Morgunblaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kjarasamn-ingur viðgrunn- skólakennara var undirritaður í fyrrakvöld. Samn- ingurinn er til eins árs og í frétt Morgunblaðsins um samninginn í gær kom fram að yrði hann samþykktur fengju kennarar 7,3% hækk- un og 3,5% hækkun 1. mars. Jafnframt er kveðið á um 204 þúsund króna eingreiðslu um áramót fyrir fullt starf. Það hefur ekki gengið þrautalaust að ná samningum við grunnskólakennara. Í tví- gang hafa þeir fellt kjara- samninga. Óánægja er greini- lega nokkur í stéttinni og ekki útséð um að þessi samningur verði samþykktur ef marka má viðbrögð. Hætt var við skæruaðgerð- ir, sem höfðu verið boðaðar. Nokkuð hefur verið um að kennarar hafi lagt inn upp- sagnir og í gær hafði ekki spurst að þeir væru farnir að draga þær til baka. Mikilvægi kennara verður seint ofmetið. Góð menntun er undirstaða atvinnulífsins og góður kennari getur skipt sköpum þegar vekja þarf áhuga á námsefninu. Kenn- arar eru líka áhrifavaldar og margir muna góða kennara alla sína ævi. Starfið getur verið erfitt, en það er vita- skuld einnig gef- andi. Það hlýtur að vera markmið stjórnvalda að kennarar búi við þannig kjör að starfið sé einnig eftir- sóknarvert vegna launanna. Um leið verða kennarar að gera sér grein fyrir því að markmið þeirra nást ekki í einu vetfangi. Nú stendur yfir kynning á hinum nýja samningi fyrir kennurum og sveitarstjórn- um. Því næst verður gengið til atkvæðagreiðslu og á nið- urstaða hennar að liggja fyrir 12. desember. Samningar við grunnskóla- kennara hafa tekið drjúgan tíma. Lítið hefur komið fram um inntak samninganna í fjöl- miðlum þannig að ekki er hægt að leggja mat á þá hér, en við fyrstu sýn virðast þeir ekki úr takti við samninga, sem gerðir hafa verið undan- farið. Þá eru þeir aðeins til árs og því nokkurs konar bið- leikur. Niðurstaðan við samn- ingaborðið hefur greinilega verið sú að ekki fyndist lausn til frambúðar og því þyrfti að semja til skemmri tíma. Verði þeir samþykktir hefur raski á skólastarfi verið afstýrt og um leið skapað svigrúm til að fara ofan í rótina á ágreiningi kennara og sveitarfélaga fyrir næstu umferð. Enn er samið við kennara, en ekki er útséð um samþykki} Þriðji samningurinn Í sérblaði Morg-unblaðsins um sjávarútveg, sem kom út í gær, var margt áhugavert lesefni. Eitt af því var viðtal við Ás- geir Jónsson hagfræðing sem ræddi kvótakerfið og benti á þau gríðarlega jákvæðu um- skipti sem urðu þegar það var tekið upp. Áður hafi verið mik- il offjárfesting í greininni ásamt ofveiði, auk þess sem greinin hafi verið mjög sveiflu- kennd og þurft á inngripum hins opinbera að halda. Eftir að kvótakerfi hafi ver- ið komið á, með frjálsu fram- sali aflaheimilda, hafi grunnur verið skapaður fyrir hagræð- ingu og traustari rekstur í greininni. Sveiflur hafi minnk- að og fyrirtækin geti nú til dæmis tekið á sig loðnubrest sem áður hafi kallað á opinber- ar aðgerðir. Ásgeir bendir á að það sé „rangt í grundvallaratriðum“ að hagnaður í sjávarútvegi skapist við það eitt „að henda vörpu í sjó“. Hann bendir á að með annars konar veiðikerfi yrðu veiðarnar hagn- aðarlausar. „Hagnaðurinn skapast með því að byggja upp virð- iskeðjur sem einnig mynda bakbein fyrir hátækniiðnað af ýmsum toga. Útgerðarmenn hafa í rúm þrjátíu ár farið eftir þeim leikreglum sem þeim voru settar af stjórnvöldum. Þeir eru því ekki þjófar eða lögbrjótar – heldur hafa þeir þrátt fyrir allt gengið vel um þá auðlind sem þeim hefur verið treyst fyrir. Og þeir hafa ekki fengið aflaheimildirnar ókeypis – heldur yfirleitt keypt þær af öðrum útgerð- um,“ segir Ásgeir Jónsson. Þetta eru mikilvægar ábendingar nú þegar allt of al- gengt er að einstaka menn, og jafnvel heilir stjórnmála- flokkar, séu