Morgunblaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2016
– einstök dönsk hönnun
Þar sem úrvalið er af umgjörðum
Hvalfjörður er lokaður skelfisk-
uppskeru og er fólk sterklega var-
að við að neyta kræklings úr firð-
inum eins og staðan er.
Matvælastofnun varaði við tínslu
á kræklingi í Hvalfirði fyrir ríflega
viku síðan vegna hugsanlegrar eitr-
unar í kræklingi í firðinum. Mat-
vælastofnun sendi sýni af kræklingi
til greiningar á þörungaeitri í síð-
ustu viku og reyndist viðvörunin
vera á rökum reist þar sem eit-
urmagn mældist vera langt yfir við-
miðunarmörkum. Stofnunin mun
áfram fylgjast með stöðu mála og
láta vita þegar óhætt verður að
neyta kræklings úr firðinum.
Af þeim svæðum sem Mat-
vælastofnun vaktar m.t.t. þör-
ungaeiturs er Hvalfjörður eina
svæðið sem er lokað vegna eitr-
unar.
Varað við tínslu á
kræklingi í Hvalfirði
Kræklingur Herramannsmatur.
Morgunblaðið/Kristinn
Dauf veiði hefur verið á síldarmið-
unum vestan við land síðustu daga.
Reikna má með því að þeir sem eiga
óveiddan kolmunnakvóta snúi sér
frekar að kolmunnaveiðum í fær-
eysku lögsögunni og hvíli síldina á
meðan lítið finnst af síld í veið-
anlegu magni, að því er segir á
heimasíðu HB Granda.
,,Það er búið að vera tregt hjá
okkur síðan við komum á miðin í
fyrradag,“ sagði Hjalti Einarsson,
skipstjóri á Víkingi AK, við heima-
síðuna í gær, en skipið var þá um
100 sjómílur vestur af Reykjanesi.
Haft er eftir Hjalta að lítið virðist
vera af síld vestan við land.
Lítið að hafa á
síldarmiðunum
Þórshöfn Spriklandi síld á færibandinu.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nóvember kvaddi í gær og samkvæmt bráða-
birgðayfirliti Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings reyndist hann vera enn einn hlýindamán-
uðurinn á þessu ári. Haustið hefur hins vegar
verið afar úrkomusamt og sólarlítið. Sólskins-
stundir hafa til dæmis ekki mælst jafnfáar að
hausti í Reykjavík síðan árið 1945.
Haustið hefur verið sérlega hlýtt á land-
inu, það næsthlýjasta sem vitað er um í
Reykjavík. Talsvert hlýrra var 1945, en 1941
var hiti aðeins sjónarmun lægri en nú.
Á Akureyri er haustið hins vegar það
langhlýjasta frá upphafi samfelldra mælinga.
Meðalhiti var 5,2 stig. Næsthlýjast var 1920
eða 4,6 stig, en það eru nokkuð óáreiðanlegar
mælingar, segir Trausti. Hitinn var einnig 4,6
stig árið 1945 en það teljast áreiðanlegar mæl-
ingar.
Mjög úrkomusamt var sunnanlands og
nyrðra í nóvember. „Tíð var talin mjög hag-
stæð og veðragóð um mikinn hluta landsins, en
veður var samt harla þungbúið og drungalegt
lengst af,“ segir Trausti. Meðalhiti í Reykjavík
mældist 3,5 stig og er það 2,4 stigum ofan með-
allags áranna 1961 til 1990, en 0,9 stigum ofan
meðallags síðustu tíu ára. Á Akureyri var með-
alhitinn 3,0 stig, 3,4 stigum ofan meðallags
1961 til 1990 og 2,3 stigum ofan meðallags síð-
ustu tíu ára. Að tiltölu var hlýjast norðaust-
anlands, 2,4 stigum ofan meðallags síðustu tíu
ára í Svartárkoti. Kaldast að tiltölu var undir
Eyjafjöllum þar sem hiti var í meðallagi síð-
ustu tíu ára.
Úrkoman var 75% yfir meðallagi
Úrkoman í Reykjavík mældist 127,4 milli-
metrar, sjónarmun minni en í nóvember í fyrra
en þá mældist hún 129,0 mm. Þetta er 75%
umfram meðallag en þó langt frá nóv-
embermetinu 1993, en þá mældist úrkoman í
Reykjavík 259,7 mm. Á Akureyri mældist úr-
koman nú 94,4 mm, einnig rúm 70% umfram
meðallag og það mesta í nóvember síðan 2012.
Mjög úrkomusamt hefur verið í haust
samkvæmt bráðabirgðayfirliti Trausta. Sam-
anlögð úrkoma október og nóvembermánaða
hefur aldrei mælst meiri í Reykjavík en nú,
334,3 millimetrar, en var þó nánast sú sama
1956 (332,6 mm) og 1958 (325,8 mm). Úrkoma
þessara mánaða mældist 383 mm á Vífils-
stöðum árið 1912.
Hlýr mánuður en úrkomusamur
Nóvember var enn einn hlýindamánuðurinn Haustið hefur verið sérlega hlýtt um land allt
Það langhlýjasta frá upphafi samfelldra mælinga á Akureyri Sólskinsstundir afar fáar
Morgunblaðið/Skapti
Haust á Akureyri Akureyrarvöllur er iðjagrænn undir haustsólinni og laufið safnast í hauga.