Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 27
Vikublað 19.–21. janúar 2016 Sport 15
Við erum sterkari andlega
n Sverre er sannfærður um endurkomu íslenska liðsins n Ekki landsliðsmenn að ástæðulausu
V
arnarleikur byggist upp á
því að ná trausti manna á
milli og stemningu. Það
rofnaði í þessum leik og
menn fóru að vinna meira
sjálfstætt,“ segir Sverre Jakobsson,
landsliðsmaður í handknattleik til
margra ára, beðinn um að greina
hvað klikkaði í varnarleik íslenska
liðsins í leiknum við Hvít-Rússa á EM
í Póllandi. Þessi mikli varnarmaður
er nú í fyrsta sinn í langan tíma ekki
með liðinu á stórmóti. Hann segist
hafa setið stressaður og spenntur fyr-
ir framan sjónvarpið – eins og aðr-
ir handboltaáhugamenn – þegar Ís-
lendingar töpuðu með minnsta mun
fyrir Hvít-Rússum.
Varnarleikurinn, sérgrein Sverre,
var í molum í leiknum, enda fékk Ís-
land á sig metfjölda marka. Hinum
megin vallarins voru sömu menn,
að uppistöðu, í banastuði. Þeir léku
við hvern sinn fingur í sókninni.
Hvernig fer það saman, að sömu leik-
menn séu í banastuði öðrum megin
vallarins, en alls ekki þegar hlaupið
er aftur fyrir miðlínu? Sverre segir að
ef hann hefði svar við því væri hann
ekki að þjálfa á Íslandi heldur senni-
lega í hópi heimsins eftirsóttustu
fyrirlesara heims. Íþróttir séu bara
stundum svona. „Það er alltaf þessi
sama ráðgáta,“ segir hann.
Hefði sett Guðjón framar
Aðspurður segir Sverre ekki auðvelt
að segja til um hvort hægt hefði ver-
ið að bregðast öðruvísi við mótlætinu
í leiknum við Hvít-Rússa. Hann
nefnir þó að stundum hafi lands-
liðinu reynst ágætlega að setja Guð-
jón Val fyrir framan vörnina og jafn-
vel taka menn úr umferð. „Við höfum
gert það af og til, kannski í smá
tíma. Svo kannski dottið
niður aftur. Það er kannski
eitthvað sem mér datt í
hug að hefði verið hægt
að prófa. En þjálfarinn
stendur bara og fellur
með þeim ákvörðunum
sem hann tekur.“
Hann segist hafa
veitt því athygli að
ákveðið óöryggi hafi
magnast upp í varnar-
leiknum. „Þá fara menn
að bakka undan mönn-
um í stað þess að taka
slaginn. Þá koma skotin yfir
mann og sjálfstraustið
dettur niður. Það eru
bara eðlileg
viðbrögð.
Maður finnur ekki tenginguna við
markvörðinn og næstu menn í vörn-
inni og upplifir sig einan. Þegar all-
ir upplifa þetta sama verður erfitt að
búa til tengingu.“
Hann tekur fram
að á köflum í
fyrri hálfleik
hafi vörnin
staðið ágæt-
lega en að
síðustu 20
mínútur
leiksins
hafi
verið
sérstak-
lega erfiðar. „Sem gömlum varnar-
manni var leiðinlegt að sjá þetta ekki
smella.“
Allt getur gerst
Þó að síðasti leikur hafi verið slæmur
hefur Sverre engar áhyggjur af liðinu.
Það hafi stundum þurft að taka sig
saman í andlitinu á skemmri tíma en
nú, en Íslendingar og Króatar standa
bæði frammi fyrir því að geta dottið
úr leik ef þeir tapa. Annað liðið gæti
þó komist áfram ef úrslit í leik Norð-
manna og Hvít-Rússa verða hag-
stæð. Vinni Norðmenn í dag, þriðju-
dag, verða Íslendingar að ná jafntefli
eða sigra Króatíu. Ef Hvít-Rússar
vinna eru Íslendingar komnir áfram í
milliriðil en leikurinn við Króatíu
ræður því hvort Íslendingar fara
með 0, 1 eða 2 stig áfram. Jafn-
tefli í leik Noregs og Hvít-Rússa
þýðir að við þurfum að fá stig
út úr okkar leik. Það getur þó
ýmis legt gerst.
