Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Qupperneq 17
Vikublað 19.–21. janúar 2016 Kynningarblað - Íslenskt sjávarfang 3 Gaman að framleiða viðurkennda hollustuvöru miklu nostri. Vinnuliðurinn einn og sér við Gullskífur er til dæm- is fimmfaldur miðað við bitafisk. Það, ásamt smærri pakkningum, gerir að verkum að Gullskífur eru dýrasta varan okkar. En hún er samt mjög vinsæl, enda er alltaf til hópur fólks sem vill gæðavöru af og til og er tilbúinn að borga sann- virði fyrir,“ segir Halldór. Tradex með nokkur vörumerki Harðfiskvörur Tradex eru seldar í nokkrum vörumerkjum. Á Ís- landi eru vörumerkin Gullfiskur og Gæðafiskur hvað þekktust, en jafn- framt selur Tradex harðfisk undir vörumerkinu Viking Snack. Þar er ekki síst verið að höfða til sístækk- andi hóps ferðamanna, sem margir hafa áhuga á séríslenskum vörum. Útflutningur mikill Halldór segir útflutning skipa stór- an sess hjá Tradex ehf. „Þar erum við einungis að litlu leyti að selja eigin vörumerki. Í stað þess pökk- um við fyrir erlend vörumerki, sem eru með harðfisk sem eina af mörgum vörum undir sínu merki. Við viljum hafa sem allra minnsta yfirbyggingu í okkar fyrirtæki, enda þurfum við hagkvæmni og gott skipulag á öllum sviðum til þess að geta boðið samkeppnishæft verð á sama tíma og við erum með lang- dýrustu framleiðsluaðferðina,“ segir Halldór. „Þess vegna reynum við ekki að vinna erlenda markaði undir eigin vörumerkjum, ef það er hagstæðara að vinna með öðrum sem hafa aðgang að markaðnum og dreifingarkerfum í viðkomandi landi.“ Búa til hágæða gæludýranammi Tradex framleiðir einnig hágæða gæludýranammi úr manneldis- hæfu hráefni. Vörurnar eru aðal- lega seldar í Bretlandi og í Banda- ríkjunum í samstarfi við virtustu fyrirtækin í gæludýrabransanum í hvoru landi. „Þetta er allt annar markaður en í harðfiskinum, en þó ekki síður krefjandi. Þessi við- skipti hafa verið byggð upp hægt og rólega, en grunnurinn að því er að við höfum haft Ísland sem reynslumarkað. Við höfum ótrú- lega sterka stöðu á Íslandi fyrir gæludýra nammið okkar. Því hefur verið vel tekið frá upphafi, sem hefur reynst okkur ómetanlegt við að byggja upp útflutninginn,“ segir Halldór. Spurður um framtíðina, þá telur Halldór að hún geti orðið björt. „Við verðum aldrei stórgróðafyrir- tæki. Sú stefna okkar, að láta gæð- in vera í fyrsta sæti og bjóða jafn- framt samkeppnishæft verð, gerir það að verkum. En með vaxandi útflutningi og aukinni neyslu á innanlandsmarkaði, þá getum við náð ágætri afkomu. Reksturinn hefur alltaf verið heilbrigður og enginn borið skarðan hlut frá borði í viðskiptum við okkur. Það er fyrir öllu,“ segir Halldór. n „Sérstaða okkar er kæliþurrkun, sem gerir það að verkum að ferskleikinn heldur sér í gegnum þurrkferlið. Við framleiðum lyktarminni og bragðmildari harð- fisk en almennt gerist. Það fellur stærstum hluta neytenda vel. Ekki síst yngra fólki og erlendum ferðamönnum. Mynd Sigurður Ólafur SigurðSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.