Fréttablaðið - 02.02.2017, Blaðsíða 12
Bandaríkin Tilskipun Donald
Trump um bann við komu fólks frá
nokkrum múslimalöndum vekur
afar hörð viðbrögð víða um heim.
Mörgum blöskrar að múslimum
sérstaklega sé meinað að koma til
Bandaríkjanna. Sagt er stangast á
við flóttamannasamning Sameinuðu
þjóðanna að neita alfarið að taka við
flóttafólki, jafnvel þótt bannið sé sagt
vera tímabundið.
Óljóst orðalag tilskipunarinnar
hefur skapað ringulreið á flugvöllum
og landamærastöðvum. Mörg mál
eru komin fyrir dómstóla.
Þetta er samt ekki í fyrsta sinn sem
Bandaríkin loka landamærunum
fyrir tilteknum hópum fólks. Meðal
hópa sem orðið hafa fyrir slíku eru
Kínverjar, anarkistar, gyðingar,
kommúnistar, Íranar og HIV-smit-
aðir einstaklingar. Jafnvel betlarar
og flogaveikt fólk líka.
Hér er saga sambærilegra aðgerða
bandarískra stjórnvalda rakin og
meðal annars stuðst við fréttavef
sjónvarpsstöðvarinnar Al Jazeera.
Hafa oft áður lokað á heila hópa af fólki
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Kínverjar, anarkistar,
gyðingar, kommúnistar,
Íranar og HIV-smitaðir
eru meðal þeirra hópa
sem bandarísk stjórn-
völd hafa áður lokað
landamærunum fyrir.
1882
Kínverjar og verkafólk almennt
Chester A. Arthur var forseti þegar
ákveðið var að banna verkafólki
almennt, bæði ómenntuðu og
iðnmenntuðu, að koma til Banda-
ríkjanna í tíu ár. Sérstaklega átti
bannið að ná til kínverskra námu-
verkamanna. Mikið atvinnuleysi var
í Bandaríkjunum. Almenningur taldi
Kínverjana taka vinnu frá heimafólki.
1903
Anarkistar, betlarar og
flogaveikt fólk
Theodore Roosevelt var forseti er
anarkistum var bannað að koma til
Bandaríkjanna. William McKinley
Bandaríkjaforseti var myrtur árið
1901 í nafni anarkismans.
Þá var flogaveikum, betl urum og
mönnum sem fluttu inn vændis-
konur bönnuð koma til landsins.
1939
Gyðingar á flótta
undan nasistum
Franklin D. Roosevelt var nýorðinn
forseti Bandaríkjanna er Adolf Hitl-
er var kosinn til valda í Þýskalandi.
Roosevelt taldi að flóttamanna-
straumur gyðinga gæti reynst
Bandaríkjunum hættulegur. Hann
ákvað því að takmarka mikið fjölda
gyðinga sem fengju að koma.
1950
Kommúnistar
Harry Truman forseti var andvígur því
að banna kommúnistum að koma
til Bandríkjanna. Bandaríkjaþing setti
engu að síður lög sem bönnuðu
þeim, sem voru skráðir í kommún-
istaflokk, að flytja til landsins.
Truman sagði þessi lög vera mann-
réttindakafla bandarísku stjórnar-
skrárinnar til háðungar.
1980
Íranar
Jimmy Carter var forseti Banda-
ríkjanna árið 1979 er Íranar gerðu
byltingu gegn keisaranum. Bylting-
arleiðtoginn var Ruhollah. Íranskir
námsmenn tóku tugi manns í
gíslingu í bandaríska sendiráðinu.
Bandaríkin slitu öll stjórnmála-
tengsl við Íran og bönnuðu Írönum
að koma til Bandaríkjanna.
1987
HIV-smitaðir
Ronald Reagan var forseti er
alnæmisfaraldurinn braust út.