Sverre, sem spáði því fyrir
mót að Íslendingar færu langt í
mótinu, hefur enn bullandi trú
á strákunum okkar. Þeir hafi
margoft áður bitið frá sér
þegar bakið er kom-
ið upp við vegg. Það
hafi gerst í Austur-
ríki 2010 þegar Ís-
lendingar unnu
Dani í lokaleik
riðilsins og komu
heim með
brons. Þá hafi
margir verið
búnir að af-
skrifa liðið
á HM í
Þýskalandi 2007, þegar liðið tapaði
á móti Úkraínu, en valtaði svo yfir
Frakka og komst í 8-liða úrslit.
Ekki landsliðsmenn að
ástæðulausu
Hann segir að strákarnir okkar séu
ekki landsliðsmenn að ástæðulausu.
Þeir séu andlega sterkir og þraut-
reyndir. „Þetta verður mjög forvitni-
legur leikur. Ég held að við séum
sterkari andlega en Króatar – sem
lið. Það er mín upplifun af þessum
liðum.“ Hann segir mikilvægt að byrja
leikinn við Króata vel og að vörnin
endurheimti sjálfstraustið sem hún
á að geta haft. „Björgvin þarf að
verja tvo eða þrjá bolta snemma –
þá myndast tenging og grunnur til
að byggja á. Það væri óskandi. Ég hef
mikla trú á því að þeir nái þessu úr sér
á morgun,“ segir Sverre og bendir á að
liðið hafi leikið tvo fína leiki við Þjóð-
verja og annan við Norðmenn mjög
nýlega. Það sé því allt of snemmt að
afskrifa liðið.
Sameiginleg ákvörðun
Hann á ekki von á að Ísland muni um-
bylta varnarleiknum gegn Króötum,
þó að liðinu hafi gengið illa að stöðva
Hvít-Rússa. Hann gerir þó ráð fyrir
því að varnarleikurinn verði eitthvað
lagaður að styrkleikum Króata. „Ég
held að þeir prófi áfram að vinna að
því sem þeir hafa verið að gera og
hafa svo plan B ef það klikkar.“ Hann
segir að það sé ákvörðun sem þeir
sem spila vörnina taki sameiginlega
á fundum í aðdraganda leiksins við
Króata. „Þetta verður rætt fram og til
baka á vídeófundum.“ Hann viður-
kennir aðspurður að hafa klæjað í
fingurna þegar hann fylgdist með
strákunum á móti Hvít-Rússum. Það
hafi verið erfitt að horfa upp á vörn-
ina klikka. „Auðvitað klæjaði mig – en
mig klæjaði líka á móti Norðmönnum
þegar okkur gekk vel.“ n
„Það verður
einn leikur“
Guðjón Valur Sigurðsson landsliðs
fyrirliði kallaði eftir því fyrir mótið að
fá einn leik þar sem allt væri undir. Það
gerði hann í Handvarpinu, hlaðvarpi
Vísis, fyrir mótið. „Það verður einn
leikur sem verður allt eða ekkert leikur.
Ég vil fá að komast í svoleiðis leik og fá
svoleiðis stund. Guðjóni verður að ósk
sinni í dag, gegn Króötum. Þar verður
allt undir. „Þar fáum við að sjá hvar við
stöndum og fyrir hvað menn eru búnir
að vera að æfa fyrir,“ sagði fyrirliðinn.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Barátta Vignir Svavarsson verður í lykilhlutverki í vörninni í leiknum við Króata. Hann þarf að finna fjölina sína, eins og aðrir varnarmenn liðsins. myndir EpA
Landsliðsskórnir á hilluna
Krafta Sverre Jakobssonar nýtur
ekki við lengur.
Áfram Ísland! Íslenskir stuðningsmenn hafa látið vel í sér heyra á mótinu.