nanoq við störf um borð í fyrra.
Móðir Birnu biðlar til þeirra sem
kunna að vita um afdrif dóttur hennar.
Mynd | Hari