Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Side 3

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Side 3
Ingibjörg R. Magnúsdóttir. ÚR DAGSINS ÖNN Rætt við Ingibjörgu R. Magn- úsdóttur, deildarstjóra í heil- brigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu. RlTSTJÓRNIN óskar þér heilla í hinu nýja starfi og þakkar þér alla þá aðstoð, sem þú hefur veitt tímaritinu fyrr og síðar. Hvemig leggst í þig að vera komin frá höfuðborg Norður- lands, Akureyri, til að starfa hér i Reykjavík? Það voru viðbrigði í fyrstu. Starf mitt á sjúkrahúsinu fyrir norðan var yfirgripsmikið og erfitt á margan hátt, en ég átti því láni að fagna að vinna með afbragðsfólki. Sjúkrahúsið var ekki bara stofnun, það var stórt heimili, þar sem allir lögðu sig fram við að lækna og hlúa að, byggj a upp og bæta, nótt sem dag, hátíðisdaga sem aðra daga. Þar var aldrei hægt að loka, hvorki í sumarleyfum né á há- tíðum. Starfið var aldrei búið. Að vísu voru ýmis verkefni að baki, en alltaf miklu fleiri hálf- unnin og óunnin. Mér fannst hér í fyrstu, að mig vantaði fleiri og meiri verk- efni. Það var svolítið undarlegt að hafa ekki heimavinnu og geta sleppt áhyggjum af fólksráðn- ingum og öðru brasi. En nú þarf ég ekki að kvarta undan verk- efnaskorti og kann prýðilega við mig í alla staði. Og mér hefur alltaf líkað vel að vera í Reykja- vík. Hver er aðdragandinn að stofnun þessa starfs í heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneyt- inu, og er að finna samsvarandi störf á hinum Norðurlöndunum? Það var Hjúkrunarfélag Is- lands, sem hvatti til þess, að hér yrði sérstakur fulltrúi, er færi með þau málefni, er varða hjúkrun og hjúkrunarfólk. Heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytið var stofnað 1. jan. 1970, og vorið 1972 var auglýst eftir hjúkrunarmenntuðum fulltrúa. f samsvarandi ráðuneytum í hinum Norðurlöndunum eru alls staðar hjúkrunarkonur og í sum- um þeirra þó nokkrar. En í fá- mennu ráðuneyti í fámennu landi þarf hver og einn starfs- maður að sinna fleiri en einni grein, og því eru hjúkrunarmál hluti af þeim heilbrigðismálum, er ég sinni, en ekki starfið allt. Hverjir eru helztu málaflokk- ar, sem heyra undir þetta starf? Auk hjúkrunarmála eru það málefni ýmissa annarra heil- brigðisstétta, svo sem ljós- mæðra, sjúkraliða, þroskaþjálfa o. fl. Sjúkrahúsabyggingar, heilsugæzlustöðvar og uppbygg- ing þeirra, héraðshj úkrunar- konur og þeirra störf, þetta eru allt málefni, sem ég vinn að með öðrum, innan ráðuneytisins og utan þess. Ýmiss konar nefndarstörfum tek ég þátt í. Má þar nefna skólanefnd Hjúkrunarskóla Is- lands og nefnd hins nýja hjúkr- unarskóla í Fossvogi, skóla- nefnd Röntgentæknaskólans, nefnd er vinnur að málefnum vangefinna o. fl. Hvaða hlutverki telur þú, að þetta starf eigi að gegna? Hér vinn ég sem og aðrir starfsmenn ráðuneytisins að heilbrigðismálum í heild, þótt svo að ég sinni sumum mála- flokkum meira en öðrum. Þetta starf mitt er enn í mót- un. Þekking mín og reynsla er of einhliða. Svolítið hyggst ég bæta úr því með því að fara í kynnis- og námsferð til hinna Norðurlandanna í vetur. Það verður tveggja mánaða ferð, og verð ég hálfan mánuð á hverj- um stað, til að kynna mér störf hjúkrunarmáladeilda innan ráðuneytanna, svo og menntun hjúkrunarkvenna - grunnnám og framhaldsnám. Hvert telur þú vera brýnasta félagslegt verkefni Hjúkrunar- félagsins ? Við þurfum að eignast stofn- un eða aðgang að stofnun, þar sem hjúkrunarkonur geta bætt við sig námi. Hér er mikill skort- ur á hjúkrunarkonum með TÍMARIT HJÚKRUNARPÉLAGS ÍSLANDS 119

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.