SÍBS blaðið - 01.01.2007, Side 28

SÍBS blaðið - 01.01.2007, Side 28
Faraldursfræðilegar rannsóknir hafa bent mjög ákveðið til að þunglyndi sé sjálfstæður áhættuþáttur kransæða- sjúkdóms. Þunglyndi er einnig algeng- ur fylgikvilli kransæðasjúkdóms og þeir kransæðasjúklingar sem þjást af þunglyndi hafa umtalsvert meiri líkur á að fá ný áföll og dánartíðni þeirra er hærri. Talið er að allt að þriðjungur þeirra sem fá hjartaáföll verði umtals- vert þunglyndir á eftir og þeir leita oftar til lækna og á bráðamóttökur með tilheyrandi kostnaði. Þunglyndir krans- æðasjúklingar eru oft mjög uppteknir af líkamlegum einkennum sem geta líka verið af sálrænum toga svo sem þreytu, úthaldsleysi og framtaksleysi. Faraldursfræðilegar rannsóknir hafa einnig bent til að sjúklingar með kvíð- araskanir séu einnig í aukinni hættu á að deyja úr hjartasjúkdómi. Við ákváðum að kanna algengi þunglyndis og kvíða hjá þeim sem koma til hjarta- endurhæfingar á Reykjalundi og skoða hvernig okkur tekst til með greiningu og með- ferð þessara sjúkdóma, með það í huga að meta hvort ástæða sé til að hefja skimun fyrir þung- lyndi og kvíða hjá þeim sem til okkar koma. Allir sem innrituðust til hjartaendurhæfingar á Reykjalundi frá 1. apríl 2005 til 31. mars 2006 voru beðnir að taka þátt í rannsókninni. Við komu mátu læknir og hjúkrunarfræðingur hvort viðkomandi væri þunglyndur eða kvíðinn og í lok fyrstu viku var lagður fyrir sjúklinginn viðurkenndur staðlaður spurningalisti til grein- ingar á þunglyndi og kvíða (Hospital Anxiety and Depression Scale, HAD). Eftir hefðbundna hjartaendurhæfingu, með nauðsynlegri geð- meðferð til viðbótar, svöruðu svo allir sama spurningalistanum við brottför. Alls tóku þátt 200 einstaklingar, 151 karlmaður og 49 konur, meðalaldur tæplega 62 ár. Alls reyndust u.þ.b. 10% þunglyndir og lítið eitt fleiri með kvíða samkvæmt HAD í lok fyrstu M a g n ú s . R . . J ó n a s s o n . l æ k n i r K a r l . K r i s t j á n s s o n . l æ k n i r Greining og meðferð þunglyndis og kvíða hjá sjúklingum í hjartaendurhæfingu R e y k ja lu n d u r Magnús R. Jónasson. Karl Kristjánsson.

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.