SÍBS blaðið - 01.01.2007, Page 24

SÍBS blaðið - 01.01.2007, Page 24
24 Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS, er stærsta endurhæfingarstofnun landsins og ber því að vera í fararbroddi rannsókna í endurhæfingu. Í því augna- miði hafa stjórnendur Reykjalundar sett reglur um rannsóknir þar sem segir í inn- gangi: „Reykjalundur, endurhæfingarmið- stöð SÍBS setur sér það markmið að verða virk rannsóknarstofnun í endurhæfingu. Til þess að ná því markmiði er stefnt að því að styðja rannsóknatengd verkefni, bæta möguleika starfsmanna á að verða virkir í rannsóknarvinnu og efla tengsl við háskóla landsins og háskólasjúkrahús. Vísindarannsóknir unnar af starfsfólki Reykja- lundar eru til þess fallnar að auka hróður stofnunarinnar“ En hvers vegna eru vísindarann- sóknir svo mikilvægar fyrir Reykjalund? Með vel uppbyggðum rannsóknum öðlumst við meiri þekkingu á endurhæfingu. Eins getum við fylgst með árangri starfs okkar og metið hvaða aðferðir gagnast best. Svo má ekki gleyma því að í lögum aðildarfélaga SÍBS segir beinlínis að stuðla beri að rannsóknum á þeim sjúkdómum sem félögin snúast um. En þá má líka spyrja, getum við ekki bara stuðst við niðurstöður rannsókna annarra sambærilegra stofnana í hinum vestræna heimi? Mitt svar er nei. Þannig verðum við aldrei í fararbroddi. Þannig verður aldrei hlustað á okkur sem miðstöð þekkingar og reynslu, sem við vissulega erum. Þannig getum við ekki svarað kröfum nútímans um upplýsingar um árangur af þeirri meðferð sem við veitum. Hið opinbera, sem kaupir þjón- ustuna af okkur, gerir sífellt meiri kröfur um slíkar upplýsingar. Stjórnendur Reykjalundar settu á fót vinnuhóp árið 2003 til að koma með tillögur um hvernig styrkja mætti Reykjalund sem virka rannsókn- arstofnun í endurhæfingu. Tillögur vinnuhóp- sins voru þríþættar, þ.e. marka yrði stefnu í rannsóknum, stofna ætti vísindaráð og vís- indasjóð. Í samræmi við tillögurnar voru sam- dar reglur um rannsóknir sem samþykktar voru af stjórn og framkvæmdastjórn Reykjalundar í mars 2004. Þar er sett fram vísindastefna, hlutverk vísindaráðs skilgreint og sagt frá vís- indasjóði. Á fyrsta fundi vísindaráðs, sem haldinn var í júní 2004, var ákveðið að halda vísindadag Reykjalundar þriðja föstudag í nóv- ember ár hvert. Þriðji vísindadagurinn var haldinn í nóvember síðastliðinn og var þá í fyrsta sinn úthlutað úr vísindasjóði Reykjalund- ar, alls tveimur milljónum króna. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi vísindasjóðs og hversu mikil lyftistöng hann er fyrir rannsóknir á Reykjalundi. Með þessari veglegu úthlutun varð fólki endanlega ljóst að það er alvara á bak við fallegu orðin í reglum um rannsóknir á Reykja- lundi. Það er því afar brýnt að tryggja afkomu sjóðsins svo hann megi halda því mikilvæga hlutverki áfram að hvetja til og efla rannsóknir á Reykjalundi. Vísindadagurinn hefur fest sig í sessi og nú síðast voru kynnt 17 veggspjöld og haldin fjögur erindi um rannsóknir starfsmanna á Reykjalundi. Endurhæfing er í eðli sínu þver- fagleg og er ekkert mannlegt óviðkomandi. Það endurspeglast mjög í þeim rannsóknum sem kynntar hafa verið á vísindadegi Reykjalundar. Starfsmenn Reykjalundar hafa mælt og metið allt milli himins og jarðar: lestur og andlega líðan, öndunargetu og úthald, svefn og von og svo mætti lengi telja. Útdrætti rannsóknanna má lesa á heimasíðu Reykjalundar. Í þessu tölublaði SÍBS blaðsins er sagt frá þremur af 21 rannsókn sem kynntar voru á síð- asta vísindadegi og í næsta tölublaði verður sagt frá þremur til viðbótar. 1 Reglur um rannsóknir á Reykjalundi á www.reykjalundur. is 2 Lög aðildarfélaga SÍBS á www.sibs.is Rannsóknir á Reykjalundi D r . . M a r t a . G u ð j ó n s d ó t t i r, . r a n n s ó k n a r s t j ó r i . á . R e y k j a l u n d i R e y k ja lu n d u r

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.