Fréttablaðið - 02.02.2017, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 02.02.2017, Blaðsíða 19
Þegar söngleikurinn South Pacific eftir Rodgers og Hamm­erstein eftir sögu metsöluhöf­ undarins James Michener komst á fjalirnar í New York öðru sinni 2008 eftir 60 ára hlé vakti það athygli mína í leikslok, þetta var 2009, að varla var þurran hvarm að sjá í salnum. Gamli gleðileikurinn framkallaði önnur við­ brögð áhorfenda en hann hafði skv. heimildum gert á frumsýningunni á Broadway 1949. Hvað hafði breytzt? Söngleikurinn fjallar um sólríkt lífið á suðurhafseyju í síðari heims­ styrjöld, m.a. um hvítan flóttamann sem verður ástfanginn af hvítri hjúkr­ unarkonu og hún af honum nema það er einn hængur á: hann á tvö lítil börn, svört. Leikverkið nær tilfinn­ ingalegum hápunkti þegar hjúkkan segist loksins ekki setja blökku­ börnin fyrir sig og nagandi kvíði hans hverfur. Áhorfendurnir í New York viknuðu: þeir höfðu þá nýlega kosið fyrsta blökkumanninn forseta sinn, Barack Obama. Þeir skildu þarna í leikhúsinu hvers konar umskipti höfðu átt sér stað. Boð frá Ósló Friðarverðlaunanefnd Nóbelsaka­ demíunnar í Ósló skildi kjarna málsins, held ég. Í því ljósi þykir mér rétt að skoða ákvörðun hennar strax haustið 2009 að veita Obama for­ seta friðarverðlaun Nóbels. Margir brugðust ókvæða við tíðindunum. Hvaða gagn hefur hann gert? – spurðu menn með þjósti, óreyndur maðurinn. Einmitt það var málið. Norðmennirnir í nefndinni skildu að Obama þurfti eflingar við, nýorðinn forseti Bandaríkjanna tæplega fimm­ tugur og flestum á óvart og landið á heljarþröm af völdum heimabak­ aðrar bankakreppu. Og þeir máttu vita hvað biði hans þegar kyndarar kynþáttahatursins kæmust í gang. Fordæmi lá fyrir eða hvað? Lyndon B. Johnson, þá nýorðinn Bandaríkja­ forseti eftir morðið á Kennedy for­ seta árið áður, eygði strax 1964 færi á að koma nýrri mannréttindalöggjöf gegnum þingið í Washington þar sem hann var öllum hnútum kunn­ ugur. Hann vildi ljúka verkinu sem Abraham Lincoln forseti hafði byrjað á hundrað árum fyrr með afnámi þrælahalds og goldið fyrir með lífi sínu. Johnson fékk m.a. til liðs við sig blökkuleiðtogann dr. Martin Luther King sem sat fundi á skrif­ stofu forsetans í Hvíta húsinu, þá 35 ára að aldri. Þar að kom að Johnson þurfti að segja King að andstaða við frumvarpið meðal þingmanna demó­ krata frá suðurríkjunum, afkomenda þrælahaldaranna þar suður frá, væri svo hörð að hyggilegast væri að skipta löggjöfinni í tvennt og geyma kosningahlutann til ársins eftir, 1965. King sagði forsetanum að það myndu blökkumenn ekki geta sætt sig við og sagðist mundu þurfa að skipuleggja mótmælafundi á vellinum við minnismerki Lincolns í hjarta höfuðborgarinnar. Johnson vissi hvað þetta þýddi. Herskarar blökkumanna og annarra myndu gera hróp að honum í viðurvist allrar þjóðarinnar og umheimsins. Sjón­ varp var þá komið inn á flest heimili vestra og víðar. Hvað gerðist næst? Martin Luther King fékk símtal frá Ósló þar sem honum var tilkynnt að hann yrði sæmdur friðarverðlaunum Nóbels þá um haustið. Hann fékk nú um annað um að hugsa: hann þurfti væntan­ lega að kaupa sér kjólföt o.fl. Ekkert varð af mótmælunum. Orð Johnsons reyndust standa eins og stafur á bók. Hann