haldnir þeim mis- skilningi að kvótakerfið sé vandamál sem þurfi að leysa. Staðreyndin er sú að kvóta- kerfið leysti brýnan vanda og gerði það vel. Aflamarkskerfið hefur fyrir löngu sannað gildi sitt fyrir þjóðarhag} Lausnin, ekki vandinn B rúnegg hafa verið á hvers manns vörum síðan Tryggvi Aðalbjörns- son, fréttamaður RÚV, fjallaði um mál fyrirtækisins í Kast- ljósþætti í vikunni. Tryggvi gerði málinu mjög góð skil og af mikilli fag- mennsku. Þetta er mál sem varð að komast í kastljósið og hefði átt að gera fyrir löngu síð- an. Það er ekkert langt síðan að eggjabú á Ís- landi voru smærri en nú en þegar við- skiptamennirnir komu inn í greinina hurfu mörg litlu búin af markaði eða fóru yfir í að þjóna þeim stærri. Þá var hagræðingunni fagnað í takt við kröfur um ódýrari matvörur. Eggjaframleiðslan fór að miklum hluta yfir í að vera bissness sem skapar oft á tíðum fjar- lægð á milli eiganda og skepnanna. Ekkert þetta snýr þó að máli Brúneggja og afsakar það, þar var gengið of langt í græðginni og blekkingum á kostnað hænsnanna og neytenda. Í kjölfarið á því máli má þó velta fyrir sér hvernig mat- vörur við viljum og hvernig landbúnað við viljum sjá á Ís- landi. Verslunin kallar stanslaust eftir ódýrari vörum og sér í hillingum að matvælaframleiðsla leggist hér af að stórum hluta svo hægt sé að flytja inn ódýrar erlendar matvörur sem leggja má sem mest á, allt til að hámarka gróðann. Dýravelferð og vinnuvelferð er vel fylgt eftir í mörg- um nágrannalöndum okkar en víða er pottur brotinn og ódýrari matvara er oft með óljósan uppruna. Eins og sýndi sig nýverið þegar kom í ljós að Evrópusambandið keypti í fyrra stóran hluta af þeim kjúklingi sem fluttur var út frá Taí- landi, þannig að kjúklingurinn sem við kaup- um með t.d Danmörku sem merktu uppruna- landi gæti allt eins hafa verið ræktaður í Taílandi. Ef verslunin þykist vera verndari íslenskra neytenda þá á hún líka að upplýsa neytendur um hvaðan erlenda matvaran sem hún selur kemur og við hvaða aðstæður hún er fram- leidd. Neytendur ættu að geta kallað eftir upprunamerkingum á þeim vörum eins og með þær íslensku. Það skal enginn halda að lausnin við blekk- ingum, eins og í tilfelli Brúneggja, sé að flytja inn matvörur. Það verður enginn ábyrgur neytandi af því að kaupa erlenda matvöru, að halda það er eins og að ganga með blöðkur fyrir augunum. Það hafa margir formælt íslenskum landbúnaði eftir Brúneggjamálið en einn bikasvartur sauður í stórtækri eggjaframleiðslu gefur ekki rétta mynd af íslenskum landbúnaði, eigandi Brúneggja er ekki bóndi heldur biss- nesmaður. Á Íslandi erum við með, og höfum alla burði til að vera með, framúrskarandi matvælaframleiðslu á margan hátt og sem betur fer eru búin í flestum fram- leiðslugreinum enn lítil og fjölskylduvæn. Við skulum ekki láta kall um ódýrari matvörur breyta því og halda áfram að vera ábyrgir neytendur. ingveldur@mbl.is Ingveldur Geirsdóttir Pistill Ekki bóndi heldur bissnessmaður STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Stjórn Sorpu hefur áhyggjuraf nýju fyrirkomulagi sorp-hirðumála í Kópavogsbæþar sem plasti og pappír er hent í sömu tunnuna. Halldór Auðar Svansson, formaður stjórnar Sorpu, segir að ekki hafi verið haft samráð við Sorpu við þessa ákvarðanatöku. Kópavogsbær er aðili að samningi sem Sorpa gerði við Gámaþjónustuna hf. um söfnun plasts í grenndargáma á höfuðborgarsvæðinu, m.a. í Kópa- vogi og segir framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar að fyrirtækið verði fyrir fjárhagslegum skaða vegna þessa nýja fyrirkomulags. Kópavogsbær telur aftur á móti að þetta feli ekki í sér að verið sé að virða samninginn við Gámaþjón- ustuna að vettugi. Forsaga málsins er að í sumar samþykkti bæjarráð Kópavogs