Morgunblaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2016 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Vistvænna prentumhverfi og hagkvæmni í rekstri Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri og fyrsta flokks þjónusta. www.kjaran.is | sími 510 5520 Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Ég tel það vera hina mestu heimsku ef næsta ríkisstjórn riftir samningn- um,“ sagði John Brennan, yfirmaður CIA-leyniþjónustunnar í Bandaríkj- unum, í gær og vísar þar til sam- komulags milli Bandaríkjanna og Ír- an varðandi kjarnorkuvopn. Varaði hann nýkjörinn forseta Bandaríkj- anna, Donald Trump, við slíkum að- gerðum og sagði þær „hörmung“, en Trump hafði uppi stór orð í kosn- ingabaráttu sinni um að rifta samn- ingnum snarlega. Brennan veitti BBC viðtal í gær en þetta er í fyrsta skipti sem yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar kem- ur í sjónvarpsviðtal við breskan fjöl- miðil. Hann lætur af störfum í janúar á næsta ári eftir fjögur ár í embætti. Varaði sérstaklega við Rússum Sagði hann fordæmalaust ef ný ríkisstjórn rifti samningum sem sú fyrri hefði undirgengist. „Þetta gæti leitt til vopnaáætlunar í Íran sem gæti valdið því að önnur ríki á svæð- inu fylgdu fordæmi þeirra,“ segir hann en samningurinn miðar að því að hindra að Ríki íslam geti þróað kjarnorkuvopn. Hann nefndi einnig önnur svið þar sem ný ríkisstjórn Trumps þyrfti að fara með gát og aga, þ.e. hvernig tal- að væri um hryðjuverk, samskipti við Rússa, kjarnorkuvopnasamning- inn við Írani og hvernig leynileg úr- ræði CIA-þjónustunnar væru nýtt. „Ég tel að Trump, nýkjörinn for- seti, og ný ríkisstjórn þurfi að vera á varðbergi gagnvart loforðum Rússa. Í mínum huga hafa loforð þeirra aldrei fært okkur það sem í þeim fólst,“ sagði Brennan en hann vonaði að samskipti milli Washington og Mosku yrðu betri. Spurður um hlut- verk Rússa í kosningabaráttunni vestanhafs, hvað varðar tölvuglæpi og birtingu upplýsinga, staðfesti Brennan að Rússar hefðu reynt slíkt. Bandaríkin ættu þó ekki að „fara nið- ur á þeirra plan“ með sambærilegum aðgerðum en aðrar leiðir væru færar til að Rússar vissu að slíkar aðgerðir væru óviðunandi. Fjármála- og viðskiptaráðherra Þá er Trump í óðaönn við að fylla sæti ráðherra í ríkisstjórn sinni þessa dagana en í gær staðfesti Ste- ven Mnuchin, fyrrverandi yfirmaður í Goldman Sachs-bankanum, að hann hefði verið valinn sem næsti fjár- málaráðherra Bandaríkjanna. Þá staðfesti fjárfestirinn Wilbur Ross að hann hefði verið valinn sem við- skiptaráðherra, samkvæmt frétt AFP. Ross er þekktur sem „konung- ur gjaldþrotanna“ en hann hagnaðist mjög í gegnum tíðina með því að fjár- festa í deyjandi iðnaði, þ.e. stál- og kolafyrirtækjum. „Við erum ánægðir að vera hér og spenntir að starfa fyrir nýkjörinn forseta og það er heiður að gegna þessum embættum,“ sagði Mnuchin en hann var fjármálastjóri kosninga- baráttu Trumps og starfaði áður sem kvikmyndaframleiðandi í Holly- wood. Teymi Trumps í Hvíta húsinu hefur enn ekki staðfest tilnefning- arnar. Forðast hagsmunaárekstra Trump tók svo af allan vafa í gær um að hann hygðist ekki sinna við- skiptum með forsetaembættinu. Hann mun láta af öllum störfum í viðskiptaveldi sínu en einbeita sér að því að vera forseti Bandaríkjanna og forðast alla hagsmunaárekstra. Hann gaf engar frekari upplýsingar að svo stöddu en vísaði til blaða- mannafundar í næsta mánuði. Varar Trump við „hörmung“ AFP Ráðherra Steven Mnuchin, fyrrverandi yfirmaður í Goldman Sachs-banka, staðfesti að hann hefði verið valinn næsti fjármálráðherra Bandaríkjanna.  