Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Side 28
20 Lífsstíll Vikublað 9.–11. febrúar 2016 Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð og samþykkt af Mannvirkjastofnun. Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna og léttir þrif. Stigahúsateppi Mikið úrval! Mælum og gerum tilboð án skuldbindinga og kostnaðar Ármúli 32, 108 Reykjavík Sími 568 1888 www.parketoggolf.is Sérverslun með teppi og parket Tæplega 2.000 kýr til sölu n „Vorum alveg brjáluð“ n Kýr uppi um alla veggi og loft S igurjón Helgason hefur auglýst til sölu hátt í tvö þúsund safngripi sem hann og Sólrún, eiginkona hans, hafa eignast á síðustu 30 árum. Allt eru þetta gripir með kúm. Ævintýrið hófst fyrir 30 árum þegar Sigurjón fékk fyrstu belj- una. Þá var hann nautabússtjóri á Nautabúinu í Hrísey, svo að gjöfin var ekki svo ýkja langsótt. „Það var tengdamóðir mín sem gaf mér hana, og þá byrjaði ballið. Safnið óx smátt og smátt og upp úr 2000 vor- um við hjónin orðin alveg brjáluð í þessu áhugamáli.“ Kúnum fjölgaði sífellt og komu þær frá öllum hornum heimsins. „Við fórum í allar búðir erlendis þar sem við mögulega gátum fundið eitthvað, og keyptum eitt sinn 100 stykki frá safnara gegnum eBay. Það var spennandi að opna þann pakka.“ Ættingjar og vinir voru vel meðvitaðir um áhugamál þeirra hjóna, svo flestar jóla- og afmælis- gjafir þessa þrjá áratugi voru grip- ir með kúm. Sigur- jón segir þau hjónin hafa verið orðin „alveg snar“ skömmu fyrir hrun. „Þá keyptum við heil ósköp af rándýrum safngripum í Líf og list. Kýr eftir listamenn sem voru framleiddar í takmörkuðu upplagi.“ Tóku yfir heimilið Kýrnar tóku smám saman yfir heimili þeirra Sigurjóns og Sólrúnar. „Þetta var uppi um alla veggi og öll loft. Við smíðuðum 25 fermetra viðbyggingu fyrir safnið, en hún dugði varla. Svo fengum við bara nóg, það var ekkert pláss orðið fyrir þessi ósköp.“ Í safninu eru fjöl- breyttir gripir, pennar, bollar, púðar, klukkur, brúður, trékýr og forláta kúabjalla frá Sviss. „Þetta eru um 1.700–1.800 gripir,“ segir safnarinn Sigurjón. Árið 1991 fluttu Sigurjón og fjöl- skylda úr Hrísey og settust að á Dalvík. Þar hafa þau rekið pítsustað- inn Tommuna síð- astliðin 17 ár. Hann svarar því játandi að nautgripaafurð- ir og mjólkurvörur eigi sérstakan sess í mataræðinu. „Ég er alinn upp í Eyja- firði við búskap, svo það hefur alltaf verið.“ Ævintýrinu lokið En nú er kúaævin- týrinu lokið, búið að pakka gripun- um ofan í kassa, og auglýsa til sölu á Blandi. Sigurjón er ekki með ná- kvæmar hugmyndir um hvaða verð hann vill fá fyrir safnið. „Við þurfum að losna við þetta núna. Kannski gæti þetta farið á safn. Það eru heil- miklir peningar í þessu að ég held.“ Þó svo að kýrnar séu á útleið af heimili Sigurjóns og Sólrúnar er ekki þar með sagt að söfnunar áráttan hafi liðið undir lok. „Við erum reyndar ansi dugleg að safna jóla- dóti,“ segir Sigurjón hlæjandi. „Það er orðið dálítið mikið af því á heim- ilinu. Við setjum allt upp í nóvem- ber, en tökum það svo niður eftir jólin. Við eigum mikið af eldgömlum hlutum sem sjást varla leng- ur, svo þetta er líklega tekið við.“ n Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Kýr, kýr, kýr! Myndarammar, klukkur og fullt af kúm með engan sérstakan tilgang. Glaðlegar! Ástfangnar kýr, minnistöflur og segulstál af ýmsum gerðum. Sérsmíðaðar hillur Þarna hefur þó verið pláss fyrir nokkrar í viðbót. Viðbygging undir safnið Kususafnið fékk 25 fermetra viðbyggingu sem dugði ekki einu sinni. Koppar og kyrnur Þau hjónin hafa geta boðið allnokkrum gestum upp á kaffi úr kususkreyttum bollum. Kýr í hólf og gólf Hér sést vel að kýrnar voru ekki aðeins á veggjum, heldur náði safnið upp í rjáfur. Sigurjón Helgason Pítsusendill og safnari. Kálfur með slaufu Fyrir nokkrum árum fékk Sigurjón þennan fallega kálf í afmælisgjöf. Ættingjarnir eru greini- lega vel með á nótunum!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.