Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Side 9
Fréttir 9Vikublað 19.–21. janúar 2016 H ar ðp ar ke tÞýsk gæði! Ármúli 32, 108 Reykjavík Sími 568 1888 www.parketoggolf.is Útsalan er hafin 30-50% afsláttur af öllum útsölufatnaði Sjáðu úrvalið á tiskuhus.is Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur Sími: 571-5464 Stærðir 38-54 Kanínubúinu bjargað Freistar þess að fá kanínurækt viðurkennda sem landbúnaðargrein É g er afar þakklát öllum sem studdu mig. Karolina Fund er frábær vettvangur fyrir nýsköp- unarverkefni,“ segir Birgit Kos- itzke, kanínubóndi á Syðri-Kára- stöðum. Hún setti af stað söfnun til bjargar kanínubúi sem hún hef- ur byggt upp undanfarin fjögur ár. Eins og DV greindi frá í byrjun árs var Birgit búin að safna 42% af þeim 3.000 evrum sem lagt var upp með. Söfnuninni lauk síðastliðinn föstudag, þann 15. janúar, og niður- staðan var sú að 4.819 evrur söfnuð- ust, tæplega 700 þúsund, og lét 91 aðili fé af hendi rakna. „Það var sér- staklega ánægjulegt hversu margir frá Hvammstanga og nærliggjandi stöðum studdu við bakið á mér, pen- ingarnir eru aukaatriði þegar maður finnur fyrir slíkum stuðningi,“ segir Birgit. Aðspurð um næstu skref segir hún að forgangsverkefni sé að finna samstarfsaðila til þess að hluta niður kanínukjötið. „Annað verkefni er að freista þess að fá kanínurækt formlega viðurkennda sem landbúnaðargrein hérlendis,“ segir Birgit. Hún ætlar einnig að leggja áherslu á markaðs- og kynningarstarf og liður í því er að koma sútuðum kanínuskinnum á framfæri. n bjornth@dv.is Bjargað Brigit er alsæl með hvernig til tókst með söfnunina og horfir björtum augum til framtíðar. Metár hælisuMsókna í uppsiglingu n Tuttugu umsóknir borist frá áramótum n Alls fengu 82 einstaklingar hæli hérlendis í fyrra Fyrsti hópur sýrlenska flóttafólksins sem boðin hefur verin búseta hér á landi kemur í dag, þriðjudag, með flugi frá Beirút. Hópurinn samanstendur af sex fjölskyld- um, þar af eru 13 fullorðnir og 22 börn. Af fjölskyldunum sex munu fjórar setj- ast að á Akureyri, eða 23 einstaklingar. Barnshafandi kona sem fyrirhugað var að kæmi ásamt fjölskyldu sinni reyndist ekki fær um að takast á hendur ferðalag- ið og frestast því koma þeirra til landsins. Hinar tvær fjölskyldurnar sem um ræðir setjast að í Kópavogi. Velferðarráðuneytið hefur gert samninga við Akureyri, Kópavog og Hafnarfjörð um móttöku 55 sýrlenskra flóttamanna. Ráðgert var að fólkið kæmi til landsins í lok desember sl. en af óviðráðanlegum ástæðum reyndist það ekki mögulegt. Þrjár fjölskyldur til viðbótar, sem höfðu lýst áhuga á að setjast að á Íslandi, hættu við að koma. Flótta- mannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur í samvinnu við íslensk stjórnvöld undirbúið komu hóps flóttafólks í stað þeirra sem sáu sér ekki fært að koma að sögn ráðuneytisins og er stefnt er að því að sá hópur komi innan fárra vikna. Fólkið mun setjast að í Hafnarfirði og Kópavogi. „Ég veit að sveitarfélögin hafa undir- búið sig vel á allan hátt og munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fólkinu líði vel og finni að það er meðal vina. Rauði krossinn mun miðla af reynslu sinni og þekkingu í sama skyni og það er virkilega ánægjulegt að vita hvað sjálf- boðaliðar hafa reynst boðnir og búnir að bjóða fram stuðning sinn og aðstoð við að taka á móti fólkinu og aðstoða það meðan það er að átta sig á aðstæðum hér og kynnast samfélaginu,“ segir Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra. Eygló leggur áherslu á að móttaka flóttafólks verði áfram viðfangsefni íslenskra stjórnvalda og að í undirbúningi sé móttaka fleiri hópa á þessu ári. Treystu sér ekki til að koma Fyrstu kvótaflóttamennirnir koma í dag Fengu hæli Kastrijot og Xhula Pepoj fengu ríkis- borgararétt á dögunum, en þau koma frá Albaníu. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.