Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Side 15
Fréttir Erlent 15Vikublað 9.–11. febrúar 2016 Í S L E N S K H Ö N N U N O G S M Í Ð I LAUGAVEGI 61 KRINGLUNNI SMÁRALIND V A R M A D Æ L U R Gæði, þjónusta og gott verð. Hámarks orkusparnaður. NÝJUNG Í LOFT Í VATN VARMADÆLUM EINFÖLD Í UPPSETNINGU ÁLAGSSTÝRÐ HLJÓÐLÁT ALLT AÐ 80% ORKUSPARNAÐUR ÍBÚÐARHÚS - SUMARBÚSTAÐ - IÐNAÐARHÚS COP 5,0 Vissir þú þetta um Bernie Sanders? Vill skattleggja mengun „Það að afstýra yfirvofandi umhverfishörmungum mun krefjast þess að stórlega verði dregið úr brennslu á kolum, olíu og öðru jarðefnaeldsneyti,“ skrif- aði Sanders í Huffington Post árið 2014. Þar birtist sú skoðun hans að kolefnisskattur væri áhrifaríkasta leiðin til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Aftarlega í peninga­ kapphlaupinu Sanders hefur aðeins safnað helmingi þess fjár sem framboð Hillary Clinton hefur aflað í kosninga- baráttunni. Hillary Clinton hefur safnað 163,5 milljónum dollara, svipaðri upphæð og Jeb Bush. Framboð Sanders hefur safnað 75,1 milljón dollara og er hann fimmti í röðinni. Þess má geta að Bernie hefur hafnað framlög- um frá Super-PAC, eða ofur- nefndum, sem eru nefndir sem starfa óháð flokkum eða einstökum frambjóðendum og þurfa ekki að lúta lögum og reglum um hámarksframlög. Vanur að tapa Sanders hefur tapað nokkrum þýðingarmiklum kosningum á ævinni. Þar af voru nokkrar á árunum áður en hann náði kjöri sem bæjarstjóri í Burlington, embætti sem hann gegndi yfir fjögur tveggja ára kjörtímabil. Frá því hann tap- aði kjöri til formanns bekkjar- ráðs í framhaldsskóla á sjötta áratugnum, hefur Sanders tapað sex kosningum. 20 ár á þingi Sanders hefur verið öldunga- deildarþingmað- ur í meira en 20 ár, sem fulltrúi Vermont. Hann var óháður þingmaður þar til í fyrra þegar hann gekk til liðs við Demókrata. Var handtekinn Frambjóðandinn barðist ötullega fyrir borgaralegum réttindum á sínum yngri árum. Árið 1963 var hann handtekinn, á baráttufundi gegn aðskilnaði kynþátta í skólum landsins, í Chicago. Sanders er gyðingur eins og áður segir, fæddur í Bandaríkjunum. Faðir hans var innflytjandi frá Póllandi en fjölskyld- an lést í helförinni. Höfðar til ungu kynslóðarinnar Hillary Clinton vann slaginn um Iowa með minnsta mun, öllum að óvörum. Sanders nýtur yfirburðastuðn- ings á meðal ungra demókrata. Stuðningur kjósenda undir þrítugu við Sanders reyndist 84% í Iowa, á meðan Clinton fékk 14%. Í aldurshópnum 30 til 44 ára vann hann Clinton með 58% á móti 37% atkvæða. Á meðal eldri kjósenda snýst dæmið algjörlega við. „Byssur í Vermont eru ekki það sama og byssur í Chicago eða í Los Angeles „Það að afstýra yfir­ vofandi umhverfis­ hörmungum mun krefjast þess að stórlega verði dregið úr brennslu á kolum, olíu og öðru jarðefnaeldsneyti Hlébarði særði sex Réðst á fólk í skóla í Bangalore á Indlandi S ex særðust við að reyna að klófesta hlébarða sem birtist skyndilega í skóla í borginni Bangalore í Indlandi á sunnu­ dag. Um tíu tíma tók að handsama dýrið en á meðal þeirra sem særð­ ust voru vísindamaður, myndatöku­ maður og starfsmaður skógræktar. Talið er að stofn hlébarða telji á bil­ inu 12 til 14 þúsund dýr í Indlandi en uppákomur sem þessar verða sí­ fellt algengari, enda er sífellt þrengt að búsvæðum dýranna. Hlébarðinn, sem spásseraði inn á skólalóðina í Vibgyor International School, var átta ára gamalt karldýr. Í tíu klukkustundir reyndu menn að króa dýrið af og deyfa. Þau áform báru loks árang­ ur og var hlébarðinn fluttur út í skóg þar sem honum var sleppt. Upp­ tökur úr eftirlitsmyndavélum sýna glöggt hvernig dýrið réðst á þá sem fyrir því urðu, en BBC greinir frá. Skólinn er staðsettur í nágrenni skógar og þaðan er dýrið talið hafa komið. „Það var þrautin þyngri að ná honum. Jafnvel þó að hann hafi verið skotinn með deyfilyfi náðum við honum ekki fyrr en um korter yfir átta um kvöldið, þegar lyfið hafði náð fullri virkni,“ sagði lög­ reglumaðurinn S. Boralingaiah við fréttamenn. Fólkið slasaðist ekki alvarlega. n baldur@dv.is Blóðug barátta Hér sést karlmaður reyna að verjast árás hlébarðans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.