SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 31

SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 31
SÍBS BLAÐIÐ 2015/2 31 héldust ekki í öllum mælingum þegar þær voru skoðaðar 6 mánuðum eftir íhlutunartíma. Jákvæðar breytingar á vöðvamassa áttu sér einnig stað hjá fyrri þjálfunarhópi að lokinni 6 mánaða þjálfun. Styrkurinn hélst að vísu óbreyttur hjá seinni þjálfunarhópi. Við eftirfylgni- mælingar voru jákvæðu áhrifin horfin. Varðandi mælingar á áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma, þá komu fram jákvæðar breytingar á ummáli á kvið, blóðþrýstingur lækkaði, hið góða kólesteróli (HDL) færðist til betri vegar og hið sama gerðist við mælingar á glúkósa og þríglýseríðum að lokinni 6 mánaða íhlutun. Þessar breytingar héldust flestar sex mánuðum eftir að íhlutunar- og þjálfunartíma lauk, auk þess sem blóðþrýstingur hélt áfram að lækka. Ályktanir að lokinni rannsókn Þessi íslenska rannsókn sýnir mikilvægi þess að fylgjast með stöðu eldri aldurshópa hér á landi. Hún sýnir einnig fram á ávinning af fjölþættri þjálfunaráætlun sem meðal annars innihélt daglega hreyfingu í formi þolþjálfunar og styrktarþjálfun tvisvar í viku. Niðurstöður sýna einnig greinilega að eldri aldurshópar geta haft margvíslegan ávinning af markvissri líkams- og heilsurækt ef tíðni æfinga, tímalengd þeirra og ákefð eða áreynsla er vel skipulögð. Gera má ráð fyrir að þjálfun af þeim toga sem skipulögð var í rannsókninni sem hér um ræðir geti komið í veg fyrir ótímabæra skerðingu á hreyfigetu, unnið gegn áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma og viðhaldið heilsutengdum lífsgæðum eldra fólks. Einnig má gera ráð fyrir að slík þjálfun komi í veg fyrir ótímabæra stofnanavist. Álykta má að þjálfun af þessum toga fyrir eldri aldurshópa ætti að vera þáttur í hefðbundinni heilsugæslu eldra fólks. Niður- stöður þessarar rannsóknar undirstrika jafnframt þörfina á áframhaldandi þróun íhlutunaraðgerða fyrir eldri borgara svo þeir geti sinnt athöfnum daglegs lífs eins lengi og kostur er og búið áfram í eigin húsnæði eins lengi og þeir kjósa án utanaðkomandi aðstoðar eða með lágmarks aðstoð. Fyrir samfélagið, stjórnvöld og sveitarfélög, kalla þessar niðurstöður á sameiginlegar aðgerðir varðandi daglega hreyfingu hjá eldri aldurs- hópum. Setja þarf fram markvissa stefnu og aðgerðaáætlun sem styður við daglega hreyf- ingu og fjölbreytta heilsurækt fyrir þennan aldurshóp. Jafnframt þarf að endurskipuleggja þjónustu og fjármögnun til að forgangsraða hreyfingu, auk þess sem mynda þarf félagsskap til aðgerða með það að markmiði að gefa eldri einstaklingum tækifæri til að taka þátt í fjöl- breyttri heilsurækt og ráðgjöf um næringu. Produktvalsguide TENA Men TENA Men NIVÅ 1 TENA Men NIVÅ 2 TENA Men NIVÅ 3 TENA Lady TENA Lady TENA Lady TENA Lady NORMAL TENA Lady EXTRA 4–8 dl 400–800 ml TENA Pants TENA PantsTENA Pants TENA Pants SUPER (S, M, L, XL) 5–11 dl 500–1100 ml 9–14 dl 900–1400 ml TENA Flex TENA Flex PLUS (S, M, L, XL) TENA Pants TENA Flex SUPER (S, M, L, XL) TENA Flex MAXI (S, M, L, XL) TENA Pants MAXI (M, L) TENA Comfort TENA ComfortTENA Comfort TENA ComfortTENA Comfort TENA Comfort SUPER TENA Slip TENA Slip PLUS (XS, S, M, L) SUPER (S, M, L, XL) TENA Slip MAXI (S, M, L) TENA Slip TENA Comfort TENA Comfort MAXI TENA Lady Discreet, Plus Protective Underwear TENA Men NIVÅ 4 Protective Underwear TENA LadyTENA Lady TENA Lady Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • rv.is Fagleg og persónuleg þjónusta RV U n iq u e 1 01 4 Við leiðbeinum skjólstæðingum SÍ, einstaklingum með þvagleka og aðstandendum þeirra og veitum ráðgjöf varðandi hjúkrunarvörur. Hafðu samband og við sendum þ ér TENA bækling inn. 1 Ráðgjöf og ú rræði vegna þvagl eka Fyrir samfélagið, stjórnvöld og sveitarfélög, kalla niðurstöðurnar á sameiginlegar aðgerðir varðandi daglega hreyfingu hjá eldri aldurs- hópum.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.