Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Side 16
Vikublað 19.–21. janúar 20162 Íslenskt sjávarfang - Kynningarblað
Gaman að framleiða viðurkennda hollustuvöru
T
radex ehf. er matvæla
vinnsla sem sérhæfir sig í
framleiðslu á harðfiski og
bitafiski með kældri þurrk
aðferð. Halldór Halldórs
son, framkvæmdastjóri og annar
eigenda Tradex, segir tilganginn
með kæliþurrkuninni vera að
viðhalda ferskleika og næringar
gildi matvælanna en við þurrkun
ina, þar sem einungis vatn er dreg
ið úr vörunni, eykst prótíninnihald
fiskflakanna úr 18% í 84% að sögn
Halldórs.
Fiskur stór hluti heilbrigðs
mataræðis
„Sérstaða okkar er kæliþurrkun,
sem gerir það að verkum að fersk
leikinn heldur sér í gegnum þurrk
ferlið. Við framleiðum lyktarminni
og bragðmildari harðfisk en al
mennt gerist. Það fellur stærstum
hluta neytenda vel. Ekki síst yngra
fólki og erlendum ferðamönnum,“
segir Halldór. „Markmið okkar er
að stækka neytendahópinn veru
lega, enda er fiskneysla nauðsyn
legur hluti heilbrigðs mataræðis.
Það er gaman að framleiða og selja
viðurkennda hollustuvöru,“ bætir
hann við.
Með lausnir fyrir ungu
kynslóðina
„Sívaxandi hópur, ekki síst yngra
fjölskyldufólk, virðist vera að
átta sig á því að það þarf ekki að
neyða fiskinn ofan í ungu kyn
slóðina heldur bjóða henni rétta
vöru: bitafiskinn frá okkur. Einn
200 gramma poki af bitafiski inni
heldur sömu næringu og eitt kíló
af ferskum flökum, eða sem sam
svarar einni máltíð fyrir vísitölu
fjölskylduna,“ segir Halldór.
Gullskífurnar einstök vara
„Auk magnpakkninga bjóðum við
líka minni pakkningar sem eru
hlutfallslega dýrari. Kannski meira
í ætt við það sem raunverulega
þarf til þess að reka fyrirtæki með
mikla fjárfestingu, starfsfólk, hrá
efnis og raforkunotkun. Það er
annar markaður og önnur hugs
un en sú sem rekur okkur til þess
að keppast við að bjóða lágt verð
á stórpakkningum,“ segir Hall
dór. Hann bætir við: „Við erum til
dæmis að framleiða svonefndar
Gullskífur. Þar er áherslan lögð á
að framleiða einstaka vöru, með
Mynd SiGurður ÓlaFur SiGurðSSon