Morgunblaðið - 01.12.2016, Síða 41

Morgunblaðið - 01.12.2016, Síða 41
Bíó Paradís frumsýnir í kvöld kl. 20 gam- anmyndina Ab- solutely fabulous: The movie þar sem Edina og Patsy lifa glam- úrlífinu sem aldr- ei fyrr, þær versla, drekka og fara á alla heitustu klúbbana í Lond- on. Í aðalhlutverkum eru Jennifer Saunders og Joanna Lumley, en leikstjóri er Mandie Fletcher. Mynd- in er á ensku og er sýnd án texta. Vegna mikillar eftirspurnar verð- ur heimildarmyndin One More Time With Feeling sýnd í kvöld og næstu tvo daga. Myndin fjallar um nýjustu breiðskífu Nick Cave and the Bad Seeds sem nefnist Skeleton Tree og kom út í september. Myndin verður sýnd í dag kl. 17:45; kl. 20 og kl. 22:15, á morgun kl. 17:45 og á laug- ardag kl. 20. Glamúr og sorg í Bíó Paradís Nick Cave MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2016 Harold Burr, sem söng með The Platters en býr nú á Ís- landi, kemur fram á tónleikum í Hannesarholti í kvöld kl. 19. Í tilkynningu frá tónleikahaldara kemur fram að Burr spretti úr heimi djass og sálartónlistar. Hann mun flytja ameríska standarda, jólalög og eigin tónlist með djass og „RnB“ sveiflu. Hjörtur Howser tónlistarmaður spilar með á flygilinn. Jólaveisla með Harold Burr í kvöld Harold Burr Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Mig langaði til að búa til fallegan stemningshljóm- disk sem væri ákveðið mótvægi við hressleikann sem oft heyrist á jóladiskum. Ætlunin var að búa til disk sem framkallaði jólastemninguna eins og ég man eftir henni sem barn. Þarna er því ákveðin nostalgía ríkjandi – ekki endilega í hljómnum eða lagavalinu heldur fremur í stemningunni sem ein- kennist af kyrrð, nærveru og samveru,“ segir Þór- hildur Örvarsdóttir um jólaplötu sína, Hátíð, sem verið hefur ár í smíðum. Þórhildur fagnar plötunni með útgáfutónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld og í Akureyrarkirkju á sunnudag kl. 20 bæði kvöld. Mikið þjóðlaganörd Spurð um lagavalið segist Þórhildur hafa valið bæði vel þekkt jólalög og önnur minna þekkt frá Norðurlöndunum. Meðal laga eru „Það aldin út er sprungið“, „Nú árið er liðið“, „Hátíð fer að höndum ein“, „Betlehemsstjarnan“, „Nú finn ég frið í hjarta“, „Vetrarsálmur“ og „Þá jólin koma“. „Ég er mikið þjóðlaganörd og langaði að fanga skandinavískan tón sem birtist vel í hljóðfæraval- inu þar sem mikið fer fyrir orgeli, harmonikku og fiðlu, fyrir utan slagverk, píanó og gítar.“ Samstarfsfólk Þórhildar á diskinum eru Eyþór Ingi Jónsson sem leikur á orgel, Einar Scheving á slagverk, Greta Salóme á fiðlu, Ásdís Arnardóttir á selló og Kristján Edelstein á gítar, en upptökur og hljóðblöndun var í höndum Steve McLaughlin. Bróðir Þórhildar, Atli Örvarsson, útsetti lögin en systkinin hafa starfað mikið saman á umliðnum ár- um. „Það er alltaf alveg dásamlegt að vinna með hon- um, en við höfum unnið mikið saman á síðustu 10- 15 árum,“ segir Þórhildur sem söng í fyrsta skiptið inn á kvikmynd sem Atli samdi tónlistina við árið 2005. „Það hefur verið einstaklega gaman að vinna að annarri tónlist en kvikmyndatónlist með hon- um,“ segir Þórhildur og bendir sem dæmi á að í stað þess að taka diskinn upp inni í stúdíói, líkt og þau geri ávallt með kvikmyndatónlistina, hafi þau tekið mikið upp í Akureyrarkirkju. „Það er allt annað umhverfi en að láta músíkina passa við hvern ramma í kvikmynd, en mjög skemmtilegt.“ Gaman að spila heima Aðspurð segir Þórhildur gaman að geta boðið upp á útgáfutónleika bæði sunnan og norðan heiða. „Það er ekki síst skemmtilegt fyrir okkur sem er- um vanari að vinna á heimsvísu að koma heim og spila fyrir fólkið okkar, bæði í Reykjavík og á Ak- ureyri. Við erum ótrúlega margir tónlistarmenn sem störfum í gerbreyttum heimi þar sem vinnan okkar fer að stærstum hluta fram erlendis, en við gleymum kannski stundum að kynna okkur hér heima.