Fréttablaðið - 02.02.2017, Blaðsíða 19
Þegar söngleikurinn South Pacific eftir Rodgers og Hammerstein eftir sögu metsöluhöf
undarins James Michener komst á
fjalirnar í New York öðru sinni 2008
eftir 60 ára hlé vakti það athygli mína
í leikslok, þetta var 2009, að varla var
þurran hvarm að sjá í salnum. Gamli
gleðileikurinn framkallaði önnur við
brögð áhorfenda en hann hafði skv.
heimildum gert á frumsýningunni á
Broadway 1949. Hvað hafði breytzt?
Söngleikurinn fjallar um sólríkt
lífið á suðurhafseyju í síðari heims
styrjöld, m.a. um hvítan flóttamann
sem verður ástfanginn af hvítri hjúkr
unarkonu og hún af honum nema
það er einn hængur á: hann á tvö lítil
börn, svört. Leikverkið nær tilfinn
ingalegum hápunkti þegar hjúkkan
segist loksins ekki setja blökku
börnin fyrir sig og nagandi kvíði hans
hverfur. Áhorfendurnir í New York
viknuðu: þeir höfðu þá nýlega kosið
fyrsta blökkumanninn forseta sinn,
Barack Obama. Þeir skildu þarna
í leikhúsinu hvers konar umskipti
höfðu átt sér stað.
Boð frá Ósló
Friðarverðlaunanefnd Nóbelsaka
demíunnar í Ósló skildi kjarna
málsins, held ég. Í því ljósi þykir mér
rétt að skoða ákvörðun hennar strax
haustið 2009 að veita Obama for
seta friðarverðlaun Nóbels. Margir
brugðust ókvæða við tíðindunum.
Hvaða gagn hefur hann gert? –
spurðu menn með þjósti, óreyndur
maðurinn. Einmitt það var málið.
Norðmennirnir í nefndinni skildu að
Obama þurfti eflingar við, nýorðinn
forseti Bandaríkjanna tæplega fimm
tugur og flestum á óvart og landið
á heljarþröm af völdum heimabak
aðrar bankakreppu. Og þeir máttu
vita hvað biði hans þegar kyndarar
kynþáttahatursins kæmust í gang.
Fordæmi lá fyrir eða hvað? Lyndon
B. Johnson, þá nýorðinn Bandaríkja
forseti eftir morðið á Kennedy for
seta árið áður, eygði strax 1964 færi á
að koma nýrri mannréttindalöggjöf
gegnum þingið í Washington þar
sem hann var öllum hnútum kunn
ugur. Hann vildi ljúka verkinu sem
Abraham Lincoln forseti hafði byrjað
á hundrað árum fyrr með afnámi
þrælahalds og goldið fyrir með lífi
sínu. Johnson fékk m.a. til liðs við
sig blökkuleiðtogann dr. Martin
Luther King sem sat fundi á skrif
stofu forsetans í Hvíta húsinu, þá 35
ára að aldri. Þar að kom að Johnson
þurfti að segja King að andstaða við
frumvarpið meðal þingmanna demó
krata frá suðurríkjunum, afkomenda
þrælahaldaranna þar suður frá,
væri svo hörð að hyggilegast væri
að skipta löggjöfinni í tvennt og
geyma kosningahlutann til ársins
eftir, 1965. King sagði forsetanum
að það myndu blökkumenn ekki
geta sætt sig við og sagðist mundu
þurfa að skipuleggja mótmælafundi
á vellinum við minnismerki Lincolns
í hjarta höfuðborgarinnar. Johnson
vissi hvað þetta þýddi. Herskarar
blökkumanna og annarra myndu
gera hróp að honum í viðurvist allrar
þjóðarinnar og umheimsins. Sjón
varp var þá komið inn á flest heimili
vestra og víðar.
Hvað gerðist næst? Martin Luther
King fékk símtal frá Ósló þar sem
honum var tilkynnt að hann yrði
sæmdur friðarverðlaunum Nóbels þá
um haustið. Hann fékk nú um annað
um að hugsa: hann þurfti væntan
lega að kaupa sér kjólföt o.fl. Ekkert
varð af mótmælunum. Orð Johnsons
reyndust standa eins og stafur á bók.
