Fréttatíminn - 21.01.2017, Síða 39
Ferðafélag Íslands býður upp á fjölmörg námsskeið í vetur og fram á vor
er tengjast ferðamennsku og öryggismálum. Fyrsta námskeið vetrarins
er snjóflóðanámskeið þar sem farið er yfir öll lykilatriði varðandi vetrar-
fjallamennsku í brattlendi. Meðal annars leiðaval, mat á snjóalögum og
aðstæðum sem hafa áhrif á snjóflóðahættu svo sem veðurfar til fjalla,
vindátt, hitastig, nýfallinn snjó og fleira. Jafnframt verður farið yfir
nauðsynlegan öryggisbúnað fyrir ferðamenn þegar ferðast er um svæði
þar sem hætta er á snjóflóðum. Umsjón með námskeiðinu hefur Auður
Kjartansdóttir, sérfræðingur á ofanflóðasviði Veðurstofu Íslands.
Skráning á námskeiðið er á skrifsofu FÍ, s. 568 2533.
Unnið í samstarfi við FÍ
Fjallaskíðaferðir Ferðafé-lags Íslands njóta mikilla vinsælda Ferðafélag Íslands hef-
ur á síðustu árum aukið fram-
boð á fjallaskíðaferðum til muna.
Fjallaskíðamennska er í senn frá-
bær útivist og um leið krefjandi
íþrótt og nýtur vaxandi vinsælda
hér á landi. Þegar ferðast er um á
fjallaskíðum þá er notast við sér-
stakan fjallaskíðabúnað. Skíðin
er sérstaklega hönnuð til að skíða
utan brautar, hægt er að losa hæl-
inn í bindingum þegar gengið er
upp fjöllin og sérstök skinn eru
notuð undir skíðin þegar gengið
er upp, til að ná festu í snjónum.
Við krefjandi aðstæður, einkum í
harðfenni, eru sérstakir broddar
settir undir skíðin.
Tómas Guðbjartsson skurð-
læknir og Helgi Jóhannesson
lögmaður hafa leitt fjallaskíða-
verkefni FÍ og eru fararstjórar í
ferðunum og hafa sér til aðstoð-
ar reynda fararstjóra. „Þetta er
ofsalega gaman. Ég er meðal
annars að sækjast eftir áreynsl-
unni, þetta er mjög krefjandi og
mikil brennsla og heldur manni
í góðu formi og svo er þetta frá-
bært að komast út í náttúruna
og alla þessa fegurð sem er að
finna í náttúrunni hér á landi.
Maður endurnærist algjörlega
bæði á sál og líkama,‘‘ segir
Helgi. Í vetur og fram vor má
finna nokkrar fjallaskíðaferðir í
ferðaáætlun FÍ. Fjallaskíðaver-
tíðin hefst í febrúar með göngu
á Botnssúlur en einnig verður
gengið á Eyjafjallajökul, Öræfa-
jökul og Sveinstind og þá verður
fjallaskíðaveisla á Siglufirði í maí.
„Ég hef verið í þessu mjög lengi
og þetta er eitt það skemmtileg-
asta sem ég geri. Ég hef skíðað
niður mörg af helstu fjöllum
landsins og farið ógleymanlegar
ferðir, m.a. á Herðubreið og flesta
jökla landsins og þá hafa Kverk-
fjöll alltaf verið í miklu uppáhaldi
hjá mér. Í krefjandi starfi finnst
mér mjög mikilvægt að geta
breytt um umhverfi og það er
hvergi betra að hlaða batteríin en
á fjöllum,“ segir Tómas.
Dagskrá fjallaskíðaferða FÍ
má finna á heimasíðu félagsins
www.fi.is.
Ferðafélagar á leið á Birnudalstind. Einmuna veðurblíða var á fjöllum þennan dag og útsýnið einstakt. Þá var skíðafærið gott og allir nutu dagsins.
Það er mikil stemning og gleði í fjallaskíðaferðum Ferðafélags Íslands sem Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson leiða og gengið er á marga fallega og krefjandi fjallatinda. Þessi glaði hópur fagnar því með viðeigandi hætti að hafa gengið á
Birnudalstind sl. vor.
Einstök nálægð
við náttúruöflin
Ævintýri með Ferðafélagi Íslands.
Helgi Jóhannesson, fararstjóri í fjallaskíðaferðum FÍ,
rýnir í kort á leið til fjalla.
Fjallaskíðamennska nýtur vaxandi vinsælda á Íslandi. Það er einstök tilfinning að sigra
fjallatoppa með því að „skinna“ á toppinn og um leið komast skíðamenn í mikla nálægð við
náttúruöflin. Tilfinningin að standa á hæsta tindi eftir krefjandi göngu er einstök. Og þá áttu
það skemmtilegasta eftir; að renna þér niður.
Lagt af stað í fjallaskíðaferð FÍ á Snæfellsjökul. Tómas Guðbjartsson, sem er fararstjóri í
fjallaskíðaferðum FÍ ásamt Helga Jóhannessyni, leiðir hópinn sem fékk einstakan dag á
jöklinum.
Snjóflóðanámskeið hjá FÍ 15. febrúar nk.
7 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 VETRARFJÖR