Fréttablaðið - 02.02.2017, Blaðsíða 16
markaðurinn
STYRKIR TIL VERKEFNA SEM
TENGJAST HAGSMUNUM
FATLAÐS FÓLKS OG ÖRYRKJA
Öryrkjabandalag Íslands veitir sérstaka styrki til ýmissa hagnýtra verkefna sem
tengjast hagsmunum fatlaðs fólks og öryrkja í samræmi við málefni, markmið
og/eða stefnu bandalagsins. ÖBÍ auglýsir hér með eftir styrkumsóknum.
Tímasett fjárhags- og verkefnaáætlun skal fylgja umsóknum.
Sótt er um styrk rafrænt á heimasíðu ÖBÍ, obi.is
Umsóknarfrestur er til 15. mars næstkomandi.
Upplýsingar um styrkúthlutun liggja fyrir eigi síðar en 1. maí 2017.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk á skrifstofu ÖBÍ, mottaka@obi.is
eða í síma 530 6700.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
9
9
5
5
„Þetta kom öllum í opna skjöldu. Það
er ljóst að samkeppnin hefur haft
meiri áhrif á félagið en menn gerðu
ráð fyrir og sem dæmi munu hátt í
30 flugfélög fljúga hingað til lands
næsta sumar,“ segir Guðlaugur Stein
arr Gíslason, sérfræðingur í markaðs
viðskiptum hjá Arctica Finance, um
afkomuviðvörunina sem Icelandair
Group sendi Kauphöll Íslands fyrir
opnun markaða í gær.
Skeyti fyrirtækisins varð
til þess að hlutabréf
Icelandair Group
féllu um 24 pró
sent í verði og 27
milljarðar af
markaðsvirði félagsins þurrkuðust
út. Gengi hlutabréfa þess nam við
lokun markaða 16,8 krónum á hlut
og hefur því fallið um 57 prósent á
aðeins níu mánuðum. Markaðsvirði
félagsins hefur á þeim tíma lækkað
um rúmlega 110 milljarða en þegar
það stóð hvað hæst voru bréf Ice
landair metin á um 195 milljarða.
Samkvæmt afkomuviðvöruninni
spáir Icelandair Group að EBIDTA
fyrirtækisins, hagnaður fyrir fjár
magnsliði, skatta og afskriftir, á árinu
2017 lækki um 30 prósent miðað við
væntingar félagsins um rekstur þess
í fyrra. Það er lækkun upp á 60 til 70
milljónir Bandaríkjadala eða rétt
rúma átta milljarða.
„Það er samkeppnin, ekki síst
frá lággjaldaflugfélögum, sem
er að herja á Icelandair
og hafa áhrif á rekstur
félagsins og mögulega
meira en menn töldu.
Bókanir eru minni sem
þýðir auðvitað að menn
eru að sækja sér flug
hjá öðrum fyrirtækjum
í meira mæli en áður.
Icelandair hefur verið
lykilflugfélag og verður
það mögulega áfram en
það er ljóst að menn eru
að láta finna vel fyrir sér
í samkeppninni,“ segir
Guðlaugur.
„Skilaboðin í afkomu
Horfðu á 27 milljarða gufa upp
Svört afkomuviðvörun olli því að bréf Icelandair lækkuðu um 24 prósent. „Samkeppnin haft meiri áhrif á
félagið en búist var við,“ segir sérfræðingur. Hlutur Lífeyrissjóðs verslunarmanna lækkað um 17 milljarða.
57%
er lækkunin á gengi bréfa
icelandair frá því í lok apríl 2016.
viðvöruninni eru önnur en við
höfum verið að lesa út úr til dæmis
flutningatölum síðasta árs. Það er
þokkaleg afkoma sem félagið býst
við á síðasta fjórðungi 2016 og því
kom þetta mjög á óvart eins og sást
á markaðnum,“ segir Stefán Broddi
Guðjónsson, yfirmaður greiningar
deildar Arion banka.
Stærstu hluthafar Icelandair eru
lífeyrissjóðir en þeir eiga samanlagt
meira en helmingshlut. Lífeyris
sjóður verslunarmanna er stærsti
einstaki hluthafinn með 14,7 pró
senta hlut og því hefur þessi hluta
bréfalækkun rýrt verulega verðmæti
eignarhlutar sjóðsins í félaginu.
Þegar gengi bréfa Icelandair var í
hæstu hæðum nam virði þess hlutar
sem sjóðurinn átti um 29 milljörð
um en við lokun markaða í gær var
markaðsverðmæti hans komið niður
í rúmlega tólf milljarða króna.
Líkt og Icelandair gerði í afkomu
viðvöruninni benda Guðlaugur og
Stefán Broddi á að staða flugfélagsins
sé enn sterk.
„Flugstarfsemi er mjög sveiflu
kennd og er svo alþjóðleg að það eru
margir þættir sem hafa áhrif á hana
sem félögin geta ekki stýrt nema að
litlu leyti. Félagið hefur boðað að
það sé að bregðast við og það verður
áhugavert að sjá hvað kemur út úr
því,“ segir Stefán Broddi.
haraldur@frettabladid.is
hordur@frettabladid.is
✿ Markaðsvirði Icelandair
frá 2014 til 2017
Markaðsvirði í milljörðum króna
2014 2017
2016
195
Í gær
84
Það er eðlilegt að
markaður bregðist
við svona neikvæðum
fréttum.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group
2 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r16 f r é T T I r ∙ f r é T T a b L a ð I ð
0
2
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
5
-4
9
B
8
1
C
2
5
-4
8
7
C
1
C
2
5
-4
7
4
0
1
C
2
5
-4
6
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K