Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Qupperneq 2
2 Fréttir Vikublað 9.–11. febrúar 2016 Vilja ekki taka þátt í eymdartúrisma E ymdartúrismi er ákveðið fyrir- brigði og ég vil ekki taka þátt í slíku. Þess vegna undirbjó ég ferðina af kostgæfni með það í huga að við gætum raun- verulega gert gagn. Ég er handviss um það,“ segir Eva Davíðsdóttir, sem þann 16. febrúar heldur til eyjunnar Lesbos í Grikklandi, ásamt kærasta sínum, Stephen Andersson, til þess að starfa sem sjálfboðaliði norsku hjálpar- samtakanna Dråpen i Havet. „Það er mikil neyð þarna niður frá enda liggur straumur flóttamanna frá ströndum Tyrklands og yfir til Lesbos. Óstað- festar heimildir herma að það séu um 1.000 manns á sólarhring,“ segir Eva. 240 fórust í janúar Flóttamennirnir ferðast yfir Mytilini- sund, um fimm kílómetra leið, á van- búnum gúmmíbátum. Fyrir ferðina hafa flóttamennirnir yfirleitt borgað hátt verð og haldið er af stað í skjóli nætur. Í janúar síðastliðinn fórust um 240 flóttamenn og frá Lesbos hafa heyrst hryllingssögur, til dæmis um að landrými undir grafir sé uppurið. „Við höfum eins og allir fylgst með fréttum af ástandinu og vildum leggja hönd á plóginn. Það er mikill skortur á sjálfboðaliðum og því ákváðum við að láta vaða. Prófessorinn okkar í há- skólanum benti okkur á þessi hjálpar- samtök, sem okkur leist mjög vel á,“ segir Eva. Vilja bara koma að gagni Dagarnir verða hins vegar langir og strangir á grísku eyjunni og skötuhjúin geta ekki verið vandlát á þau störf sem þau þurfa að vinna. „Við verðum að vinna á allt að 18 klukkustunda vökt- um, allan sólarhringinn. Eitt af verk- efnunum verður að afhenda komandi flóttafólki þurr föt og næringu, en einnig er mikill skortir á fólki til þess að flokka þann varning sem hjálpar- stofnanir hafa fengið gefins til þess að dreifa til flóttamanna. Okkur stend- ur í raun á sama um hvaða verkefn- um við endum í, bara að við komum að sem mestu gagni,“ segir Eva. „Ferð okkar mun ekki enda þarna“ Eva og Stephen búa í Stavanger í Noregi en þar kynntu- st þau í há- skólanámi. Stephen er frá New Hampshire í Banda- ríkjun- um og hefur lagt stund á nám krísu- stjórnun en Eva lýkur bráðlega mastersgráðu í breytingastjórnun. „Áhersla mín í náminu er á samfé- lagslega ábyrgð fyrirtækja. Ég dvaldi á Indlandi í sex mánuði við rannsóknir vegna verkefnisins,“ segir Eva en að hennar sögn hafa þau Stephen ferðast afar mikið og upplifað ýmislegt. „Við höfum bæði reynslu af að vinna að þróunarmálum, meðal annars með Amnesty International. Við höfum hins vegar aldrei starfað á vettvangi með þessum hætti fyrr. Við höfum mikinn áhuga á þessum málum og ferð okkar mun ekki enda þarna,“ segir Eva. Hún mun dvelja á Lesbos í vikutíma en Stephen hefur ekki enn bókað sína ferð heim og gæti því orðið lengur. Safna fötum og fjármunum Til þess að Eva og Stephen geti haft sem mest áhrif á meðan þau dvelja á Lesbos þá hafa þau sett af stað söfn- un á peningum og fatnaði, sem þau hyggjast taka með sér, eins mikið og þau geta, og dreifa til flóttamanna. „Söfnunin á fatnaði gengur vel en við erum sérstaklega að reyna að safna hlýjum ullarfatnaði. Við getum hins vegar aðeins tekið með okkur tak- markað magn og fjármunina sem safnast munum við nýta, í sam- starfi við samtökin, til þess að kaupa ýmsa nauðsynjavöru fyrir flóttafólkið,“ segir Eva. Sjálf hafa þau þegar greitt fyrir sína ferð, flug, gistingu og uppihald og því mun allt renna til nauð- staddra. n Eva og Stephen halda til eyjunnar Lesbos á næstu dögum til að aðstoða flóttafólk í neyð Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Eva og Stephen Ferðast til Lesbos um miðjan feb rúar. „Við höfum eins og allir fylgst með fréttum af ástandinu og vildum leggja hönd á plóginn Hættuför Ungur drengur kemst heilu og höldnu á land á Lesbos. Alls fórust um 240 flóttamenn á þess- um slóðum í janúarmánuði. Áfram í varðhaldi Gæslu v arðhald yfir tveim ur mönn um sem eru grunaðir um að hafa framið vopnað rán í úti- búi Lands bank ans í Borgartúni þann 30. des em ber hefur verið framlengt. Gæsluvarðhaldið á að gilda þar til dómur fellur í mál- inu, en þó ekki lengur en til 7. mars næstkomandi. Mennirnir komust undan á flótta með litla fjármuni úr bankanum. Annar maðurinn var fljótlega handtek- inn og hinn gaf sig fram eftir að lýst var eftir honum. Mennirnir hafa játað og hafa áður komið við sögu lögreglunnar. Sleppt eftir hópslagsmál Karlmennirnir fjórir sem voru handteknir eftir að hópslagsmál brutust út í Skeifunni á laugardag eru allir af erlendum uppruna. Lögreglan veit ekki enn hvers vegna tveir hópar manna slóg- ust með kylfum og hamri. Þetta upplýsti Friðrik Smári Björgvins- son, yfirlögregluþjónn á höfuð- borgarsvæðinu, í gær, mánudag. Mönnunum hefur verið sleppt úr haldi en þeir voru enn á vettvangi átakanna þegar lögreglumenn bar að garði um kvöldmatar- leytið á laugardag. Talið er að allt að þrjátíu manns hafi tekið þátt í slagsmálunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.