Morgunblaðið - 01.12.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2016
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 800 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
◆ KASSAR
◆ ÖSKJUR
◆ ARKIR
◆ POKAR
◆ FILMUR
◆ VETLINGAR
◆ HANSKAR
◆ SKÓR
◆ STÍGVÉL
◆ HNÍFAR
◆ BRÝNI
◆ BAKKAR
◆ EINNOTA VÖRUR
◆ HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Leitar þú að traustu
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Lífslíkur bílsins margfaldast
ef hugað er reglulega
að smurningu.ENGAR
tímapantanir
MÓTORSTILLING
fylgir fyrirmælum
bílaframleiðanda um
skipti á olíum og síum.
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Lögreglumaðurinn fyrrverandi, Jens
Gunnarsson, sem ákærður hefur ver-
ið af embætti ríkissaksóknara fyrir
meinta spillingu í starfi, var eftir að
hann lét af störfum hjá lögreglunni
ráðinn til fyrirtækisins Öryggismið-
stöðvarinnar. Þar lét hann aftur á
móti af störfum þegar ákæran var
gefin út. Stærsti eigandi Öryggismið-
stöðvarinnar stýrði félaginu Kjalari
sem átti um 10% hlut í Kaupþingi og
er hann einn helsti viðskiptafélagi
Ólafs Ólafssonar fjárfestis.
Annar maður sem einnig er
ákærður fyrir spillingu í málinu,
Gottskálk Þorsteinn Ágústsson,
vinnur sem framkvæmdastjóri hjá
Öryggismiðstöðinni, en samkvæmt
upplýsingum frá fyrirtækinu mun
hann áfram starfa sem fram-
kvæmdastjóri öryggissviðs meðan
málið er í gangi fyrir dómstólum.
Ómar Örn Jónsson, framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Öryggismið-
stöðvarinnar, segir í samtali við
mbl.is að málið tengist ekki rekstri
félagsins, en það sé hvorki þægilegt
né skemmtilegt fyrir það. Segir hann
málið nú fara hefðbundna leið í dóms-
kerfinu og að ekki hafi verið tekin
nein ákvörðun um að víkja Gottskálk
frá störfum eða senda hann í leyfi
meðan málið er í gangi. Málið sé þó í
skoðun.
Ráðinn til starfa eftir
að málið kom upp
Öryggismiðstöðin er sem fyrr seg-
ir öryggisfyrirtæki sem starfar sem
slíkt með starfsleyfi frá ríkislög-
reglustjóra. Er framkvæmdastjórinn
því í raun ákærður fyrir spillingu í
tengslum við embættismann hjá und-
irstofnun þess sem veitir félaginu
rekstrarleyfi sitt, en Jens starfaði hjá
fíkniefnadeild lögreglustjórans á höf-
uðborgarsvæðinu.
Fyrirtækið sinnir alhliða öryggis-
þjónustu, en í því felst gæsla fyrir
fyrirtæki og einstaklinga, rekstur á
stjórnstöð, brunavarnir, myndavéla-
eftirlit og fleira. Að sögn Ómars er
hlutdeild Öryggismiðstöðvarinnar á
markaði um 40% á móti Securitas
sem er hitt stóra öryggisfyrirtækið,
en auk þess eru nokkrir minni aðilar
einnig á markaðinum.
Trúnaðarskýrsla um Kaupþing
Eftir að málið kom upp á sínum
tíma var Jens ráðinn til starfa hjá Ör-
yggismiðstöðinni. Ómar segir að
menn hafi vitað um málið, en um
tímabundin sérverkefni hafi verið að
ræða sem hafi meðal annars falist í
námskeiðahaldi. Segir hann að skiln-
ingur hafi verið á því þegar Jens var
ráðinn að ef ákært yrði í málinu
myndi hann láta af störfum sem hann
hefur nú gert.
Í ákæru málsins kemur fram að
Gottskálk hafi verið í samskiptum við
Jens og lofað honum 500 þúsund
króna greiðslu og tveimur flugmiðum
fyrir skýrslu PriceWaterHouse-
Coopers um Kaupþing banka sem
bar yfirskriftina „Slitastjórn Kaup-
þings banka hf. „Project Staying
Alive“ September 2010. Strictly
confidential.“
Eigendur Öryggismiðstöðvarinn-
ar eru helstu stjórnendur félagsins
með 40% og félagið Unaós ehf. með
60%. Unaós er í eigu Hjörleifs Jak-
obssonar, eins helsta viðskiptafélaga
fjárfestisins Ólafs Ólafssonar. Er
Unaós einnig skráð á heimilisfang
skrifstofu Samskipa, sem Ólafur er
aðaleigandi að.
Eigandinn stýrði stærsta
lántaka Kaupþings
Ólafur var næststærsti hluthafi
Kaupþings í gegnum fjárfestinga-
félagið Kjalar sem hann á 90% hlut í.
Þá var Kjalar stærsti lántaki bank-
ans frá miðju ári 2006 og voru lán fé-
lagsins við fall bankans um 18% af
eiginfjárgrunni bankans. Hjörleifur
var forstjóri Kjalars og situr nú í
stjórn Samskipa.
Ólafur hefur m.a. verið sakfelldur
fyrir þátt sinn í Al Thani-málinu svo-
kallaða og þá fengu félög hans, Par-
tridge Management Group og Har-
low Equities, lán til að eiga í
viðskiptum með skuldatryggingaraf-
leiður Kaupþings sem ákært var fyr-
ir í Chesterfield-málinu. Ólafur var
þó ekki ákærður í þeim málum, held-
ur stjórnendur Kaupþings.
