Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Qupperneq 2
2 Fréttir Vikublað 19.–21. janúar 2016 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms-lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar-lögmaður Sérfræðingar í líkamstjónarétti „Sveið alveg í augun“ Grunsamlegur óþefur í Norðlingaholti Í búar í Norðlingaholti urðu margir fyrir óþægindum vegna ólyktar sem gaus upp í íbúðum í hverf­ inu á sunnudag. Heilbrigðis­ eftirliti Reykjavíkur hefur verið gert viðvart um málið en þetta er ekki í fyrsta skipti sem íbúar í hverfinu verða fyrir óþægindum af þessum sökum. DV greindi frá því snemma árs 2014 að bensín­ eða hreinsiefna­ lykt hefði gert íbúum lífið leitt. „Það gaus upp mjög sterk leysi­ efnalykt í íbúðinni. Það mætti líkja þessu við að hellt hafi verið úr heil­ um terpentínubrúsa inni hjá okkur,“ sagði íbúi í hverfinu í samtali við DV á sínum tíma. Mun um sams konar óþef að ræða nú og þá. Umræður um þetta fóru meðal annars fram á Facebook­síðu íbúa Norðlingaholts þar sem íbúar í nokkrum götum kvörtuðu undan lyktinni. „Sveið alveg i augun,“ sagði einn íbúi í hverfinu á meðan annar bætti við að hann hefði tilkynnt málið til Heilbrigðiseftirlitsins. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur skoðaði málið árið 2014 en DV er ekki kunnugt um að það hafi fund­ ið hvaðan óþefurinn kom, þrátt fyrir mikla leit. n einar@dv.is Norðlingaholt Megn ólykt gerði íbúum í Norðlinga- holti lífið leitt í gær. MyNd Sigtryggur Ari Grunaður um nauðgun Karlmaður var hand tek inn á sunnudag grunaður um kyn­ ferðis brot á gisti heim ili í Reykja­ vík. Maðurinn var á mánudag úrsk urðaður í gæslu v arðhald til fimmtu dags. Kona lagði fram kæru vegna málsins á sunnudag. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og miðar rannsókn málsins vel að sögn lögreglu. Silicor Materials vill seinka lóðargjöldum Bandaríska fyrirtækið ræðir nú við Faxaflóahafnir um samningana um lóðina á Grundartanga S ilicor Materials á í viðræðum við Faxaflóahafnir um að samningum um lóð, lóðar­ leigu og afnot af höfn á Grundartanga verði breytt og fyrsta gjalddaga bandaríska iðnfyrir­ tækisins seinkað. Samningarnir voru undirritaðir síðasta vor og verða bind­ andi 1. apríl næstkomandi. Silicor þarf þá að greiða fyrstu greiðslurn­ ar fyrir afnot af landinu sem á að fara undir 116 milljarða króna sólarkísil­ verksmiðju fyrirtækisins. „Í samningunum er ákvæði um að fyrirtækið geti gengið frá borði fram að 1. apríl. Það er að fyrirtæk­ ið hafi frest til að ganga frá ákveðn­ um málum til þess tíma. Sú dagsetn­ ing er nú til skoðunar en við eigum eftir að fá upplýsingar frá þeim um hvernig landið liggur. Þetta þýðir augljóslega að þetta mun taka lengri tíma en fyrirtækið hefur áætlað en það er ekki að heyra að það sé bil­ bugur á fulltrúum þess,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Bíða eftir Silicor Fulltrúar Faxaflóahafna og Silicor Materials undirrituðu samninga um úthlutun lóðar á Grundartanga, lóðarleigu og afnot af höfn þann 22. apríl 2015. Á þeim tíma stóð til að framkvæmdir við 121 þúsund fer­ metra sólarkísilverið hæfust haustið eftir. Þær eru ekki enn hafnar og jarð­ vegsvinna Faxaflóahafna, sem eiga lóðirnar á Grundartanga, ekki heldur. „Samningarnir eru í megin­ atriðum á þann veg að við sjáum um ákveðnar framkvæmdir, vega­ gerð, viðlegu fyrir skip og fleira, sem fer ekki af stað fyrr en klárt er að fyrirtækið