Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Page 30
18 Menning Vikublað 19.–21. janúar 2016 Byrjendur á miðjum aldri V ið höfum fylgst með Julie Delpy verða fullorðinni í sólar­ lagsmyndum Linklaters og á síðustu árum höfum við séð hana verða að ágætis leikstjóra líka. Delpy reynir ekki að flýja aldurinn heldur tekst á við hann fullum fetum. Hér segir frá tveimur miðaldra konum sem fara í heilsulind og kynn­ ast óhjákvæmilega tveimur pipar­ sveinum. Framan af er eins og að um leiðarvísi fyrir byrjendur á fimmtugs­ aldri sé að ræða. Nei, maður getur ekki fengið eyðni af því að kyssa ein­ hvern og já, það að sýna sig með stór­ an fisk virkar. Frúin snýr síðan heim með karl­ inn í eftirdragi og kynnir hann fyrir tvítugum syni sínum. Allt er hér búið í haginn fyrir þroskaða gamanmynd um það þegar mamma ákveður að byrja upp á nýtt á miðjum aldri. En því miður fer raunsæið fljótt út um gluggann. Sonurinn reynist djöfull í „Myndin virðist vera einhvers konar óttafantasía manneskju sem ekki tekst að sam- eina það að vera bæði ástkona og móðir. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir Lolo Handrit og leikstjórn: Julie Delpy Aðalhlutverk: Julie Delpy og Dany Boon Siðferðilega vafasamar barnabækur Negrastrákar, reykjandi kúreki og staðalímyndir kynjanna í Erilborg Á fyrstu æviárunum eru mann­ eskjur sérstaklega hrifnæmar og áhrifagjarnar. Það er því mikilvægt að bækurnar sem þær lesa nýti áhrifamátt sinn til góðs – hvort sem það er með því að virkja ímyndunarafl þeirra eða gagnrýna hugsun, auðga húmor eða siðferði. Margir barnabókahöfund­ ar leggja mikið upp úr góðum sið­ ferðilegum boðskap verka sinna. En siðferði er ólíkt á mismunandi stöðum og mismunandi tímum. Því getur barnabók sem þykir góð á ein­ um tíma þótt siðferðilega vafasöm eða hreinlega skaðleg á öðrum. Í dag erum við sérstaklega meðvituð um staðalímyndir og fordóma sem finna má í barnaefni. Margar klass­ ískar barnabækur eru satt best að segja gamaldags og fordómafullar. En þá vaknar spurningin: eigum við að henda bókinni, breyta henni eða lesa bara áfram? DV kíkti á örfáar barnabækur sem deilt hefur verið um á undanförnum árum. n Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Uppvöxtur KKK-liða Uppvöxtur litla trés var upphaflega kynnt sem endurminningar frá æskuárum höf- undarins Forrest „Litla trés“ Carter. Sagan segir frá ungum dreng sem kynnist ömmu sinni og afa sem eru Cherokee-indjánar. Bókin seldist nokkuð vel og náði boðskapur náttúruverndar, ein- falds lífsstíls og hinar dulúðugu frumbyggja- hugmyndir vel til fólks. Hún sló svo rækilega í gegn þegar hún var endurútgefin í kilju árið 1991. Á þeim tíma var því loks ljóstrað upp að höfundurinn hét í raun Asa Earl Carter og hafði verið hátt settur í hinum rasísku samtökum Ku Klux Klan. Hann skrifaði ræður og bauð sig fram til ríkisstjóra í Alabama með það fyrir augum að viðhalda aðskilnaði kynþátta í ríkinu. Þó að margir telji bókina einlæga þá álíta aðr- ir hana meðvitaða blekkingu höfundarins til að gera lítið úr hippalegum hugmyndum fjölmenningarsinna. Hann hefur verið sakaður um staðlaðar og grunnar myndir af menningu frumbyggja Ameríku. Eftir að upp komst um bakgrunn höfundarins tók Oprah Winfrey bókina af meðmælalista sínum, en meðmæli hennar höfðu átt nokkurn þátt í vinsældum bókarinnar. Kynjajöfnuð Erilborg Bækurnar tvö hundruð og fimmtíu um Erilborg (e. Busytown) eftir Richard