Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Side 20
Vikublað 9.–11. febrúar 20164 Verkstæði og varahlutir - Kynningarblað Netpartar ehf. Umhverfisvænt og með 75.000 vörunúmer á lager N etpartar ehf. er verslun með notaða varahluti. Fyrirtækið er staðsett rétt sunnan við Selfoss. Hjá fyrirtækinu vinna tíu manns og allir hlutir eru keyrðir til verkstæðanna í Reykjavík tvisvar á dag, auk þess sem sent er út um land allt. Netpartar er með sam- starfssamninga við bæði Sjóvá og TM um kaup á tjónabifreiðum, en hvati tryggingafélaganna til að semja við fyrirtækið, og fleiri á sín- um tíma, var m.a. að auka fram- boð af notuðum varahlutum og gera þá að aðgengilegri og fýsi- legri kosti fyrir verkstæðin. Þegar bíll hefur lent í tjóni er hann met- inn af hlutlausum aðila/millilið sem ákvarðar verðið til Netparta. Það enda ekki allir tjónabílar í þessu ferli og aldrei bílar þar sem um banaslys er að ræða. Tjóna- bifreiðar frá tryggingafélögunum eru verðmetnir af þriðja aðila og þegar fyrirtækið kaupir bílinn er hann afskráður og Netpartar er þá skuldbundið til að rífa hann. Bíll- inn er síðan skoðaður, allt sem er heilt og seljanlegt er skráð inn á lager og fastanúmer bílsins verður hluti af vörunúmeri varahlutanna. Allir hlutir ástandsmetnir Allir hlutir eru ástandsmetnir og upplýsingar eins og árgerð og hve mikið bíllinn er ekinn, vélarstærð og tegund, eru hluti af þeim upplýs- ingum sem skráðar eru inn og þess gætt að rekjanleiki sé ávallt til stað- ar. Þegar flett er í lagernum er jafn- framt hægt að sjá myndir af bíln- um og upplýsingar úr ökutækjaskrá, sem er nauðsynlegt, t.d. þegar verið er að meta hvort vélar passi á milli bíla. Allir hlutir eru í ábyrgð hjá Net- pörtum eins og lög gera ráð fyrir og reynist hlutur ekki í lagi þá er hann tekinn til baka og endurgreiddur ef ekki tekst að útvega annan í staðinn. Umhverfisvæn endurvinnsla Lagerinn telur nú um 75.000 vöru- númer og er allur aðgengilegur á netinu. Netpartar hefur innleitt gæðaeftirlitskerfi sem er vottað af Bíl- greinasambandinu og nú nýlega fékk fyrirtækið umhverfisvottun á starf- semina. Í dag skilgreinir Netpartar sig sem umhverfisvæna endur- vinnslu á notuðum bifreiðum. Allt úr bifreiðinni er flokkað til endursölu og endurvinnslu. Það sem ekki nýtist sem varahlutur er þá hráefni, eins og járn, ál, gúmmí, plast o.s.frv. n Aðalheiður Jacobsen framkvæmdastjóri Netparta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.