Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 19.–21. janúar 20164 Íslenskt sjávarfang - Kynningarblað Ferskur fiskur í stórmarkaði F iskverslun Hafliða sparar við- skiptavinum sínum sporin með því að vera með verslun- ina staðsetta inni í Krónunni í Lindunum. „Með þessu þurfa viðskiptavinir okkar ekki að fara á tvo staði og erum við þar með að spara þeim sporin og tíma,“ segir Eiríkur Auðunn Auðunsson, rekstrarstjóri Fiskverslunar Hafliða. Eina sérrekna fiskbúðin í stórmarkaði „Þetta er nýjung og ég veit ekki til þess að þetta sé annars staðar á Ís- landi: að það sé boðið upp á sér rekið fiskborð í stórmarkaði,“ segir Eiríkur. „Móttökurnar hafa verið hreint út sagt mjög góðar. Fólk er mjög fegið að geta slegið tvær flugur í einu höggi og þurfa þar með ekki að fara á tvo staði þegar það verslar fyrir heimil- ið. Salan hjá okkur eykst stöðugt hjá okkur og erum við mjög jákvæð hvað varðar framtíðina,“ segir Eiríkur. Gæðin í fyrirrúmi „Við leggjum áherslu á að bjóða upp á ferskan og góðan fisk. Við bjóðum upp á fjölbreytta fiskrétti sem gæla ekki aðeins við bragðlaukana heldur eru líka fallegir fyrir augað,“ segir Eiríkur. „Allir réttirnir okkar bera nöfn eftir svæðunum eða miðunum sem fiskurinn er veiddur á og má þar nefna Breiðafjarðarfláka, Eld- eyjabanka, Lónsdjúp, Sporðagrunn, Rósagarðinn, Rifsbanka og Kötlu- grunn svo nokkur dæmi séu nefnd,“ segir Eiríkur. Innihaldslýsingar fylgja með „Við bjóðum upp á framsækna rétti og það fylgja innihaldslýsingar með þeim öllum eins og öðrum vörum okkar. Það eru innihaldslýsingar á öllu sem við seljum. Það er ekki í neinni annarri fiskverslun,“ segir Ei- ríkur. „Það munar miklu fyrir fólk sem er með einhvers konar ofnæmi og óþol að vita nákvæmlega hvað er í vörunum okkar og fá réttar upplýs- ingar hvað það varðar,“ bætir hann við. Leggja mikið upp úr nýjungum „Við erum dugleg að koma með nýjar og ferskar hugmyndir. Við leggjum mikið í réttina okkar. Þeir eru skrautlegir og vel framsettir. Gaman er að nefna líka maríner- ingar sem við erum að fara að byrja með, til að selja í lausu. Þá verð- ur mögulegt fyrir viðskiptavini að versla maríneringu alveg sér, bæði fyrir fisk og kjöt,“ segir Eiríkur. „Hægt er að skoða úrvalið sem við bjóðum upp á á facebooksíðu okkar sem er uppfærð reglulega þannig að viðskiptavinir geti séð hvað er í boði daglega,“ segir hann. Verslunin er opin, að öllu jöfnu, á sama tíma og Krónan fyrir utan séropnun. Því er opið alla daga frá kl. 10.00 til 20.00. n Mynd ÞorMar VIGnIr Gunnarsson Mynd ÞorMar VIGnIr GunnarssonMynd ÞorMar VIGnIr Gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.