Fordómar fóru á flug er í ljós kom
að smitleiðirnar tengdust gjarnan
kynlífi, að samkynhneigðir karl-
menn væru í meiri hættu en aðrir
og að uppruni veirunnar væri lík-
lega í Afríku. HIV-smituðum var þá
bannað að koma til Bandaríkjanna.
TRUMP
Múslimar frá Írak, Íran,
Jemen, Líbíu, Sómalíu,
Súdan og Sýrlandi.
Meðal fyrstu verka Donalds Trump
sem forseta er að banna fólki frá
sjö múslimalöndum að koma til
Bandaríkjanna. Bannið gildir í 90
daga fyrir fólk frá Írak, Íran, Jemen,
Líbíu, Sómalíu, Súdan og Sýrlandi.
Eftir það taka við nýjar reglur sem
eiga að vera tilbúnar er fresturinn
rennur út. Þá verður ekki tekið við
flóttafólki í 120 daga og sýrlenskir
flóttamenn eru óvelkomnir þangað
til annað verður tilkynnt. Samt er
tekið fram að sýrlenskir flótta-
menn séu velkomnir ef þeir eru
ekki múslimar. Ákvæðið er orðað
þannig að fólk sem tilheyrir trúar-
legum minnihlutahópum í Sýrlandi
er undanþegið
banninu.
Hinir óvelkomnu
2.590.000 kr.2.990.000 kr.
Kia Soul EXKia cee’d EX 1.6
Árgerð 6/2015, ekinn 70 þús. km,
dísil, 1.582 cc, 128 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 5,2/100 km.
Árgerð 9/2015, ekinn 9 þús. km,
dísil, 1.582 cc, 128 hö, beinskiptur,
eyðsla frá 4,2 l/100 km.
3.150.000 kr.
Kia Soul EX
Árgerð 12/2015, ekinn 27 þús. km,
dísil, 1.582 cc, 128 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 5,2 l/100km.
5.390.000 kr.6.290.000 kr.
Kia Sorento EX LuxuryKia Sorento EX Luxury
Árgerð 12/2014, ekinn 84 þús. km,
dísil, 2.199 cc, 198 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 6,7 l/100 km.
Árgerð 3/2015, ekinn 50 þús. km,
dísil, 2.199 cc, 200 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 6,7 l/100 km.
21.460 kr. á mánuði*24.800 á mánuði*
51.500 kr. á mánuði*
25.800 kr. á mánuði*
43.900 kr. á mánuði*
Raðnúmer: 290535
Raðnúmer: 320412 Raðnúmer: 320045
Raðnúmer: 290627 Raðnúmer: 170228
4.590.000 kr.5.790.000 kr.
Kia Sportage EX 4WDKia Sportage GT Line 4WD
Árgerð 11/2015, ekinn 69 þús. km,
bensín, 1.995 cc, 136 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 5,9 l/100 km.
Árgerð 2/2016, ekinn 15 þús. km,
bensín, 1.591 cc, 177 hö, sjálfskiptur,
eyðsla frá 7,5 l/100 km.
47.400 kr. á mánuði* 37.900 kr. á mánuði*
Raðnúmer: 170266 Raðnúmer: 992224
21.400 kr. á mánuði*
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
2.590.000 kr.
Kia cee’d LX 1.4
Árgerð 4/2015, ekinn 35 þús. km,
dísil, 1.396 cc, 90 hö, beinskiptur,
eyðsla frá 4,2 l/100 km.
Raðnúmer: 320333
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartímar:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 84 mánuði. Vextir 8,50%
og árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,30%.
Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar.
*
Notaðir bílar
3 til 6 ára ábyrgð fylgir!
2 . f e B r ú a r 2 0 1 7 f i M M T U d a G U r12 f r é T T i r ∙ f r é T T a B L a ð i ð
0
2
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
5
-7
1
3
8
1
C
2
5
-6
F
F
C
1
C
2
5
-6
E
C
0
1
C
2
5
-6
D
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K