Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Side 17
Vikublað 19.–21. janúar 2016 Kynningarblað - Íslenskt sjávarfang 3
Gaman að framleiða viðurkennda hollustuvöru
miklu nostri. Vinnuliðurinn einn
og sér við Gullskífur er til dæm-
is fimmfaldur miðað við bitafisk.
Það, ásamt smærri pakkningum,
gerir að verkum að Gullskífur eru
dýrasta varan okkar. En hún er
samt mjög vinsæl, enda er alltaf til
hópur fólks sem vill gæðavöru af
og til og er tilbúinn að borga sann-
virði fyrir,“ segir Halldór.
Tradex með nokkur vörumerki
Harðfiskvörur Tradex eru seldar
í nokkrum vörumerkjum. Á Ís-
landi eru vörumerkin Gullfiskur og
Gæðafiskur hvað þekktust, en jafn-
framt selur Tradex harðfisk undir
vörumerkinu Viking Snack. Þar er
ekki síst verið að höfða til sístækk-
andi hóps ferðamanna, sem margir
hafa áhuga á séríslenskum vörum.
Útflutningur mikill
Halldór segir útflutning skipa stór-
an sess hjá Tradex ehf. „Þar erum
við einungis að litlu leyti að selja
eigin vörumerki. Í stað þess pökk-
um við fyrir erlend vörumerki,
sem eru með harðfisk sem eina af
mörgum vörum undir sínu merki.
Við viljum hafa sem allra minnsta
yfirbyggingu í okkar fyrirtæki, enda
þurfum við hagkvæmni og gott
skipulag á öllum sviðum til þess að
geta boðið samkeppnishæft verð á
sama tíma og við erum með lang-
dýrustu framleiðsluaðferðina,“
segir Halldór. „Þess vegna reynum
við ekki að vinna erlenda markaði
undir eigin vörumerkjum, ef það er
hagstæðara að vinna með öðrum
sem hafa aðgang að markaðnum
og dreifingarkerfum í viðkomandi
landi.“
Búa til hágæða
gæludýranammi
Tradex framleiðir einnig hágæða
gæludýranammi úr manneldis-
hæfu hráefni. Vörurnar eru aðal-
lega seldar í Bretlandi og í Banda-
ríkjunum í samstarfi við virtustu
fyrirtækin í gæludýrabransanum
í hvoru landi. „Þetta er allt annar
markaður en í harðfiskinum, en
þó ekki síður krefjandi. Þessi við-
skipti hafa verið byggð upp hægt
og rólega, en grunnurinn að því
er að við höfum haft Ísland sem
reynslumarkað. Við höfum ótrú-
lega sterka stöðu á Íslandi fyrir
gæludýra nammið okkar. Því hefur
verið vel tekið frá upphafi, sem
hefur reynst okkur ómetanlegt við
að byggja upp útflutninginn,“ segir
Halldór.
Spurður um framtíðina, þá telur
Halldór að hún geti orðið björt.
„Við verðum aldrei stórgróðafyrir-
tæki. Sú stefna okkar, að láta gæð-
in vera í fyrsta sæti og bjóða jafn-
framt samkeppnishæft verð, gerir
það að verkum. En með vaxandi
útflutningi og aukinni neyslu á
innanlandsmarkaði, þá getum við
náð ágætri afkomu. Reksturinn
hefur alltaf verið heilbrigður og
enginn borið skarðan hlut frá borði
í viðskiptum við okkur. Það er fyrir
öllu,“ segir Halldór. n
„Sérstaða okkar er
kæliþurrkun, sem
gerir það að verkum að
ferskleikinn heldur sér í
gegnum þurrkferlið. Við
framleiðum lyktarminni
og bragðmildari harð-
fisk en almennt gerist.
Það fellur stærstum hluta
neytenda vel. Ekki síst
yngra fólki og erlendum
ferðamönnum.
Mynd Sigurður Ólafur SigurðSSon