SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 29

SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 29
SÍBS BLAÐIÐ 2015/2 29 dóma, sem ekki eru smitandi. Aðferðin er ekki flókin, hún gengur út á það að fá kyrrsetufólk til að stunda hreyfingu. Hreyfingarleysi á heimsvísu hefur samt aukist þó að þekking á þjálfunar- aðferðum sem leiða til bættrar heilsu hafi farið vaxandi. Þessu ástandi er líkt við heimsfaraldur því að það snertir ekki einungis heilsu fólks heldur eru afleiðingarnar einnig efnahagslegar, umhverfislegar og félagslegar. Mikilvægar ábendingar fyrir 65+ Í nýlegri skýrslu frá bandarískum heilbrigðisyfir- völdum eru settar fram mikilvægar ábendingar tengdar heilsu 65 ára og eldri einstaklinga. Helstu þættir sem nefndir eru og stuðla að góðri heilsu eru reglubundin hreyfing, æskileg næring og að forðast tóbaksreykingar. Helstu þættir sem aftur á móti stofna heilsu eldri aldurshópa í hættu eru minnkandi hreyfing, lítil ávaxta- og grænmetisneysla, offita og tóbaksreykingar. Rannsóknaniðurstöður frá 2011 gáfu til kynna að um 33% einstaklinga, 65 ára og eldri, hreyfðu sig ekki, 73% borðuðu færri en fimm ávaxta- og grænmetisskammta á dag, 24% þeirra væru í offituflokki og 8% reyktu. Þessar niðurstöður sýna fram á mikilvægi þess að koma á fót heilsutengdri íhlutun í samfélögum þjóða með það að markmiði að stemma stigu við áhættu- þáttum tengdum heilsuleysi og um leið að auka markvissa hreyfingu og æskilega næringarinn- töku meðal eldri aldurshópa. Íslensk doktorsrannsókn Doktorsritgerð greinarhöfundar var að athuga hvaða áhrif sex mánaða íhlutun, sem byggð var á fjölþættri hreyfingu og ráðleggingum um næringu og heilsu, hefði á helstu útkomubreytur eins og daglega hreyfingu, hreyfigetu, styrk, þol, líkamssamsetningu og þætti tengda hjarta- og æðasjúkdómum. Markmið rannsóknarinnar var jafnframt að skoða áhrif íhlutunar til lengri tíma, eða sex og tólf mánuðum eftir að íhlutun- artímabili lauk. Einnig var athugað hvort áhrif íhlutunar væru ólík meðal eldri karla og kvenna í rannsókninni og hvort hún hefði mismunandi áhrif á ólíka aldurshópa. Með alþjóðlegar ráð- leggingar og sjálfbærni að leiðarljósi var einnig reynt að meta hvort sú aðferð og íhlutun sem beitt var gæti reynst gagnleg fyrir eldri einstak- linga til að viðhalda eða bæta eigin heilsu til lengri tíma. Þátttakendur og fjölþætt þjálfun Þátttakendur í rannsókninni voru 117 og var þeim skipt af handahófi í tvo hópa, fyrri þjálfun- arhóp (56 þátttakendur) og seinni þjálfunarhóp (61 þátttakandi). Að loknum grunnmælingum og skiptingu í þessa tvo hópa stóð þjálfunar- og rannsóknartími yfir á þremur sex mánaða tímabilum. Fyrri þjálfunarhópur tók þátt í 6 mánaða fjölþættri þjálfun, auk þess sem hann fékk næringar- og heilsuráðgjöf. Seinni þjálf- unarhópurinn virkaði sem viðmiðunarhópur í 6 mánuði. Eftir 6 mánaða fjölþátta þjálfun hjá fyrri þjálfunarhópi og biðtíma hjá seinni þjálfunarhópi voru grunnmælingar endurteknar. Þegar þessum mælingum var lokið lauk afskiptum af fyrri þjálfunarhópi en seinni þjálfunarhópur tók þátt í sambærilegri þjálfun og fyrri þjálfunarhópur. Eftir seinna þjálfunartímabilið voru mælingar aftur endurteknar hjá báðum hópum. Þar með lauk afskiptum rannsakenda einnig af seinni þjálfunarhópi. Sex mánuðum eftir að seinni þjálfunarhópur lauk sinni þjálfun voru mælingar endurteknar í fjórða sinn á báðum hópum. Að því loknu lauk rannsókninni formlega en hún stóð yfir í eitt og hálft ár. Þátttakendur í þessari rannsókn voru heilbrigðir einstaklingar á aldrinum 71–90 ára. Þeir höfðu tekið þátt í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar og staðist ákveðnar grunnmælingar sem gengið var út frá. Þessar mælingar tengdust heilsufars- stöðu þeirra og niðurstöðum í SPPB-hreyfifærni- prófi. Af þeim 325 einstaklingum sem höfðu náð 70 ára aldri þáðu 96 þátttöku. Af þessum fjölda uppfylltu 92 kröfur um þátttöku, auk þess sem mökum þátttakenda var boðin þátttaka. Þáðu 25 makar boðið. Helstu ástæður þess að hafna boði voru of langur og bindandi rannsóknartími, áhugaleysi eða veikindi. Mynd 1 sýnir hluta af rannsóknarhópi á æfingum á Laugardalsvelli en þar fóru æfingar meðal annars fram. Mynd 2. Ferli styrktarþjálfunar á rannsóknartíma: Upphitun sem stóð yfir í 10–15 mínútur, styrktarþjálfun sem stóð yfir í um 30 mínútur og niðurlag æfingar sem lauk með teygjum og slökun.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.