Femina - 01.08.1946, Page 9

Femina - 01.08.1946, Page 9
Það var aðfall við ströndina, flóðið kom og skall stöð- ugt hærra og hærra upp milli klettanna og öldurnar þeyttu hvítu brimlöðri, sem vindurinn feykti upp frá sjónum Þetta var sólskinsdag í október. Hvass vindur blés ut- an af Kyrrahafinu. Loftið var heitt, rakt og þungt af salti. Máfarnir svifu á kyrrum vængjum yfir klettunum og létu vindinn lyfta sér, en rendu sér síðan á hlið niður að freyð- andi, öskrandi öldunum. Hundrað mílur suður af San Franciscoflóa, gleymd í heila öld, skagaði slétt klöpp út milli klettadranganna, vaxin gulu, veðurbörðu grasi. Niður að sjónum varð kom- ist á tveim stöðum eftir hættulegum einstigum. Uppi á klöppinni stóð ungur maður klæddur snjáð- um ferðafötum, og virti fyrir sér hrikalega klettana til norðurs og suðurs. Öldurnar skullu hvítfreyðandi hver af annarri upp á ströndina, þeyttu löðrinu undan vindinum og soguðust til baka, en fjöldi smáfugla flýttu sér eftir útsoginu og flúðu jafnharðan undan næstu öldu. F E M I N A FRAMHALDSSAGA

x

Femina

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Femina
https://timarit.is/publication/1227

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.