SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 18
SÍBS BLAÐIÐ 2015/218
Á undanförnum árum hafa vinsældir golf íþróttar-
innar aukist gríðarlega. Aðstæður til iðkunar
hafa batnað þrátt fyrir erfitt veðurfar og mögu-
leiki á æfingum innanhúss gerir kylfingum kleift
að æfa einnig yfir vetrartímann. Mikil aukning er
á framboði golfferða til útlanda allan ársins hring
og eftirspurn hefur aukist að sama skapi.
Fyrir alla aldurshópa
Vinsældir golfsins má rekja til margra þátta.
Íþróttin hentar fólki á öllum aldri og er kjörin fjöl-
skylduíþrótt þar sem fjölskyldan getur samein-
ast í gleði og útiveru. Golfið er krefjandi, bæði
líkamlega og hugarfarslega, og stöðugt er hægt
að bæta árangur og setja sér ný markmið.
En til að geta stundað golfið til lengri tíma, notið
þess og náð árangri þarf almenn heilsa að vera
góð og líkamsástandið gott. Þar sem golfhreyf-
ingin krefst mikils samspils milli hreyfanleika,
stöðugleika og nákvæmni eru margir þættir
sem þarf að huga að. Auk líkamlega formsins
vegur jákvætt hugarfar, gott sjálfstraust og góð
einbeiting þungt. Regluleg hreyfing, heilbrigt
mataræði, hugarró og góður svefn eru allt þættir
sem þurfa að vera í jafnvægi til að byggja upp
og viðhalda góðri heilsu. Því er mikilvægt að
skilja samhengið, þekkja líkama sinn, greina
veikleika sína og styrkleika og vinna heildrænt
að því að efla hreysti og fyrirbyggja heilsubrest.
Þrátt fyrir að golfíþróttin innihaldi mikla hreyf-
ingu og góða útiveru er meiðslatíðni ansi há.
Golfhreyfingin eða sveiflan er ósamhverf og
alltaf í sömu áttina. Það eykur hættu á að
ósamræmi myndist milli vöðvahópa sem veldur
óæskilegu álagi á liðamót. Meiðsli hjá kylfingum
geta komið fram hvar sem er í líkamanum.
Algengustu meiðslin eru þó í baki, olnbogum og
öxlum en einnig þarf að huga vel að úlnliðum,
hnjám og mjöðmum.
Hvað þarf góður golfari að hafa?
1. Vöðvastyrk og samræmi milli vöðvahópa
2. Þol og úthald
3. Stöðugleika og jafnvægi
4. Liðleika
5. Góða líkamsvitund og samhæfingu
Vöðvastyrkur og samræmi milli vöðvahópa er
mikilvægt til að hafa vald á sveiflunni og stuðla
að lengra höggi. Styrktarþjálfun styrkir vöðva,
bein og sinar auk þess að auka beinþéttni
og grunnefnaskipti í líkamanum. Dæmi um
styrktaræfingar eru tækja- og lóðaæfingar en
einnig er mögulegt að gera fjölbreyttar æfingar
með eigin líkamsþyngd.
Þol og úthald er einnig mikilvægt til að geta
spilað 18 holur og viðhaldið einbeitingu, en 18
holur samsvara u.þ.b. 10 km göngu. Ýmis ytri
áreiti eins og veður, fuglar og hljóð geta truflað
einbeitingu. Þol- og úthaldsþjálfun bætir starf-
semi hjarta, lungna og æðakerfis. Það eykur
súrefnisupptöku, lækkar hvíldarpúls og eykur
blóðflæði.
Dæmi um þolþjálfun eru röskleg ganga, skokk
og hjólreiðar.
Stöðugleiki og jafnvægi þarf að vera fyrir hendi
til að geta haldið réttri líkamsstöðu og stjórnað
sveiflunni. Stöðugleikaþjálfun byggir á æfingum
sem styrkja innra vöðvakerfi um liðamót og fyrir-
byggir álagsmeiðsl. Dæmi um stöðugleikaþjálfun
eru æfingar á jafnvægisbretti, bolta, jafnvægis-
púða og æfingar sem gerðar eru á öðrum fæti.
Í formi fyrir golfið
Anna Borg, fagstjóri þjálfunar hjá Heilsuborg
Grein
Þrátt fyrir að golf-
íþróttin innihaldi
mikla hreyfingu
og góða útiveru
er meiðslatíðni
ansi há. Markviss
þjálfun er mikilvæg
til að draga úr þeirri
hættu.