Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Side 23
Vikublað 9.–11. febrúar 2016 Kynningarblað - Verkstæði og varahlutir 7
Bílrúðumeistarinn: Lærður bifreiðasmíðameistari sér um allar rúðuísetningar
Allt á einum stað þegar
skipta þarf um rúðu
Þ
egar bílrúða brotnar eða
fær á sig sprungu er gott
að hringja í Bílrúðumeist-
ararann, Dalvegi 18, Kópa-
vogi, í síma 571-1133, og
panta tíma. Eftir það er séð um
allt sem á að gera á einum stað,
hratt og örugglega. „Það fer rafræn
sending frá okkur á trygginga-
félagið þannig að viðskiptavinur-
inn þarf aldrei að vera í neinu sam-
bandi við það frekar en hann vill.
Það er mikilvægt að þetta sé ekki
flókið fyrir viðskiptavininn. Hann
geti bara hringt í eitt númer og síð-
an sé gengið frá öllu á einum stað,“
segir Páll Gunnlaugsson, eigandi
Bílrúðumeistarans.
Páll er lærður bifreiðasmíða-
meistari og það er góð tilfinning
fyrir viðskiptavini að vita af rúðu-
ísetningunni í höndum faglærðs
og þrautreynds manns. Páll hefur
starfað við rúðu-
ísetningar allt
frá árinu 2001,
en hann stofnaði
Bílrúðumeistar-
ann árið 2011.
Hefur verið mik-
ill vöxtur í við-
skiptunum
vegna góðrar
þjónustu að
sögn Páls.
Upprunagæði
á ísettu gleri
– Hægt að
nota plástra
og sleppa við
rúðuskipti við minniháttar
skemmdir
„Ég legg áherslu á að nota gler sem
er af sömu gæðum og upprunalega
glerið í bílnum og því getur bíleig-
andinn treyst því að fá jafngóða
rúðu og var upphaflega,“ segir Páll,
En eru rúðubrot í bílum algeng?
„Það er ótrúlega mikið um rúðu-
brot. Algengast er að eitthvað komi
í rúðuna, steinn sem skemmir hana
og ef hún brotnar ekki strax þá
klárar frostið og hitabreytingarnar
verkið. En ef fólk nýtir sér þessa
plástra sem bæði eru í boði hjá
mér og tryggingafélögunum, þá
eru þeir settir yfir skemmdina
strax, bíleigandinn kemur síðan
með bílinn til mín og ég get fyllt
upp í skemmdina án þess að það
þurfi að skipta um rúðu. Þetta er
auðvitað miklu ódýrari kostur og
getur gengið ef skemmdin er á
lítt áberandi stað á rúðunni, utan
sjónsviðs ökumanns. Auk minni
kostnaðar þarf eigandinn þá ekki
að greiða fyrir neina sjálfsáhættu.“
Biðtími frá því hringt er í 571-
1133 vegna rúðubrots er vanalega
1–2 dagar.
Páll segir að rúðubrot vegna
skemmdarverka séu sjaldgæfari en
það sem hann kallar, rúðubrot af
eðlilegum ástæðum. Skemmdarverk
ganga þó oft í bylgjum og stundum
verði mörg rúðubrot á stuttum tíma
vegna skemmdarverkafaraldurs.
Þess má geta að Páll er fljótur að
leysa þau algengu vandamál þegar
hliðarrúður festast í upphölurum.
Þá er hægt að koma með bílinn
beint í Bílrúðumeistarann sem losar
rúðuna og skiptir um upphalarann.
Að sögn Páls eru þessi vandamál
algeng þegar byrjar að frjósa á vet-
urna. n
brm.is