Femina - 01.08.1946, Síða 15

Femina - 01.08.1946, Síða 15
Juanita 7 breytti urn umræðuefni og brosti — „þér eruð víst yngst af Espinosaættinni?“ Hann brosti afar sérkennilega. Það virtist segja Juanita Espinosa, þegar hún brosti á móti, að hún væri kona, yndisleg kona, og að hann, karlmaðurinn væri þess vit- andi. Hún fann að hjarta hennar tók að slá örar, yndis- legur ótti, blandinn æstri gleði streymdi um æðar henn- ar eins og heitt vín. Brátt tóku þau að tala án allrar þving- unar, eins og þau hefðu þekkzt lengi. „Eruð þér í fríi núna?“ spurði hún alvarleg. „Já þetta er fríið mitt“. „Fer vel um yður á gistihúsinu? Ég þekki Fernandez gamla — dóttir hans giftist manninum, sem var ekill hjá okkur — meðan við höfðum ekil“, sagði Juanita. „Og ég held að hann hafi verið fæddur hérna á setrinu. Það voru margir“, bætti hún við án yfirlætis. Kent féll þetta yfirlætisleysi vel. „Ameríska sagan geymir frásagnir um mörg rómantísk tímabil", sagði hann. „En ég held ekki að nein þeirra komist til jafns við söguna um spönsku landnemana í Kaliforníu, ég veit að þér getið sagt mér ýmislegt um for- feður yðar“. „Frá tíma afa míns“, sagði hún, „er ennþá til fólk, sem man eftir sauðarúningunni, þegar þrjú þúsund jarmandi kindur voru í réttinni. Og það man eftir danssamkom- um, sem stóðu þrjá sólarhringa, fiestas; við áttum beztu hestana og beztu nautgripina hérna í allri Kaliforníu. Og þá var alltaf morgun andtakt — söngur, þér vitið, sem allir tóku þátt í. Frænkur mínar hölluðu sér út um glugg-

x

Femina

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Femina
https://timarit.is/publication/1227

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.