sé búið með sitt. Það verða engar skuldbindingar af okkar hálfu fyrr en allt er klárt. Þá greiðir Silicor í takt við það,“ segir Gísli. Aðspurður hvað Silicor komi til með að greiða fyrir lóðina á mánuði eftir 1. apríl segist Gísli ekki hafa þær upplýsingar á reiðum höndum. ræða við Landsvirkjun Silicor Materials hóf viðræður um lóð á Grundartanga árið 2013. Áform fyr­ irtækisins spurðust út í febrúar árið eftir þegar Davíð Stefánsson, stjórn­ armaður og ráðgjafi fyrirtækisins á Íslandi, staðfesti við Fréttablaðið að fyrirtækið ætti í viðræðum við Faxa­ flóahafnir og Hvalfjarðarsveit. Fyr­ irtækið vildi þá hefja framkvæmd­ ir haustið 2014 og eftir það framleiða kísilmálm í Hvalfirði með umhverfis­ vænni aðferð sem það hefur einkaleyfi á. Samkvæmt nýjustu fréttum er áætl­ að að framkvæmdir hefjist um mitt þetta ár og kísilverið taki til starfa árið 2018. Davíð segir í samtali við DV að aðrir en hann sjái um viðræðurnar við Faxaflóahafnir. „Samkvæmt okkar áformum munu framkvæmd­ ir hefjast næsta sumar,“ segir Davíð. Verksmiðjan á að framleiða um 19 þúsund tonn af sólarkísil á ári og nota 85 megavött af raforku. Silicor tilkynnti í september síðastliðnum að fyrri hluta fjármögnunar verkefnis­ ins, sem verður á meðal stærstu fjár­ festingarverkefna á Íslandi fyrr og síð­ ar, væri lokið með hlutafjársöfnun upp á fjórtán milljarða íslenskra króna. Ís­ lenskir lífeyrissjóðir og fagfjárfestar lofa sex milljörðum í gegnum félagið Sunnuvelli slhf. en erlendir hluthafar á borð við bandaríska fjárfestinga­ félagið Hudson Clean Energy Partners og þýska iðnfyrir tækið SMS Siemag leggja til rest. Fyrir tækið hefur nú þegar samið við Orku Náttúrunnar (ON), dótturfyrir tæki Orkuveitu Reykjavíkur, um kaup á 40 megavött­ um. Samkvæmt heimildum DV á það nú í viðræðum við Lands virkjun vegna orkunnar sem upp á vantar. n „Það verða engar skuldbindingar af okkar hálfu fyrr en allt er klárt. Haraldur guðmundsson haraldur@dv.is Hafnarstjórinn Gísli Gíslason á von á að niðurstaða fáist á næstu dögum og vikum í viðræðum Faxaflóahafna og Silicor Materials. grundartangi Theresa Jester, stjórnarformaður og forstjóri Silicor Materials, hefur sagt að lágt raforkuverð og fríversl- unarsamningur Íslands og Kína hafi gert útslagið við val á staðsetningu undir verksmiðju fyrirtækisins. MyNd SkeSSuHorN MyNd 2015©PreSSPHotoS.Biz/geirix Fangelsaðir fyrir fölsuð skilríki Tveir karlmenn voru á föstudag dæmdir til 30 daga fangelsis­ vistar fyrir að framvísa fölsuðum skilríkjum í Leifsstöð. Mennirnir voru báðir í gæsluvarðhaldi fram að dómsuppkvaðningu, en ann­ ar þeirra, 33 ára sýrlenskur ríkis­ borgari, hafði komið til lands­ ins 7. janúar. Hinn maðurinn er tvítugur og kom til landsins þann 9. janúar. Hann er frá Síerra Leó­ ne. Mennirnir voru báðir stöðv­ aðir á ferðalagi sínu til Toronto í Kanada, en Sýrlendingurinn var með skilríki grísks manns, en hinn með frönsk skilríki. Þeir ját­ uðu báðir sök og verða vistaðir í fangelsi að frádregnu gæsluvarð­ haldi í 30 daga. Þeim er einnig gert að greiða 180 þúsund króna þóknun verjenda sinna. Ekki kemur fram í dómnum hvort mennirnir hyggist sækja um hæli hér á landi, en ef mennirnir eru flóttamenn má ekki refsa þeim fyrir ólöglega innkomu til lands­ ins, samkvæmt 31. grein Flótta­ mannasamningsins, en Ísland hefur fullgilt samning um réttar­ stöðu flóttamanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.