Ný ríkisstjórn fari með gát og aga  Varar við innihaldslausum loforðum Rússa  Fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra Bandaríkjanna valdir  Hættir í viðskiptum Alvarlegur vatnsskortur blasir nú við um 500.000 almennum borgurum í Mosul í Írak. Sameinuðu þjóðirnar vöruðu við stöðunni í gær en íraski herinn hefur sótt að liðsmönnum Ríkis íslam í borginni undanfarnar vikur til að endurheimta völdin. Þetta segir í frétt AFP. Fólkið sem hefst við í borginni glímir einnig við matarskort og skort á rafmagni. „Nær hálf milljón manna sem barist hefur í bökkum dag hvern við að næra sig, missir nú líka allt hreint drykkjarvatn. Áhrif þess á börn, konur og fjölskyldur verða hörmuleg,“ sagði Lise Grand, mannúðartengiliður Sameinuðu þjóðanna í Írak. Hvetur til viðbragða „Bæði stjórnvöld og hjálpar- samtök verða að stíga fram og bjóða fólkinu aðstoð, sérstaklega þeim fjölskyldum sem neyðast til að neyta ódrykkjarhæfs vatns úr brunnum,“ sagði, Abdelkarim al-Obeidi, for- maður samtakanna Mosul People Gathering, og varar við að „mann- legar hörmungar“ séu yfirvofandi. Íbúar vonast til þess að fá rennandi vatn aftur áður en sjúkdómar taka að breiðast út. Aðgerðir hersins til að endurheimta borgina hafa valdið skemmdum á vatnslögnum, sem veldur vandanum. Vatnsskortur bætist við rafmagns- og matarskort  Átök í Mosul eyðilögðu vatnslagnir  Áhrifin hörmuleg AFP Skortur Írakar í Mosul treysta á mataraðstoð frá hjálparsamtökum á með- an herinn tekst á við Ríki íslams. Yfirvofandi er vatnsskortur í borginni. Rússar kröfðust þess í gær að tyrkneski forset- inn, Recep Tayy- ip Erdogan, skýrði ummæli sín þar sem hann sagði Tyrki ein- göngu láta sig átökin í Sýrlandi varða til þess að steypa Bashar al- Assad, forseta Sýrlands, af stóli. Tyrkneskar hersveitir leggja sín lóð á vogarskálarnar í átökunum sem geisað hafa í Sýrlandi og að- stoða herlið, óvinveitt Assad. Á meðan leggja Rússar sýrlenska hernum lið en yfir 300.000 manns hafa látist í átökunum síðan 2011. Talsmaður Rússa í Kreml sagði um- mæli Erdogan vera fréttir. „Þau ríma ekki við fyrri yfirlýsingar né okkar skilning á stöðunni.“ RÚSSLAND Krefjast svara vegna ummæla Erdogan Recep Tayyip Erdogan Yfir 50.000 Sýr- lendingar bætt- ust við sístækk- andi hóp almennra borg- ara í gær, sem flýja austurhluta Aleppo-borgar í Sýrlandi vegna mikilla stríðs- átaka. Á meðan greip Öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna til neyð- arviðræðna vegna ástandsins en herinn hefur náð þriðjungi þess svæðis sem áður var undir yfirráð- um stjórnarandstæðinga á sitt vald. Tuttugu og einn almennur borg- ari lést í gær í austurhluta borg- arinnar þegar skotárás braust út milli stríðandi fylkinga. SÝRLAND 50.000 manns flúðu austurhluta Aleppo Fólk Flýja heimili sín undan átökum. Einn meðlima sádi-arabísku kon- ungsfjölskyldunnar telur brýnt að afnema þau lög ríkisins sem banna konum að keyra, samkvæmt Twitt- er-færslu hans. Prinsinn, Alwaleed bin Talal, þótti óvenju opinskár í af- stöðu sinni þegar hann sagði það vera efnahagslega nauðsyn og kvenréttindi að afnema lögin. Prinsinn sendi einnig frá sér yfir- lýsingu um málið þar sem hann líkti ökubanninu við eldri bönn þar sem konum var meinað að sækja sér menntun. „Þetta eru óréttlát lög hefðbundins þjóðfélags, lög sem eru meira hamlandi en þær hindr- anir sem trúarbrögðum er lagalega heimilt að setja,“ sagði hann. SÁDI-ARABÍA Prinsinn vill leyfa konum að keyra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.