Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Side 25
Vikublað 19.–21. janúar 2016 Kynningarblað - Íslenskt sjávarfang 11
Ferskur fiskur og mikið
úrval af fiskréttum
Fiskbúðin Sundlaugavegi 12
F
iskbúðin Sundlaugavegi 12 er
ein elsta fiskbúðin á höfuð
borgarsvæðinu en frá 1947 hefur
verið fiskbúð í þessu húsnæði.
Högni Snær Hauksson sér um
rekstur búðarinnar á Sundlaugavegi
og hefur starfað þar í sex ár. „Við erum
með ferskan fisk daglega og mikið úr
val af fiskréttum,“ segir Högni.
Bjóða upp á humarsúpu,
plokkfisk og fiskibollur
„Við leggjum mikið upp úr að bjóða
aðeins upp á ferskt hráefni og mik
ið úrval,“ segir Högni. „Það er líka
gaman að segja frá því að við búum
til okkar eigin humarsúpu á staðnum,
plokkfisk og fiskibollur. Þegar kemur
að plokkfisknum og bollunum þá not
um við uppskriftir sem eru frá 1986 og
hafa fylgt Fiskbúðinni Sundlaugavegi
síðan þá,“ bætir hann við. „Þar af leið
andi hefur myndast hefð sem við ætl
um okkur að halda við,“ segir hann.
Tilbúnir fiskréttir
„Við bjóðum upp á fjölbreytta fisk
rétti sem eru tilbúnir og þægileg
ir til eldunar,“ segir Högni. „Það ætti
því að vera auðvelt fyrir alla að finna
eitthvað við sitt hæfi. Auk þess er úr
valið af fiski yfir höfuð mjög gott hjá
okkur. Sem dæmi má nefna reykta
ýsu, gellur, kinnar, þorsk, keilu, stein
bít, lax, bleikju og margt fleira,“ segir
Högni.
Þorrinn handan við hornið
„Þar sem það styttist í þorrann erum
við komin með súra hvalinn ásamt
hákarlinum, salt og kryddsíldar
flök og harðfiskinn til dæmis,“ segir
Högni. „Það er vert að nefna að við
bjóðum upp á súra hvalinn og hákarl
inn allt árið um kring ásamt kæstri
skötu,“ bætir hann við. Það er opið
mánudag til fimmtudags frá kl. kl.
09.00 til 18.30, föstudaga kl. 09.00 til
18.00 og laugardaga frá kl. 11.00 til
14.00. Högni sér til þess að Facebook
síða verslunarinnar er mjög virk og
geta viðskiptavinir nálgast upplýs
ingar um ýmiss konar tilboð sem eru
í gangi hverju sinni sem og um úrval
fiskverslunarinnar. n
myndir Þormar Vignir gunnarsson