Þriðji maðurinn sem er ákærður í
málinu er Pétur Axel Pétursson, en
hann hefur áður hlotið dóma vegna
fíkniefnamála. Hann og Jens eru
ákærðir vegna meintra brota þegar
Jens upplýsti Pétur um stöðu mála
hans hjá lögreglunni og um hverjir
væru uppljóstrarar lögreglunnar.
Tók Jens við gjöfum vegna þessa,
samkvæmt ákærunni.
Aths. ritstj.
Ólafur Ólafsson sendi frá sér yf-
irlýsingu í gærkvöldi þar sem fram-
angreind frétt á mbl.is er sögð röng
hvað sig varðar, efni fréttarinnar
tengist sér ekki. Af því tilefni skal
tekið fram að blaðið og mbl.is standa
við fréttina að öllu leyti. Yfirlýsing
Ólafs er birt í heild sinni á mbl.is.
Hjá öryggisfyrirtæki
eftir spillingarmál
Greiðslum og flugmiða lofað fyrir skýrslu um Kaupþing
Jens
Gunnarsson
Gottskálk Þor-
steinn Ágústsson
Ólafur
Ólafsson
Hjörleifur
Jakobsson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ekkert lát virðist vera á vexti net-
verslunar. Viðskipti Íslendinga við
erlendar netverslanir fara vaxandi,
hvort sem litið er til verðmætis var-
anna eða fjölda sendinga. Samtímis
eru viðskipti við innlendar netversl-
anir að aukast. Rannsóknasetur
verslunarinnar (RSV) áætlaði að
velta íslenskrar netverslunar hefði
verið að lágmarki um fimm millj-
arðar króna í fyrra, án virðis-
aukaskatts. Það voru um 1,25% af
heildarveltu íslenskrar smásölu-
verslunar það ár. Áætlað var að
velta íslenskra netverslana hefði
aukist um 27% á árinu 2015 miðað
við árið á undan, samkvæmt Árbók
verslunarinnar 2016. Þá var áætlað
að hlutfall netverslunar annars stað-
ar á Norðurlöndum hefði verið um
6% sem var mun hærra hlutfall en
hér á landi.
Hagstofan upplýsti það í janúar
2015 að þriðjungur íslenskra fyr-
irtækja seldi vörur og þjónustu í
gegnum netið eða önnur vefkerfi.
Það var hæsta hlutfall slíkrar þjón-
ustu sem þá mældist á Evrópska
efnahagssvæðinu.
RSV benti á það í árbók sinni að
stór hluti hefðbundinna verslana
seldi einnig vörur á netinu, án þess
að sundurgreina þá veltu á uppgjöri
til virðisaukaskatts.
Sterkara gengi krónunnar
Emil B. Karlsson, forstöðumaður
RSV, segir alveg ljóst að viðskipti
við íslenskar netverslanir færist í
aukana en líklega sé enn meiri aukn-
ing í viðskiptum Íslendinga við er-
lendar netverslanir. Þar skipti miklu
styrking gengis krónunnar gagnvart
erlendum gjaldmiðlum.
„Netverslun er orðin hluti af
verslunarmynstrinu,“ sagði Emil.
Hann sagði erfitt að aðgreina mörk-
in á milli netverslunar og hefðbund-
inna innkaupa í búðum. „Menn fara
inn í búð, skoða vöruna og kaupa
hana í gegnum símann sinn og láta
senda hana heim. Aðrir kaupa vöru á
netinu og fara svo í verslun að sækja
hana. Mörkin eru að mást út. Marg-
ar verslanir selja bæði yfir búð-
arborð og á netinu en greina ekki á
milli verslunarmáta í sínu bókhaldi.
Það er því erfitt að átta sig á þessu.“
Emil sagði að breytingunni sem er
að verða á verslunarháttum með
netverslunum megi líkja við þá
miklu breytingu sem varð þegar við-
skiptavinirnir fóru að afgreiða sig
sjálfir í kjörbúðum. Netverslanir séu
sannkallaðar sjálfsagreiðslubúðir.
Hann sagði þróunina til alhliða
verslunarþjónustu vera öra. Til
marks um það sé að netverslunin
Amazon í Bandaríkjunum sé nú að
opna hefðbundnar verslanir, Ama-
zon Pop-Up, þar sem viðskiptavinir
geti handleikið vörurnar og notið að-
stoðar afgreiðslufólks.
„Niðurstaðan er sú að þetta er allt
að renna saman í eina heild,“ sagði
Emil.
Ekkert lát virð-
ist vera á vexti
netverslunar
Mörkin á milli hefðbundinna versl-
ana og netverslana eru að hverfa
Morgunblaðið/Eggert
Netverslun Vaxandi viðskipti, og
Pósturinn verður vel var við það.
Netverslun eykst
» Tölur frá kauptíðinni í kring-
um þakkargjörðarhátíðina í
Bandaríkjunum benda til þess
að færri hafi farið þar í hefð-
bundnar búðir en áður.
» Netverslun í kringum þakk-
argjörðarhátíðina nú jókst um
18% í Bandaríkjunum.
» Hillur pósthúsanna eru að
sligast undan pakkaflóði.
Aukninguna má rekja til stór-
aukinna innkaupa Íslendinga í
netverslunum.