SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 30

SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 30
SÍBS BLAÐIÐ 2015/230 Íhlutun rannsóknar Íhlutun rannsóknar fólst í 6 mánaða fjölþættri þjálfun þar sem áhersla var lögð á daglega þolþjálfun og styrktarþjálfun tvisvar í viku. Þessu til stuðnings var ráðgjöf um næringu og fjórir fyrirlestrar um heilsutengda þætti. Þolþjálfun var einstaklingsmiðuð. Hún var fólgin í daglegri göngu á þjálfunartíma, að meðaltali um 30 mín- útur á dag. Styrktarþjálfun fór fram í líkams- og heilsuræktarstöð tvisvar sinnum í viku. Hún var einnig einstaklingsmiðuð og innihélt 12 æfingar fyrir helstu vöðvahópa líkamans, sjá mynd 2. Mælingar Helstu mælingar á öllum tímapunktum voru dagleg hreyfing mæld með sérstökum hreyfi- mælum og stöðluðum spurningalista. Líkams- þyngdarstuðull var mældur með því að deila hæð í öðru veldi (m2) í líkamsþyngd (kg), SPPB- hreyfigetuprófið var framkvæmt og hreyfijafn- vægi mælt með átta feta gönguprófi. Kraftur var mældur í sérhönnuðu kraftmælingatæki og þol mælt með sex mínútna gönguprófi. Heilsutengd lífsgæði voru mæld með stöðluðum spurn- ingalista. Holdafar var mælt með sérstökum myndskanna, DXA-skanna, í Hjartavernd í Kópa- vogi auk þess sem þar fóru allar blóðmælingar fram við kjöraðstæður. Niðurstöður rannsóknar Mælingar í upphafi rannsóknar, bæði með hreyfimæli og spurningalista, sýndu að dagleg hreyfing meirihluta þátttakenda var lítið brot af því sem ráðlagt er eins og áður hefur komið fram. Um 60% þátttakenda hreyfðu sig að jafnaði í 15 mínútur eða minna í hvert skipti sem þeir hreyfðu sig. Þessi útkoma er nokkuð undir alþjóðlegum ráðleggingum. Um 70% þátttakenda stunduðu göngur þrjá daga eða sjaldnar í hverri viku og um 10% þátttakenda stunduðu styrktarþjálfun. Sex mánuðum eftir að 6 mánaða þjálfun lauk gengu um 35% þátt- takenda í 16–30 mínútur í hvert skipti sem þeir stunduðu hreyfingu og 35% þátttakenda eða sama hlutfall gekk í lengri tíma en 30 mínútur. Göngutími hafði því batnað verulegu 6 mán- uðum eftir að þjálfuninni lauk. Göngudagar í hverri viku á þessum tímapunkti voru fjórir eða fleiri hjá rúmlega 50% þátttakenda miðað við upphafsmælingu. Um 40% þátttakenda sögðust ganga tvisvar til þrisvar í viku. Styrktarþjálfunar- dagar hjá þátttakendum á þessum tímapunkti, eða 6 mánuðum eftir að þjálfun lauk, voru tveir eða fleiri hjá um 40% þátttakenda. Tæplega 60% stunduðu enga styrktarþjálfun á þessum tímapunkti. Einu ári eftir að 6 mánaða þjálfun lauk var staðan mjög svipuð og sex mánuðum á undan hjá fyrri þjálfunarhópi. Niðurstöður mælinga á hreyfigetu þátttakenda, hvort sem um er að ræða hópinn í heild, eldri karla eða konur sérstaklega eða mismunandi aldurshópa, sýndu verulega bætingu á þessum útkomubreytum. Þetta á bæði við um heildar- niðurstöður í SPPB-hreyfigetuprófi og í ein- stökum þáttum þess fyrir utan jafnvægi. Þar var getan mjög góð fyrir og því var rými til bætingar lítið. Sama á við um átta feta hreyfi- jafnvægisprófið (e. 8-foot up-and-go test) en þar urðu framfarir miklar. Mynd 3 sýnir framfarir hjá fyrri þjálfunarhópi að lokinni 6 mánaða þjálfun en bæting á sér ekki stað hjá seinni þjálfunar- hópi á sama tímapunkti og munur verður á hóp- unum. Eftir 6-mánaða þjálfun hjá seinni þjálf- unarhópi koma aftur á móti framfarir í ljós og hópurinn nær hinum að getu aftur. Niðurstöður héldust áfram jákvæðar í að minnsta kosti eitt ár hjá fyrri þjálfunarhópi eftir að 6 mánaða þjálfun lauk og í að minnsta kosti sex mánuði hjá seinni þjálfunarhópi (mynd 3). Niðurstöður sex og tólf mánuðum eftir þjálfunartíma Að lokinni 6 mánaða íhlutun kom í ljós aukning á styrk handa og fóta og einnig á 6 mínútna göngu- og þolprófi. Hinar jákvæðu breytingar héldust í gönguprófinu þegar mælingar voru endurteknar 6 og 12 mánuðum eftir að þjálfun lauk. Aftur á móti færðist styrkurinn nær niður- stöðum upphafsmælinga á þessum tíma- punkt um án þess þó að fara niður fyrir upp- haflegu gildin. Líkamssamsetning, þyngd, líkamsþyngdar- stuðull og fitumassi, færðust til betri vegar við lok þjálfunartímabils. Þessar jákvæðu breytingar Mynd 3. Mæling á hreyfiget *** *** *** *** *p < 0,05; **p 0,01; ***p < 0,001 Fyrri þjálfunarhópur Seinni þjálfunarhópur 8,5 8 7,5 7 6,5 6 5,5 5 4,5 4 0 Se kú nd ur (s ) 1 2 3 4 Upphafsmæling beggja hópa Eftir 6 mánaða þjálfun (fyrri þjálfunarhópur Eftir 6 mánaða eftirfylgni (fyrri þjálfunarhópur Eftir 12 mánaða eftirfylgni (fyrri þjálfunarhópur 8 feta hreyfijafnvægi Heildaráhrif; -0.87 s (95% CI: -1.2, -0,6), p<0.001 u, 8 feta hreyfijafnvægi. Eftir sex mánaða þjálfun kom í ljós aukning á styrk og þoli, líkamssam- setning færðist til betri vegar og áhættuþættir hjarta- og æðasjúk- dóma minnkuðu.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.