Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Side 4
4 Fréttir n Burlington Loan Management kaupir 31,8% hlut Arion banka í Klakka n Langstærsti hluthafinn Vikublað 19.–21. janúar 2016 Margnota augnhitapoki Fæst í helstu apótekum og Eyesland Gleraugnaverslun, Glæsibæ Ef augnhvílan er notuð tvisvar á dag með reglulegu millibili hefur hún jafnan jákvæð áhrif á hvarmabólgu (Blepharitis), vanstarfsemi í fitukirtlum, augnþurrk, vogris, augnhvarmablöðrur og rósroða í hvörmum/augnlokum Augnhvilan Augnhvílan er auðveld í notkun og vermir í 10 mínútur í hvert sinn. Hún er einfaldlega hituð í 30 sekúndur í örbylgjuofni og lögð yfir augun. L ögaðilar hafa tækifæri til að endufjárfesta án þess að borga fjármagnstekjuskatt í millitíð­ inni, þó að þeir borgi hann á endanum. Endurskoðandi minn benti á þetta og þess vegna enduðu bréfin þarna,“ segir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteigna­ félags, aðspurður hvers vegna endur­ skoðandi hans hafi ráðlagt honum að færa öll hlutabréf sín í félaginu inni í einkahlutafélagið Burðarbiti. Einkahlutafélagið er alfarið í eigu Garðars sem seldi alla 7.410.461 hluti sína í fasteignafélaginu, á genginu 7,86 krónur, þann 22. desember síð­ astliðinn. Forstjórinn sagði þá í við­ tali við Viðskiptablaðið að tilfærslan á bréfunum væri tilkomin vegna ráðlegginga endurskoðanda hans. Garðar segir í samtali við DV að kaup hans á bréfunum á sínum tíma hafi verið fjármögnuð að mestu með eigin fé. Hann hafi einnig fengið lán­ að og lánveitandinn gefið leyfi fyrir sölunni í desember. Aðspurður vildi Garðar ekki svara hver hefði lánað honum. „Að mestu leyti var þetta eig­ ið fé. Það eru einhver lán á þessu en meirihlutinn er eigið fé.“ n haraldur@dv.is Seldi sjálfum sér hlutabréf í Eik Forstjóri Eikar færði bréf sín inn í einkahlutafélag Forstjórinn Garðar Hannes Friðjónsson. „Herra Ísland“ eykur ítök sín í Lýsingu V ogunarsjóðurinn Burlington Loan Management er orðinn langsamlega stærsti einstaki hluthafi Lýsingar eftir að hafa gengið frá kaup­ um á 31,8% hlut Arion banka í Klakka, sem er móðurfélag fjármögnunar­ fyrirtækisins, undir lok síðasta árs. Voru kaupin gerð í nafni BLM Fjár­ festingar ehf., íslensks dótturfélags Burlington Loan Management, en fyrir átti vogunarsjóðurinn 13,2% hlut í Klakka (áður Exista). Á sjóðurinn því núna samtals 45% eignarhlut í Klakka. Magnús Scheving Thorsteinsson, eini stjórnarmaður BLM Fjárfestinga, staðfestir í samtali við DV að félag­ ið hafi keypt hlutinn af Arion banka en sagðist að öðru leyti ekkert geta tjáð sig um málið þegar hann var spurður um kaupverðið. Er Magnús Scheving jafnframt forstjóri Klakka og stjórnarformaður Lýsingar. Fjár­ málaeftirlitið hefur metið Burlington Loan Management, auk tengdra aðila, hæft til að fara með allt að 50% virk­ an eignarhlut með óbeinni hlutdeild í Lýsingu. Arion banki, sem er að 13% hluta í eigu ríkisins, vildi ekkert tjá sig um söluverðið og sagði það vera „trún­ aðarmál.“ Í skriflegu svari frá bankan­ um kemur fram að hluturinn í Klakka hafi verið auglýstur til sölu á vef bank­ ans um „árabil án þess að honum hafi verið sýndur áhugi. Var svo komið að eignir Klakka höfðu að stærstum hluta verið seldar og hagsmunir bank­ ans hvað félagið varðar orðnir hlut­ fallslega litlir. Því leitaði Arion banka í fyrra til stærstu hluthafa Klakka um að kaupa hlut bankans í félaginu, enda eru hagsmunir þeirra mun ríkari hvað félagið og eignir þess varðar. Sú vinna innan Klakka sem eftir stendur snýr fyrst og fremst að hagsmum erlendra eigenda.