SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 17

SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 17
SÍBS BLAÐIÐ 2015/2 17 til að geta lifað eðlilegu lífi með astmanum. Með því að vera í góðri þjálfun hækkar maður þröskuldinn fyrir astmaköstin. Ég hef fundið fyrir því á ákveðnum tímum á ævinni þegar ég hef slegið slöku við, og stundum jafnvel ekki gert neitt, að þá var ég fljótur að finna það í astmanum.“ Einar segir viðhorf fólks til hreyfingar hafa breyst mikið á síðustu árum. „Sérstaklega eftir Hrun. Þá fór fólk að líta sér nær og fór líka finnst mér að sjá náttúruna í nýju ljósi, hvernig hægt væri að njóta hennar jafnvel daglega. Náttúran er svo stutt frá okkur, það er svo auðvelt að fara út og njóta hennar og kostar ekki mikla peninga. Einn stuttur göngutúr úti í náttúrunni getur breytt öllum deginum, gert hann miklu bjartari og skemmtilegri og fært manni svo miklu meiri vellíðan. En það sem er mikilvægt varðandi svona átaks- verkefni er ekkert endilega að þau séu góð í sjálfu sér. Þegar maður breytir um lífsstíl þá er ekki nóg að gera það fyrir einhvern ákveðinn tíma, maður þarf að gera það til frambúðar. Átaksverkefni eru góð til að koma fólki af stað en ég held að þessi verkefni, meðal annars af því þau fara fram á Facebook, þá skiptir máli að vinir þeirra sem eru að gera eitthvað sjái myndir af þeim og lesi um hvað þeir eru að gera og hvernig þeim líður og þá smitar það út frá sér.“ Þjóðleiðirnar heilla Gönguklúbburinn Vesen og vergangur varð til af því Einar hefur svo gaman af að ganga gömlu þjóðleiðirnar. „En þegar maður er einn í slíku er alltaf vesen í sambandi við bíla og þess háttar, að komast til baka ef maður vill ekki labba þá leið líka. Mér datt þá í hug að bjóða vinum mínum á Facebook með mér í þetta. Ég ætlaði að ganga Leggjarbrjót, á milli Þingvalla og Hvalfjarðar, og vildi athuga hvort ekki væri grundvöllur fyrir því að leigja rútu og losna við þetta vesen. Menn tóku vel í þetta og við gátum leigt rútu og fórum þessa ferð. Í framhaldinu fóru menn svo að spyrja hvort við gætum ekki gert eitthvað meira og hvort við ættum bara ekki að stofna klúbb. Og ég gerði það bara, stofnaði gönguklúbb. Næsta ferð var Síldarmannagötur, úr Hvalfjarðarbotni yfir í Skorradal. Og síðan koll af kolli, það voru svo margar ferðir sem mig langaði til að fara og langar til að fara. Og dæmið gekk alltaf upp, alltaf næg þátttaka svo hægt væri að leigja rútu. Svo fórum við að fara í styttri ferðir, upp á fjöll eða meðfram ströndinni, eða hitt og þetta í nágrenni Reykjavíkur.“ Einar Skúlason með konum sem tóku þátt í áskoruninni 100 km á fjórum vikum. Áfram í haust Einar gerir ráð fyrir að samstarf hans og SÍBS haldi áfram. „Ég hugsa að við bjóðum aftur í haust upp á svona áskorun fyrir byrjendur, fólk sem vill komast af stað. Við viljum gjarnan halda þessu við, að vera til staðar öðru hvoru til að bjóða fólki upp á þennan valkost. Svo eru allir vel- komnir að taka líka þátt í ferðum gönguklúbbs- ins. Flestar ferðir á vegum hans kosta ekki neitt, það getur bara hver og einn mætt þegar honum sýnist. Sumir sem byrja hjá okkur hafa einnig farið í aðra gönguklúbba, eins og hjá Ferðafélagi Íslands í prógramminu 52 fjöll, sem snýst um að ganga á eitt fjall í hverri viku ársins. Þannig var til dæmis einn sem byrjaði hjá okkur í haust sem komst varla úr sporunum á jafnsléttu – en um áramótin síðustu var hann mættur til FÍ í 52 fjöll. Svona sjáum við ótrúlegar breytingar hjá fólki, fyrir utan félagsskapinn sem er mjög góður og maður sér oft fólk eignast nýja vini, nýtt og innihaldsríkt líf.“

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.