nýtt fyrirkomulag um meðhöndlun úr- gangs í bænum. Í því felst að blá- tunnan svokallaða, sem áður var ein- göngu ætluð fyrir pappír, er núna bæði fyrir pappír og plast. Íslenska gámafélagið á tunnurnar og tæmir þær, innihaldið er flokkað í pappír og plast í flokkunarstöð fyrirtækisins og síðan er pappírinn sendur til Sorpu sem selur hann úr landi til endur- vinnslu. Halldór segir að áhyggjur stjórnar Sorpu felist m.a. í því að við þetta fyrirkomulag sé pappírinn ekki eins hreinn og áður, þ.e. að erfitt geti reynst að flokka allt plast frá og það hafi áhrif á það verð sem Sorpa fær fyrir pappírinn, en eftir því sem meira af aukaefnum á borð við plast slæðist með, því lægra verð fæst fyrir hann. Segir ákvörðun án samráðs „Þessi ákvörðun var ekki tekin í samráði við Sorpu, Kópavogsbær tók hana einhliða,“ segir Halldór. „Þetta hefði þurft að ræða á víðari grunni áður en það var ákveðið.“ Hann segir stjórn Sorpu hafa hvatt til að málið yrði tekið upp á næsta eigendafundi. Fleira varðandi þetta veldur stjórn Sorpu áhyggjum að sögn Hall- dórs. Það fyrirkomulag í Kópavogi, að blanda pappír og plasti saman í sömu tunnuna, sé ólíkt því sem þekk- ist í öðrum sveitarfélögum og það geti valdið ruglingi við sorpflokkun. Í svari Kópavogsbæjar við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að með því að bjóða bæjarbúum upp á þessa leið sé verið að bregðast við óskum um aukna flokkun sorps í bænum. En fleiri hliðar eru á málinu. Gámaþjónustan hf. á og rekur grenndargáma í Kópavogsbæ sem m.a. eru ætlaðir fyrir plast. Gáma- þjónustan selur plastið til Sorpu, skv samningi, sem síðan selur það úr landi til endurvinnslu. Með nýja fyr- irkomulaginu má ætla að minna magn safnist í grenndargámana, því Kópavogsbúar hafa nú þann mögu- leika að losa sig við plast í blátunnuna sem er við flest heimili í bænum. Gunnar Bragason, fram- kvæmdastjóri Gámaþjónustunnar, sendi Sorpu bréf um miðjan síðasta mánuð þar sem segir m.a. að það hafi komið fyrirtækinu verulega á óvart að sjá auglýsingar um þessa breyttu tilhögun sorphirðu í Kópavogsbæ, því fyrirtækið hafi gert sex ára samning við Sorpu um þjónustu við grennd- arstöðvar á höfuðborgarsvæðinu fyr- ir pappír, plast og gler. Hluti af samn- ingnum sé að Gámaþjónustan fjárfesti í grenndargámum sem not- aðir eru til þessa, auk sérútbúins bíls. Samningar verði virtir „Þessi ákvörðun Kópavogsbæjar mun gera það að verkum að stórlega mun draga úr söfnun plasts í grennd- argáma og þar með samnings- bundnum tekjum Gámaþjónustunnar af tæmingu grenndargáma með plasti. Með þessu er Kópavogsbær að skerða verulega tekjur Gámaþjónust- unnar af þessu samningsbundna verkefni,“ segir í bréfinu. Þar er þess óskað að málið verði rætt í stjórn Sorpu og í framhaldinu farið yfir stöðuna með það í huga að bæta Gámaþjónustunni þann skaða sem fé- lagið verður fyrir vegna þessarar ákvörðunar. „Við töldum að sveitarfélögin væru samstiga í þessum samningi sem gerður var við okkur,“ segir Gunnar. „Þessi ákvörðun hefur áhrif á þann samning, því magnið úr gám- unum minnkar. Það þýðir minni tekjur en við bjuggumst við þegar við fórum í tiltekna fjárfestingu á gámum og gámabílum. Þetta snýst um að samningar séu virtir.“ Þessu er Kópavogsbær ósam- mála. Í skriflegu svari bæjarins til Morgunblaðsins segir að í áðurnefnd- um samningi Sorpu við Gámaþjón- ustuna séu engin ákvæði um magn sorps í grenndargámum, enda sé erf- itt að spá um magn sorps fram í tím- ann. Eru sorpmálin í Kópavogi í rusli? Morgunblaðið/Eggert Plast og annað rusl Deildar meiningar eru um nýtt fyrirkomulag sorp- hirðu í Kópavogi þar sem plasti og pappír er blandað saman í tunnu. Halldór Auðar Svansson Gunnar Bragason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.