Hann keyrði fyrri hluta mannrétt
indalagasetningarinnar í gegnum
þingið 1964 og það sem á vantaði,
kosningahlutann, 1965, eftir að King
hafði farið fyrir þúsundum friðsamra
mótmælenda í 86 km göngu frá
Selmu til Montgomery, höfuðborgar
Alabama, sem var ein helzta mið
stöð ranglætisins gagnvart blökku
mönnum. Fullur sigur vannst.
Tók Nóbelsverðlaunanefndin með
vitaða ákvörðun um að blanda sér í
málið? Kannski ekki. Væri hún spurð
myndi hún vísast þræta.
Skuggar
Barack Obama hefur nú látið af for
setaembætti. Hvergi hefur borið
skugga á feril hans, finnst mér, nema
hann hefði mátt mæla fyrir því að
brotlegir bankamenn yrðu látnir sæta
ábyrgð að lögum og reyna frekar að
stilla til friðar í Austurlöndum nær.
Þeim mun dekkri skugga ber á þá sem
hafa reynt að grafa undan forsetanum
og öllum hans verkum nánast við
hvert fótmál. Þingflokkur repúblikana
barðist harkalega gegn svo að segja
öllum málum forsetans frá byrjun,
m.a. með fordæmalausu málþófi og
með því að keyra alríkisstjórnina í
greiðsluþrot um skeið. Þeim tókst
þó ekki að eyðileggja tvö helztu mál
forsetans, nýjar heilbrigðistryggingar
handa 20 milljónum Bandaríkja
manna sem áður nutu engra slíkra
trygginga og frumkvæði forsetans
ásamt Kínverjum að Parísarsamn
ingnum 2015 um samræmdar aðgerðir
gegn hlýnun loftslags.
Enn voðalegri var hún samt eigin
lega atlagan sem gerð var að forset
anum sem blökkumanni, einkum í
öfgaútvarpi og sjónvarpi. Fremstur
í víglínunni var viðskiptamógúll
inn Donald Trump sem haslaði sér
völl sem stjórnmálamaður meðal
repúblikana með því að halda því
fram ranglega árum saman að Obama
væri fæddur utan Bandaríkjanna og
sæti því í embætti í blóra við stjórnar
skrána. Virðulausara upphaf stjórn
málaferils nokkurs manns er varla
hægt að hugsa sér um okkar daga, og
nú er hann forseti.
Norðmenn vöktu
Hverjum skyldi friðarverðlauna
nefndin í Ósló hafa veitt Nóbels
verðlaunin 2015? Friðarverðlaun
Nóbels 2015 hlaut fereykið – laun
þegasamtök, samtök vinnuveitenda,
mannréttindasamtök og samtök
lögmanna – sem samdi nýja stjórnar
skrá til að renna styrkum stoðum
undir lýðræði í Túnis, eina landinu í
Arabaheiminum sem kom standandi
út úr ryskingum síðustu ára. Arabíska
vorið sem vaknaði í Túnisborg í
desember 2010 þegar niðurlægður
götukaupmaður kveikti í sér til að
mótmæla valdníðslu vakti vonir um
að 330 milljónir manna gætu e.t.v.
loksins losnað undan langvarandi
kúgun. Vonin brást. En Norðmenn
vöktu.
Nóbelsverðlaun og friður
Áhorfend-
urnir í New
York vikn-
uðu: þeir
höfðu þá
nýlega kosið
fyrsta blökku-
manninn
forseta sinn,
Barack
Obama. Þeir
skildu þarna í
leikhúsinu
hvers konar
umskipti
höfðu átt sér
stað.
Í dag
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Ármúla 31 - við hliðina á innréttingar og tæki
hjá Varma Dagana 2.-5. febrúar
Verksmiðju
útsala
afsláttur
40-70%
Opið:
Fimmtud. og Föstud. kl. 17-19
Laugard. og sunnud. kl. 12-15
• Lítið útlitsgallaðar vörur
• vörur sem hættar eru í framleiðslu
• tvinnar og efnisbútar
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 2 . F e B R ú a R 2 0 1 7
0
2
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
5
-6
7
5
8
1
C
2
5
-6
6
1
C
1
C
2
5
-6
4
E
0
1
C
2
5
-6
3
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K