Fréttablaðið - 07.02.2017, Qupperneq 8
- lægra verð
Vítamíndagar
afsláttur af öllum vítamínum
20–40%
Vinur við veginn
Þú færð rúðuþurrkurnar og
allar hinar vetrarvörurnar
fyrir bílinn hjá Olís.
Sjáðu betur í vetur
10%
afsláttur
af bílavörum
til lykil- og
korthafa
Japanskir ráðamenn fengu að kanna svæðið árið 2013. Enn er mikil vinna eftir til
að koma öllu í stand. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
JAPAN Geislaálag í kjarnakljúfi tvö
í Fukushima-kjarnorkuverkinu
náði áður óséðum hæðum í liðinni
viku þegar það mældist 530 sívert á
klukkustund. Það er hæsta álag sem
mælst hefur frá kjarnorkuslysinu
sjálfu í mars 2011. Þetta kom fram í
yfirlýsingu frá Tokyo Electric Power
Co. (TEPCO). Hæsta geislaálag sem
mælst hafði hingað til var 73 sívert.
Mælingarnar voru gerðar með
fjarstýrðri myndavél. Sérfræðingar
hlustuðu þá eftir hljóðum og áhrif-
um sem geislunin hafði á mynda-
vélina. Slíkum mælingum getur
skeikað um plús/mínus 30 sívert.
Geislunin er slík að kæmist
manneskja í námunda við hana þó
ekki væri nema í örskamma stund,
myndi það hafa banvæn áhrif. Til að
mynda lætur annar hver maður lífið
eftir að hafa komist í námunda við
geislun upp á fjögur sívert og eins
síverts geislun getur valdið ófrjó-
semi eða hárlosi hjá þeim sem fyrir
henni verður.
Kjarnorkuslysið í Fukushima
átti sér stað í mars 2011 þegar flóð-
bylgja, orsökuð af jarðskjálfta, skall
á kjarnorkuverinu. Afleiðingin var
stærsta kjarnorkuslys frá Cherno-
byl-slysinu árið 1986. Frá slysinu
hefur vinna staðið yfir við að lág-
marka skaðann af því. Óttast er að
þessar niðurstöður muni seinka
þeirri vinnu en hingað til hefur hún
gengið hægt fyrir sig.
TEPCO hafði fyrirhugað að senda
fjarstýrt vélmenni að kjarnaofn-
inum sem átti að þola allt að þús-
und sívert á klukkustund. Tilgangur
ferðarinnar er að kanna skaðann.
Við smíði þess var gert ráð fyrir álagi
allt að 73 sívertum og en við það
álag var gert ráð fyrir að vélmennið
myndi endast í um tíu klukkustund-
ir. Niðurstöður nýjustu mælinga
þýða hins vegar að það myndi ekki
duga nema í um tvær klukkustundir.
Vinna stendur yfir til að kanna hvort
unnt sé að betrum bæta það.
johannoli@frettabladid.is
Geislavirkni í
Fukushima í
hæstu hæðum
Nýjar mælingar frá Fukushima-kjarnorkuverinu
sýna geislun mun meiri en áður var gert ráð fyrir.
Þetta gæti haft áhrif á frekari aðgerðir á svæðinu.
BRETLAND John Bercow, forseti neðri
deildar breska þingsins, er „mjög
andvígur“ því að Donald Trump,
forseti Bandaríkjanna, fái að ávarpa
þingið í opinberri heimsókn til Bret-
lands.
Bercow sagði á þingfundi í gær
að afar mikilvægt væri að þingið
tæki stöðu gegn kynþáttahyggju og
kynjamismunun. Ræðu Bercows var
ákaft fagnað af þingmönnum Skoska
þjóðarflokksins.
„Fyrir undirritun innflytjenda-
tilskipunarinnar var ég andvígur
því að Trump myndi ávarpa þingið.
Eftir undirritun hennar er ég enn
andvígari því,“ sagði Bercow. Hann
bætti því við að einstaklingar þyrftu
að vinna sér inn réttinn til að ávarpa
þingmenn, sá réttur fengist ekki sjálf-
krafa.
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, bauð Bandaríkjaforseta
til Bretlands í síðasta mánuði. Dag-
setning heimsóknarinnar liggur
ekki fyrir ennþá. Tæplega tvær millj-
ónir manna rituðu undir áskorun til
þingsins um að meina Trump að
koma til landsins. Sú umræða mun
fara fram eftir tæpar tvær vikur. – jóe
Trump ávarpi ekki þingið
7 . f E B R ú A R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R8 f R é T T I R ∙ f R é T T A B L A Ð I Ð
0
7
-0
2
-2
0
1
7
0
5
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
D
-F
D
C
4
1
C
2
D
-F
C
8
8
1
C
2
D
-F
B
4
C
1
C
2
D
-F
A
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
6
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K