Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2016, Blaðsíða 28
20 Lífsstíll Vikublað 9.–11. febrúar 2016
Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð
og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna
og léttir þrif.
Stigahúsateppi
Mikið úrval!
Mælum og gerum tilboð
án skuldbindinga og kostnaðar
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Sérverslun með teppi og parket
Tæplega 2.000 kýr til sölu
n „Vorum alveg brjáluð“ n Kýr uppi um alla veggi og loft
S
igurjón Helgason hefur
auglýst til sölu hátt í tvö
þúsund safngripi sem hann
og Sólrún, eiginkona hans,
hafa eignast á síðustu 30
árum. Allt eru þetta gripir með
kúm.
Ævintýrið hófst fyrir 30 árum
þegar Sigurjón fékk fyrstu belj-
una. Þá var hann nautabússtjóri á
Nautabúinu í Hrísey, svo að gjöfin
var ekki svo ýkja langsótt. „Það
var tengdamóðir mín sem gaf mér
hana, og þá byrjaði ballið. Safnið óx
smátt og smátt og upp úr 2000 vor-
um við hjónin orðin alveg brjáluð í
þessu áhugamáli.“
Kúnum fjölgaði sífellt og komu
þær frá öllum hornum heimsins.
„Við fórum í allar búðir erlendis
þar sem við mögulega gátum
fundið eitthvað, og keyptum eitt
sinn 100 stykki frá safnara
gegnum eBay. Það var
spennandi að opna
þann pakka.“
Ættingjar og
vinir voru vel
meðvitaðir um
áhugamál þeirra
hjóna, svo flestar
jóla- og afmælis-
gjafir þessa þrjá
áratugi voru grip-
ir með kúm. Sigur-
jón segir þau hjónin
hafa verið orðin „alveg
snar“ skömmu fyrir hrun.
„Þá keyptum við heil
ósköp af rándýrum safngripum í Líf
og list. Kýr eftir listamenn sem voru
framleiddar í takmörkuðu upplagi.“
Tóku yfir heimilið
Kýrnar tóku smám saman yfir
heimili þeirra Sigurjóns og
Sólrúnar. „Þetta var uppi um alla
veggi og öll loft. Við smíðuðum 25
fermetra viðbyggingu fyrir safnið,
en hún dugði varla. Svo fengum við
bara nóg, það var ekkert pláss orðið
fyrir þessi ósköp.“ Í safninu eru fjöl-
breyttir gripir, pennar, bollar, púðar,
klukkur, brúður, trékýr og forláta
kúabjalla frá Sviss. „Þetta eru um
1.700–1.800 gripir,“ segir safnarinn
Sigurjón.
Árið 1991 fluttu Sigurjón og fjöl-
skylda úr Hrísey og settust að á
Dalvík. Þar hafa þau rekið pítsustað-
inn Tommuna síð-
astliðin 17 ár. Hann
svarar því játandi
að nautgripaafurð-
ir og mjólkurvörur
eigi sérstakan sess
í mataræðinu. „Ég
er alinn upp í Eyja-
firði við búskap,
svo það hefur alltaf
verið.“
Ævintýrinu lokið
En nú er kúaævin-
týrinu lokið, búið
að pakka gripun-
um ofan í kassa,
og auglýsa til sölu
á Blandi. Sigurjón er ekki með ná-
kvæmar hugmyndir um hvaða verð
hann vill fá fyrir safnið. „Við þurfum
að losna við þetta núna. Kannski
gæti þetta farið á safn. Það eru heil-
miklir peningar í þessu að ég held.“
Þó svo að kýrnar séu á útleið af
heimili Sigurjóns og Sólrúnar er ekki
þar með sagt að söfnunar áráttan
hafi liðið undir lok. „Við erum
reyndar ansi dugleg að safna jóla-
dóti,“ segir Sigurjón hlæjandi. „Það
er orðið dálítið mikið af því á heim-
ilinu. Við setjum allt upp í nóvem-
ber, en tökum
það svo niður
eftir jólin. Við
eigum mikið
af eldgömlum
hlutum sem
sjást varla leng-
ur, svo þetta
er líklega tekið
við.“ n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Kýr, kýr, kýr! Myndarammar, klukkur og fullt af kúm með engan sérstakan tilgang. Glaðlegar! Ástfangnar kýr, minnistöflur og segulstál af ýmsum gerðum.
Sérsmíðaðar hillur Þarna hefur þó verið pláss fyrir nokkrar í viðbót. Viðbygging undir safnið Kususafnið fékk 25 fermetra viðbyggingu sem dugði ekki einu sinni.
Koppar og kyrnur Þau hjónin hafa geta
boðið allnokkrum gestum upp á kaffi úr
kususkreyttum bollum.
Kýr í hólf og
gólf Hér sést vel
að kýrnar voru
ekki aðeins á
veggjum, heldur
náði safnið upp í
rjáfur.
Sigurjón Helgason
Pítsusendill og safnari.
Kálfur með slaufu Fyrir nokkrum árum fékk Sigurjón
þennan fallega kálf í afmælisgjöf. Ættingjarnir eru greini-
lega vel með á nótunum!