“ Auk þess að vera stærsti hluthafi Lýsingar er Burlington Loan Management eini lánveitandi félags­ ins eftir að sjóðurinn keypti 26 millj­ arða skuldir fjármögnunarfyrirtæk­ isins af Deutsche Bank undir árslok 2013. Hefur sjóðurinn því tögl og hagldir innan Lýsingar. Samkvæmt síðasta birta ársreikningi Lýsingar nam skuldin gagnvart vogunarsjóðn­ um 13,8 milljörðum í árslok 2014. Eigið fé Lýsingar var tæplega tíu millj­ arðar í lok árs 2014 og nam hagnaður félagsins 269 milljónum króna eftir skatta. Kröfuhafi Íslands Eigandi Burlington Loan Management er bandaríski vogunar­ sjóðurinn Davidson Kempner Capi­ tal Management en sá sem stýrir starfsemi sjóðsins hér á landi er sem kunnugt er Jeremy Clement Lowe – einnig þekktur sem „Herra Ísland“ eða J. Lo. Sjóðir á vegum Davidson Kempner voru umsvifamiklir í kaup­ um á kröfum á föllnu bankanna og var Burlington Loan Management meðal annars stærsti einstaki kröf­ uhafi Glitnis. Í krafti þeirrar stöðu var Jeremy Lowe á meðal þeirra kröfuhafa sem sóttu upplýsingafundi í London og New York með helstu ráðgjöfum stjórnvalda á vormánuðum síðasta árs þar sem þeim voru kynnt áform stjórnvalda um að ljúka skuldaskilum gömlu bankanna með annaðhvort 39% stöðugleikaskatti eða á grundvelli stöðugleikaskilyrða. Burlington Loan Management er jafnframt í hópi stærstu al­ mennu kröfu hafa gamla Landsbank­ ans. Þá hafa sjóðir á vegum David­ son Kempner einnig keypt hluti í Bakkavör Group á síðustu árum auk þess sem þeir eru taldir vera á meðal stærstu eigenda ALMC, áður Straums­ Burðaráss fjárfestingabanka, í gegn­ um eignarhald sitt á hlutdeildar­ skírteinum í nafni Deutsche Bank AG í Amsterdam. Á meðal stjórnarmanna í Klakka er Matthew Hinds, fjármála­ ráðgjafi Talbot Hughes & McKillop, sem hefur unnið náið með helstu kröfuhöfum Glitnis undanfarin ár, meðal annars Jeremy Lowe. 30 milljarðar í reiðufé Heildareignir Klakka námu 47 millj­ örðum í árslok 2014 og nam hagnaður félagsins sex milljörðum. Tilgang­ ur Klakka er ekki að skila hagnaði af reglulegum rekstri heldur að um­ breyta eignum í laust fé og greiða til eigenda og kröfuhafa í samræmi við ákvæði nauðasamnings frá árinu 2010. Frá þeim tíma hafa greiðslur til þeirra numið samtals 42,6 milljörðum króna. Þannig losaði Klakki að fullu um eignarhlut sinn í VÍS á árinu 2014 þegar félagið seldi samtals 31% hlut í tryggingafélaginu. Eftir þá sölu hefur Lýsing verið langsamlega stærsta eign Klakka. Reiðufé Klakka var 30 milljarðar í ársbyrjun 2015. Þeir fjármunir eru aftur á móti að stórum hluta veðsettir Burlington Loan Management (8 milljarðar) til tryggingar á skuldum samstæðunnar gagnvart sjóðnum og bundnar bankainnstæður sem ekki hefur mátt greiða út sem arð til er­ lendra hluthafa vegna fjármagnshafta (13,5 milljarðar). Þarna er því um að ræða eignir sem Arion banki á ekki tilkall til þrátt fyrir að hafa verið hlut­ hafi í Klakka. Þá ber einnig að líta til þess að samkvæmt ákvæðum nauða­ samnings Klakka þá fara 75% af öll­ um hagnaði Lýsingar aðeins til til­ tekinna erlendra samningskröfuhafa félagsins. Samkvæmt heimildum DV munar þar mestu um Burlington Loan Management en aðrir hluthafar Klakka skipta hlutfallslega jafnt á milli sín 25% af afkomu Lýsingar. n Hörður Ægisson hordur@dv.is SÍ fær 30% hlut í Klakka Á meðal þeirra eigna sem kröfuhafar gömlu bankanna framselja til íslenskra stjórnvalda er eignarhlutur slitabús Kaup- þings og dótturfélaga Glitnis í Klakka. Mið- að við hluthafaskrá Klakka í árslok 2014 þá er um að ræða nærri 30% hlut sem verður afhentur félagi í eigu Seðlabanka Íslands. Tveir stærstu hluthafar Lýsingar verða því annars vegar Burlington Loan Management, umsvifamesti kröfuhafi Íslands, og hins vegar Seðlabankinn. Hlutur Kaupþings í Klakka nemur í dag 17,6%, sem gerir slitabúið að næststærsta hluthafa félagsins, og þá eiga Holt Fund- ing og Haf Funding, írsk skúffufélög í eigu Glitnis, samtals ríflega 11% hlut í Klakka. Stækkar við sig Jeremy Lowe stýrir um- svifum Burlington Loan Management á Íslandi en sjóðurinn er stærsti hluthafi Lýsingar og eini lánveitandi félagsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.