Morgunblaðið - 01.12.2016, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 01.12.2016, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2016 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Helmingsaukning hefur orðið í fjölda sektarboða í gegnum hraðamynda- vélar það sem af er þessu ári miðað við allt árið 2014. Fjölgun ferða- manna er sögð vera helsta ástæðan þó hraðamyndavél í ómerktum bíl á höfuðborgarsvæðinu eigi einnig hlut að máli. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fást einungis um 45% sekta erlendra ferðamannna greidd. Fjölgun sekta það sem af er ári miðað við árið 2015 nemur um 26% þrátt fyrir að enn sé mánuður eftir af árinu. Þá vekur athygli að lungann úr árinu var eina hraðamyndavélin sem passar í myndavélakassa og er notuð í Reykjavík, þar sem flestir ökumenn eru myndaðir, verið ónothæf. Því eru flest sektarboð vegna myndaðs hrað- aksturs utan Reykjavíkur. Það sem af er ári hafa 42.677 sektir verið gefnar út vegna hraðamynda- véla. Á síðasta ári voru þær 33.811 en árið 2014 voru þær 28.306. Ólafur Guðmundsson, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni á Vestur- landi, sem hefur umsjón með sekt- arboðum vegna myndavélanna, segir skýringuna á auknum fjölda sekta vera tvíþætta. Annars vegar meiri umferð vegna aukins fjölda ferða- manna og hins vegar vegna þess að í höfuðborginni var ómerktur bíll með hraðamyndavél innanborðs tekinn í notkun 2014. Að sögn Ólafs myndaði lögreglumaður í bílnum 6.800 brot ár- ið 2014, 9.545 brot árið 2015 og 13.237 það sem af er ári. „Bíllinn skýrir að hluta til fleiri sektir en aukinn um- ferðarþungi hefur meira vægi,“ segir Ólafur. Þýdd á sex tungumál Að sögn Ólafs getur reynst þrautin þyngri að innheimta sektir af erlend- um ferðamönnum. „Við létum þýða sektarboðin á sex tungumál. Við fáum upplýsingar um það hjá bíla- leigunum hverjir eru skráðir fyrir bílunum. Svo eru sektarboðin send til þeirra. Það hefur verið u.þ.b. 45% innheimtuhlutfall,“ segir Ólafur. Spurður hvort slíkt þyki ekki lágt hlutfall, þá segir Ólafur svo ekki vera. „Það er þeim í raun að refsilausu að rífa sektarboðið. Við erum ekki með neina samninga við önnur lönd þar sem hægt er að ganga á eftir þessu,“ segir Ólafur. Jafnari en Íslendingar Hann segir það ólíkt eftir löndum hvernig málum er háttað hvað þetta varðar. Sums staðar eru bílaleigurn- ar ábyrgar fyrir greiðslu sekta og í þeim tilvikum eru greiðslukort við- skiptavina notuð sem einskonar trygging fyrir greiðslu. Þetta fyrir- komulag er ekki hérlendis. „Við vilj- um helst losna við þessa handavinnu sem felst í því að senda sektarboð á ferðamennina. Það á að sekta þá og þeir eiga ekki að vera jafnari en Ís- lendingar hvað þetta varðar,“ segir Ólafur. Helmingi fleiri sektir  Sektum vegna hraðamyndavéla fjölgað um helming frá 2014  Aðeins 45% sekta erlendra ferðamanna fást greidd Morgunblaðið/Ernir Á löglegum hraða Það sem af er ári hafa tæplega 43 þúsund sektir verið gefnar út eftir að ökumenn hafa verið myndaðir við of hraðan akstur. Er það um helmingsaukning á fjölda sektarboða miðað við árið 2014. Ólafur segir að eflaust væri hægt að innheimta sektir erlendra ferðamanna í gegnum lög- fræðistofur ytra en slíkt borgi sig ekki. „Við höfum eingöngu sent útlendingum sektir sem eru 30 þúsund kr. eða hærri. Næsta sekt fyrir neðan er um 10 þúsund kr. og það fer aldrei í innheimtu. Við höfum hvorki tíma né mann- skap til þess að sinna allri úr- vinnslu,“ segir Ólafur. Miðað við lauslega útreikninga sína í starfi segir Ólafur um 10 þúsund krónur fást fyrir hverja sekt miðað við heildarfjölda sekta. Miðað við það sem af er ári myndi það þýða um 440 millj- ónir króna fyrir ríkissjóð. Þegar íslenskir ríkisborgarar hafna því að greiða sekt vegna myndar úr hraðamyndavél eiga þeir yfir höfði sér saksókn. „Þar geta ökumenn verið dæmdir í fangelsi sem vararefsingu ef sektin er ekki greidd,“ segir Ólaf- ur. Samkvæmt því sem fram kemur í Lögbirtingablaðinu er fangelsisvistin 2-6 dagar. Innheimta ekki allar sektir INNHEIMTAN OF DÝR Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2 Sérbýli í Fossvogi óskast Höfum kaupanda að 250-400 fm einbýlishúsi eða raðhúsi í Fossvogi. Sérbýli í Vesturbænum óskast Höfum kaupanda að 250-400 fm einbýlishúsi í Vesturbænum. Sérbýli á Seltjarnarnesi óskast Höfum kaupanda að 250-400 fm einbýlishúsi eða raðhúsi á Seltjarnarnesi. Sérbýli í Skerjafirði óskast Höfum kaupanda að 250-400 fm einbýlishúsi í Skerjafirði. 2ja-3ja herb. íbúð óskast Höfum kaupanda að 2ja-3ja herb. íbúð í miðbæ, vesturbæ eða hlíðum. Æskileg stærð 55-75 fm. Nánari upplýsingar veitir: Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali, s: 861 8514, sverrir@eignamidlun.is Sala fasteigna frá 588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík Eignir óskast Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hraðamyndavél hefur verið ónothæf í tæplega ár eftir að hún var skotin allt að sex sinnum með haglabyssu aðfaranótt 18 janúar á þessu ári. Engin tilkynning barst og lögreglan hefur ekki haft uppi á sökudólgnum. Vélin hefur reglulega verið færð á milli 19 myndavélakassa við gatna- mót í Reykjavík. Hún var í notkun við gatnamót Stekkjarbakka og Breiðholtsbrautar og hafði verið þar í einn og hálfan sólarhring þegar skemmdarverkið átti sér stað. Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að rann- sóknin hafi ekki borið árangur. ,,Það voru margir ökumenn sem höfðu verið myndaðir á þessum tíma. Vandamálið með haglabyssurnar er það að erfiðara er að gera sam- anburðarprófanir á þeim en á öðrum vopnum,“ segir Ásgeir. Að hans sögn bárust engar til- kynningar um skothvelli frá ná- lægum íbúum umrædda nótt. „Þetta uppgötv- aðist ekki fyrr en menn komu til vinnu og áttuðu sig á því að vélin var ekki í sam- bandi,“ segir Ásgeir. Eftirlitsmyndavél mun fylgja Myndavélin hefur verið í viðgerð en verður tekin í notkun í desember. Ásgeir segir að hér eftir muni eft- irlitsmyndavél fylgja vélinni. „Auð- vitað er það mikið áhyggjuefni að menn séu með skotvopn innan borg- armarkanna. Miðað við það að sex skotum hafi verið skotið þá er merki- legt að enginn hafi átt þarna leið um og enginn gert lögreglu viðvart.“ Ónothæf eftir haglabyssuskot  Hraðamyndavél skemmd í Breiðholti Vélin hefur lengi verið ónothæf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.