keyrði fyrri hluta mannrétt­ indalagasetningarinnar í gegnum þingið 1964 og það sem á vantaði, kosningahlutann, 1965, eftir að King hafði farið fyrir þúsundum friðsamra mótmælenda í 86 km göngu frá Selmu til Montgomery, höfuðborgar Alabama, sem var ein helzta mið­ stöð ranglætisins gagnvart blökku­ mönnum. Fullur sigur vannst. Tók Nóbelsverðlaunanefndin með­ vitaða ákvörðun um að blanda sér í málið? Kannski ekki. Væri hún spurð myndi hún vísast þræta. Skuggar Barack Obama hefur nú látið af for­ setaembætti. Hvergi hefur borið skugga á feril hans, finnst mér, nema hann hefði mátt mæla fyrir því að brotlegir bankamenn yrðu látnir sæta ábyrgð að lögum og reyna frekar að stilla til friðar í Austurlöndum nær. Þeim mun dekkri skugga ber á þá sem hafa reynt að grafa undan forsetanum og öllum hans verkum nánast við hvert fótmál. Þingflokkur repúblikana barðist harkalega gegn svo að segja öllum málum forsetans frá byrjun, m.a. með fordæmalausu málþófi og með því að keyra alríkisstjórnina í greiðsluþrot um skeið. Þeim tókst þó ekki að eyðileggja tvö helztu mál forsetans, nýjar heilbrigðistryggingar handa 20 milljónum Bandaríkja­ manna sem áður nutu engra slíkra trygginga og frumkvæði forsetans ásamt Kínverjum að Parísarsamn­ ingnum 2015 um samræmdar aðgerðir gegn hlýnun loftslags. Enn voðalegri var hún samt eigin­ lega atlagan sem gerð var að forset­ anum sem blökkumanni, einkum í öfgaútvarpi og sjónvarpi. Fremstur í víglínunni var viðskiptamógúll­ inn Donald Trump sem haslaði sér völl sem stjórnmálamaður meðal repúblikana með því að halda því fram ranglega árum saman að Obama væri fæddur utan Bandaríkjanna og sæti því í embætti í blóra við stjórnar­ skrána. Virðulausara upphaf stjórn­ málaferils nokkurs manns er varla hægt að hugsa sér um okkar daga, og nú er hann forseti. Norðmenn vöktu Hverjum skyldi friðarverðlauna­ nefndin í Ósló hafa veitt Nóbels­ verðlaunin 2015? Friðarverðlaun Nóbels 2015 hlaut fereykið – laun­ þegasamtök, samtök vinnuveitenda, mannréttindasamtök og samtök lögmanna – sem samdi nýja stjórnar­ skrá til að renna styrkum stoðum undir lýðræði í Túnis, eina landinu í Arabaheiminum sem kom standandi út úr ryskingum síðustu ára. Arabíska vorið sem vaknaði í Túnisborg í desember 2010 þegar niðurlægður götukaupmaður kveikti í sér til að mótmæla valdníðslu vakti vonir um að 330 milljónir manna gætu e.t.v. loksins losnað undan langvarandi kúgun. Vonin brást. En Norðmenn vöktu. Nóbelsverðlaun og friður Áhorfend- urnir í New York vikn- uðu: þeir höfðu þá nýlega kosið fyrsta blökku- manninn forseta sinn, Barack Obama. Þeir skildu þarna í leikhúsinu hvers konar umskipti höfðu átt sér stað. Í dag Þorvaldur Gylfason prófessor Ármúla 31 - við hliðina á innréttingar og tæki hjá Varma Dagana 2.-5. febrúar Verksmiðju útsala afsláttur 40-70% Opið: Fimmtud. og Föstud. kl. 17-19 Laugard. og sunnud. kl. 12-15 • Lítið útlitsgallaðar vörur • vörur sem hættar eru í framleiðslu • tvinnar og efnisbútar s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 2 . F e B R ú a R 2 0 1 7 0 2 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 5 -6 7 5 8 1 C 2 5 -6 6 1 C 1 C 2 5 -6 4 E 0 1 C 2 5 -6 3 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.