Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Side 26
Vikublað 19.–21. janúar 201612 Íslenskt sjávarfang - Kynningarblað
Humarsalan býður aðeins
upp á hágæða hráefni
H
umarsalan er sölu-
fyrirtæki sem sérhæf-
ir sig í sölu á humri fyr-
ir innan landsmarkað.
Fyrirtækið býður verslun-
um, veitingahúsum, veisluþjónust-
um og einstaklingum upp á gæða
humar frá Skinney-Þinganesi á
Hornafirði. „Við erum sérfræðingar
í sjávarfangi og bjóðum aðeins
upp á hágæða hráefni,“ segir Guð-
jón Vilhelm Sigurðsson, eigandi
Humarsölunnar.
Humarsalan tákn um gæði
Humarsalan var stofnuð í janúar
2004. „Markmið okkar er að bjóða
upp á fyrsta flokks humar allt árið
um kring og veita fyrirtaks þjón-
ustu,“ segir Guðjón. Fljótlega eftir
stofnun fyrirtækisins var viðskipta-
vinum einnig boðið upp á skötusel-
skinnar, sem njóta mikilla vin-
sælda. „Orðstír fyrirtækisins hefur
jafnt og þétt vaxið og má með sanni
segja að merki Humarsölunnar sé
tákn um gæði,“ segir Guðjón.
Með hráefni í hæsta klassa
Humarsalan dreifir og selur humri
frá Skinney-Þinganesi á Hornafirði.
„Við bjóðum aðeins upp á hráefni í
hæsta klassa frá öflugustu humar-
útgerð landsins,“segir Guðjón. „Það
hefur löngum loðað við Horna-
fjörð að þar sé besta humarinn að
fá,“ bætir hann
við. Humarsalan
selur einnig aðr-
ar afurðir Skinn-
eyjar-Þinganess.
Mikið af nýjung-
um í gegnum árin
Humarsalan býður
upp á breitt úrval af humri í
skel og án skeljar, risarækju, hörpu-
skel og rækju, saltfisk, skötusels-
kinnar, steinbítskinnar, túnfisk og
fleira. Á vörulista Humarsölunnar
hafa verið að
bætast við
nýjungar í
gegnum árin,
og koma við-
skiptavinir
Humarsölunn-
ar orðið víða að
úr heiminum að
sögn Guðjóns. Humar-
salan býður einnig veitingahús-
um erlendis upp á íslenskar sjávar-
afurðir og hefur sú þjónusta orðið
sífellt vinsælli. n