Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Qupperneq 25
Vikublað 19.–21. janúar 2016 Kynningarblað - Íslenskt sjávarfang 11 Ferskur fiskur og mikið úrval af fiskréttum Fiskbúðin Sundlaugavegi 12 F iskbúðin Sundlaugavegi 12 er ein elsta fiskbúðin á höfuð­ borgarsvæðinu en frá 1947 hefur verið fiskbúð í þessu húsnæði. Högni Snær Hauksson sér um rekstur búðarinnar á Sundlaugavegi og hefur starfað þar í sex ár. „Við erum með ferskan fisk daglega og mikið úr­ val af fiskréttum,“ segir Högni. Bjóða upp á humarsúpu, plokkfisk og fiskibollur „Við leggjum mikið upp úr að bjóða aðeins upp á ferskt hráefni og mik­ ið úrval,“ segir Högni. „Það er líka gaman að segja frá því að við búum til okkar eigin humarsúpu á staðnum, plokkfisk og fiskibollur. Þegar kemur að plokkfisknum og bollunum þá not­ um við uppskriftir sem eru frá 1986 og hafa fylgt Fiskbúðinni Sundlaugavegi síðan þá,“ bætir hann við. „Þar af leið­ andi hefur myndast hefð sem við ætl­ um okkur að halda við,“ segir hann. Tilbúnir fiskréttir „Við bjóðum upp á fjölbreytta fisk­ rétti sem eru tilbúnir og þægileg­ ir til eldunar,“ segir Högni. „Það ætti því að vera auðvelt fyrir alla að finna eitthvað við sitt hæfi. Auk þess er úr­ valið af fiski yfir höfuð mjög gott hjá okkur. Sem dæmi má nefna reykta ýsu, gellur, kinnar, þorsk, keilu, stein­ bít, lax, bleikju og margt fleira,“ segir Högni. Þorrinn handan við hornið „Þar sem það styttist í þorrann erum við komin með súra hvalinn ásamt hákarlinum, salt­ og kryddsíldar­ flök og harðfiskinn til dæmis,“ segir Högni. „Það er vert að nefna að við bjóðum upp á súra hvalinn og hákarl­ inn allt árið um kring ásamt kæstri skötu,“ bætir hann við. Það er opið mánudag til fimmtudags frá kl. kl. 09.00 til 18.30, föstudaga kl. 09.00 til 18.00 og laugardaga frá kl. 11.00 til 14.00. Högni sér til þess að Facebook­ síða verslunarinnar er mjög virk og geta viðskiptavinir nálgast upplýs­ ingar um ýmiss konar tilboð sem eru í gangi hverju sinni sem og um úrval fiskverslunarinnar. n myndir Þormar Vignir gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.