“ Þess má að lokum geta að miðar eru seldir á tix- .is og við innganginn. „Nostalgía ríkjandi“  Þórhildur Örvarsdóttir fagnar Hátíð í Fríkirkj- unni  Blanda af íslenskum og norrænum jólalögum Ljósmynd/Daníel Starrason Heima „Við erum ótrúlega margir tónlistarmenn sem störfum í gerbreyttum heimi þar sem vinnan okkar fer að stærstum hluta fram erlendis, en við gleymum kannski stundum að kynna okkur hér heima,“ segir Þórhildur. Á aðventu- tónleikum Sin- fóníuhljóm- sveitar Íslands í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19:30 hljómar hátíðleg tónlist eftir þrjá meistara 18. ald- ar, þá Bach, Händel og Moz- art. „Tvö verk eftir Mozart ramma inn efnis- skrána, fjörmikill forleikur að Brúðkaupi Fígarós og sinfónía nr. 39 sem var ein sú síðasta sem hann samdi. Glæsilegt kórverk Händels sem var samið til flutn- ings við krýningu Karólínu Breta- drottningar og hefur engu glatað af hátíðleika sínum verður flutt af Hamrahlíðarkórunum,“ segir í til- kynningu. Einleikari á tónleik- unum er Elfa Rún Kristinsdóttir, en hún leikur fiðlukonsert Bachs í E-dúr. Hljómsveitarstjóri er Ei- vind Aadland. Boðið er upp á tón- leikakynningu kl. 18:20 sem Svan- hildur Óskarsdóttir hefur umsjón með. Mozart, Bach og Händel hjá Sinfó Elfa Rún Kristinsdóttir Miðasala og nánari upplýsingar SÝND KL. 5, 8 SÝND KL. 6, 8, 10 SÝND KL. 4, 6.20 SÝND KL. 8.40, 10.45 SÝND KL. 4 Snjóinn burtmeð Stiga snjóblásara Askalind4,Kópavogi Sími 5641864 www.vetrarsol.is 1131 E snjóblásari 1100W rafmagnsmótor Dreifing 1–4metrar 31 cm vinnslubreidd Léttur ogmeðfærilegur Góður við þröngar aðstæður ST 4851 snjóblásari 48V Lithium-ion rafhlaða, hlaðin Dreifing 1–6metrar 51 cm vinnslubreidd Með Led ljósabúnaði Í léttari snjómokstur SnowBlizzard snjóblásari B&Smótor með rafstart, 249cc Dreifing 1–10metrar 69 cm vinnslubreidd Með ljósum og á grófum dekkjum Frábær í mikinn og erfiðan snjó „Í tilefni þess að Kexmas rennur í garð á fimmtudaginn 1. desember þá munu þeir Snorri Ásmundsson og Högni Egilsson blása til jólatónleika í Gym & Tonic,“ segir í tilkynningu frá tónlistarmönnunum. Þar kemur fram að Snorri hafi nýverið fagnað 50 ára afmæli sínu og sé „langt frá því að slá slöku við í listsköpun sinni. Högni er margrómaður söngvari, hljóðfæraleikari og tónskáld sem hefur á ferli sínum samið og flutt tónlist undir eigin nafni og sömuleið- is með hljómsveitunum Hjaltalín, Gus Gus og Gluteus Maximus.“ Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er aðgangur ókeypis. Kexmas kallar á tónleika í kvöld Félagar Snorri Ásmundsson og Högni Egilsson troða upp á Kex hosteli. Hvolfspegill / Upsidedome nefnist sýning meistaranema við myndlist- ardeild LHÍ undir sýningarstjórn meistaranema HÍ í listfræði sem opn- uð verður í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í dag kl. 16.30-19. Þema sýningarinnar er „hannað til þess að gera ellefu listnemum kleift að spegla sig í verkum Sigurjóns, þar sem hann vann verk sín og þar sem sýning verka hans stendur nú þegar yfir. Unnið er með samhengi safnsins og núverandi sýningu Samskeyt- ingar. Listaverk, vinnuferill og að- ferðir Sigurjóns Ólafssonar við myndlistarsköpun sína ásamt safnbyggingunni, sögu þess og um- hverfi munu móta aðkomu nemenda að listaverkum sem sýnd verða sam- hliða verkum Sigurjóns. Verkefnið er unnið undir stjórn Bryndísar Snæ- björnsdóttur prófessors við Mynd- listardeild LHÍ og Hlyns Helgasonar lektors í Listfræðideild HÍ.“ Sýningin stendur til 11. desember og er opin 2., 3., 9., 10. og 11. desem- ber kl. 14-17. Hvolfspegill í Listasafni Sigurjóns List Sigurjón Ólafsson að störfum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.