Scarry verða seint bendlaðar við kynþátta- fordóma enda öll dýrin í borginni vinir, hvort sem þau eru kettir, mýs, kanínur, ormar eða bjarndýr. En hins vegar voru kynhlutverkin mjög skýr til að byrja með: kvendýrin voru með svuntur og staðsettar í eldhúsinu á meðan karldýrin sinntu vinnu utan heimilisins, þær voru flugfreyjur en þeir flugmenn, þær hjúkrunarkonur en þeir læknar. Bækurnar hafa þó smám saman breyst með breyttum viðhorfum. Scarry sam- þykkti breytingar þar sem kvendýrin taka að sér fjölbreyttari hlutverk og karldýrin sinna barnauppeldi og matseld til jafns við konur. Þá hafa verið tekin niður tákn sem hafa þótt niðrandi, til að mynda fyrir frumbyggjaþjóðir Ameríku. Doddi og að- skilnaðarstefnan Breski rithöfundurinn Enid Blyton er einhver vinsælasti barnabókahöfundur allra tíma, en í seinni tíð hefur hún verið nokkuð umdeild vegna kynþáttafordóma, kynjamismununar og stéttahroka í bókum sínum. Hún skrifaði til dæmis þekkta bókaröð um hin fimm fræknu og sögurnar um spýtu- drenginn Dodda í Leikfanga- landi. Í bókunum um Dodda eru góðu persónurnar hvítar og ljóshærðar en Doddi þarf að varast nágranna sína, svikulu og þjófóttu svartálfana í Svartálfaborg. Algjör aðskilnaður ríkir milli borganna en allt fer í háaloft þegar Doddi heimsækir Svart- álfaborgina. Upprunalegu teikningarnar af svartálfunum, eftir Harmsen Van Der Beek, minna um margt á skrípamyndir af svörtu fólki sem áður hafa verið nefndar. Þegar fyrsta nýja bókin um Dodda í 45 ár var gefin út í Bretlandi árið 2009 var ákveðið að sleppa svartálfunum algjörlega úr sögunni. Önnur lýti Blyton hafa einnig verið skorin burt því tungumáli í bókunum um hin fimm fræknu hefur verið breytt nokkuð – að minnsta kosti í bresku útgáfunni. Bæði hefur tungutak verið fært nær samtímanum, svo börn í dag skilji hvað í þeim stendur, en á sama tíma hefur niðrandi orðum um undirokaða þjóðfélagshópa verið breytt. Negrastrákar eru menningarverðmæti Bókin Negrastrákarnir um tíu litlu negrastráka sem deyja einn af öðrum var þýdd úr bandarísku þulunni Ten Little Niggers. Svipaðar vísur eru til um aðra undirokaða þjóðfélagshópa, svo sem frumbyggja Ameríku. Vísan kom fyrst út á bók á íslensku árið 1922 og var myndskreytt af myndlistarmanninum Muggi (Guðmundi Thorsteinsson). Myndirnar byggja á hefðbundnum niðrandi skopmyndateikningum af svörtu fólki eins og viðgengust á 19. öld og í byrjun 20. aldar. Negrastrákarnir eru hálfnaktir í lendaskýlum, með lág enni, stórar rauðar varir og útstæð augu. Vísurnar voru mjög vinsælar á Íslandi og hafa verið margútgefnar í bókum og á hljómplötum og fluttar í skólum og á skólaskemmtunum. Bókin var síðast endurútgefin 2007 af Skruddu. Við endurútgáfuna upphófust nokkrar deilur þar sem ýmsir töldu rangt að endurútgefa barnabók sem byggði á fordómafullum staðalímyndum en aðrir vörðu óbreyttu endurútgáfuna og sögðu hana menningarsöguleg verðmæti. Engum sérstökum formála var bætt við bókina þar sem breyttar hugmyndir um jafnrétti kynþátta voru útskýrðar. Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði, rannsakaði og greindi umræðuna um útgáfuna og var niðurstaða hennar að innflytjendum á Íslandi þótti bókin lýsa fordómum, en innfæddir Íslendingar skiptust í tvær fylkingar sem tóku sterka andstæða afstöðu til bókarinnar. Í dag geta birna verið lögga í Erilborg og fress passað kettlingana

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.