Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Blaðsíða 26
Vikublað 9.–11. febrúar 201618 Sport „Fólk hélt að ég myndi ekki keppa aftur“ Margrét Edda Gnarr sneri á dögunum aftur til keppni eftir rúmlega ársfrí, full orku og tilbúin til þess að takast á við atvinnumennskuna í fitness-heiminum. Hún setti sér háleitt markmið – að sigra á atvinnumannamóti á árinu 2016. Sem hún og gerði. Á sínu fyrsta móti í langan tíma stóð hún uppi sem sigurvegari og kom kannski sjálfri sér hvað mest á óvart. Margrét Edda fer aldrei troðnar slóðir, hún slekkur ljósin með taekwondo-spörkum og hefur snerpu og viðbragðsflýti á við ofurhetju. Hún ætlar sér stóra hluti á næstu mánuðum og lætur stóra drauminn sinn rætast og stígur á svið á Mr. Olympia vaxtarræktar- og fitness-mótinu í september – nokkurs konar heimsmeistaramóti atvinnumanna. H ún er nýkomin heim frá Las Vegas og segir mér að hún sé ansi flugþreytt. Það er þó ekki að sjá á henni þar sem við sitjum og spjöll­ um saman tveimur dög­ um eftir heimkomu hennar. Hana klæjar í lófana að fara aftur að æfa. „Ég ætla að hr­ ingja í þjálfarann minn í dag. Ég hef verið að reyna að slaka á í æfingum í eina viku eftir mót en nú vil ég fara að komast á æf­ ingu,“ segir Margrét Edda. Það þýðir ekkert að slá slöku við, næsta mót er í mars. Markmiðin hafa líka breyst, sérstaklega eftir sigur henn­ ar á atvinnumannamóti í fitness á dögunum. Fann agann Það var árið 2008 sem Margrét Edda sá kunningja­ konu keppa í fit­ ness í fyrsta sinn og hún heillaðist af sportinu. Hún byrjaði svo sjálf að undirbúa sig og æfa árið 2011. Hún hefur alla tíð vera mikil íþróttakona. Þar á undan hafði hún komið víða við; æft fimleika, listdans á skautum og auðvitað taekwondo. Hún stundar hið síðastnefnda enn og kennir sjálfsvarnarlistir samhliða fitness. Hún státar af fjölmörgum Íslandsmeistara­ titlum í greininni og árið 2013 varð hún í öðru sæti á Norður­ landamótinu í taekwondo. Það skyldu allir vara sig á henni, enda er hún vægast sagt snör í snúningum. Hún hefur gott við­ bragð og telur að flestir gætu lært ýmislegt þegar kemur að viðbragði. „Ég æfi taekwondo á hverjum degi, hvort sem það er bara heima eða á sérstökum æfingum. Það er mér mjög mikilvægt,“ segir hún. Hún hefur verið að kenna kærastanum sínum, Ásgeiri Trausta Einarssyni tónlistarmanni, nokkra takta. „Ég hef aðeins verið að sýna honum þetta. Kenna hon­ um að slökkva ljósin með spörk­ um og svona. Hann er mjög góður í bakspörkum, kann að slökkva ljós­ ið með þeim. Hann er mjög flottur,“ segir hún og skellihlær. Hún kennir einnig um þessar mundir námskeiðið Kick­fit, þar sem hún blandar saman þessum tveimur heimum, taekwondo og fitness. „Ég hugsa þetta fyrir kon­ ur sem vilja læra sjálfsvörn. Mig langar að kenna þeim að sparka. Gera viðbragðsæfingar og styrktar­ æfingar,“ segir Margrét. „Mér finnst mikilvægt að kenna konum að vera sterkar. Að gefa þeim tækifæri til að fá smá útrás eftir daginn – það er ómetanlegt að koma – að sparka eins fast og þú getur í púða í skemmtilegum hópi. Ég held að það sé mjög mikilvægt að æfa viðbrögðin, snerpuna,“ segir hún og útskýrir að hún leggi áherslu á snerpu líkamans til að bregðast við. Þetta getur komið í veg fyrir slæmt fall, verið gott til að verja sig, grípa hluti og svo framvegis. Snerp­ an og liðleikinn skipta miklu máli. Í taekwondo fann hún líka agann sem hana hafði vantað og hún hef­ ur nú tileinkað sér með afar góðum árangri. Það þarf mikinn aga til að takast á við niðurskurð og æfingar fyrir fitness­mót. Það hefur þó sjálf­ sagt ekki hvarflað að móður hennar þegar hún sendi hana átta ára gamla í sinn fyrsta taekwondo­tíma. „Ég var frekar ofvirk þegar ég var yngri. Ég átti erfitt með að vera í fimleikunum til dæmis. Ef kennar­ inn leit af mér var ég komin inn í áhaldageymsluna að leika mér þar. Þetta gerðist í hverjum tíma og yfir­ leitt dró ég vinkonu mína með mér og kom henni í vandræði. Ég þurfti meiri aga og foreldrar mínir sendu mig mig í taekwondo til að reyna að finna hann. Ég hafði mjög gott af því þó að það hafi verið djúpt á honum,“ segir hún. Í dag segist hún þó hafa róast, þó að athyglis­ bresturinn fylgi henni enn. Þetta snýst þó allt um að ná að beisla hann og nýta til góðra verka. Sett í pásu Það var svo haustið 2013 sem Mar­ grét Edda fékk atvinnumanns­ réttindi í fitness eftir frækinn sigur á heimsmeistaramóti. Ef til vill tóku einhverjir eftir því að lítið fór fyrir henni í keppni á ár­ inum 2014 og 2015, en hún veiktist alvarlega sumarið 2014. Erfiðlega gekk að komast til botns í því hvað hrjáði hana og þurfti hún á endan­ um að taka sér árs frí frá keppni, rétt eftir að hún hafði fengið at­ vinnumannsskírteinið sitt. „Sumarið 2014 fann ég fyrir verkjum í andlitinu – í öðru kinn­ beininu,“ segir hún og bendir á vinstri vanga sinn. „Ég hélt að þetta gæti verið tannpína svo ég fór til tannlæknis. Hann fann smá skemmd, en samt ekkert sem átti að valda svona sársauka. Hann gerði við tönnina, en ég lagaðist ekkert,“ segir hún. Hún flutti tímabundið til Mexíkó í kjölfarið og var undir læknishendi þar. „Þegar ég var þar varð ég miklu verri. Þetta var svo ótrúlega sárs­ aukafullt. Stundum gat ég varla opnað annað augað. Verkurinn var svo mikill og ég fann fyrir miklum þrýstingi að þetta var óbærilegt. Ég fór til tannlæknis þarna úti sem átti að vera mjög góður,“ segir hún. Sá sagði henni að líklega þyrfti hún að undirgangast rótarfyllingu, sem og hún gerði. „Hann ákvað að fram­ kvæma hana, eiginlega bara upp og von og óvon,“ segir hún. „En verkurinn hvarf ekki. Ég fór svona fimm sinnum til þessa tann­ læknis,“ segir hún. „Í eitt skiptið var hann með járnstöng og kveikjara og sagðist ætla að ná tökum á sýk­ ingu þannig,“ segir hún og bætir við að bæði hún og læknirinn hafi verið orðin ansi örvæntingarfull. Margrét Edda fékk uppáskrif­ uð sýklalyf og henni leið sannar­ lega aðeins betur, en bara í stuttan tíma. „Þetta var greinilega sýking, en við gátum ekki fundið út hvaðan hún kom. Og svo fór mér að versna „Mér finnst mikilvægt að kenna konum að vera sterkar Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.