Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Qupperneq 12

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Qupperneq 12
TANNVERND Guðrún Gísladóttir. Gubrún Gísladóttir tannlæknir lauk framhaldsnámi í Bandct- ríkjunum 1965 í þeirri grein tannlækninga, sem nefnd er PERIODONTIA, og starfar eingöngu í þeirri grein tann- lækninga. Erindi þetta var flutt á tannverndaí'viku TFÍ í sumar. Með þróun læknavísinda og rannsókna síðustu ára stefna allar heilbrigðisstéttir í ríkara mæli en áður að sameiginlegu marki, sem einu nafni nefnast heilsuvernd. Heilsuvernd er: 1) Fyrir- bygging sjúkdóma. 2) Leitun og greining sjúkdóma á byrjunar- stigi og um leið að koma í veg fyrir útbreiðslu þeirra. 3) Eft- irmeðferð, og er þá haft eftir- lit með ástandi einstaklingsins til þess að tryggja varanlega heilsu hans. Kjörorð tannlæknis nútímans er „tannvernd“. Er hún einn þáttur heilsuverndar. Almennt gera menn sér grein fyrir þýðingu tannanna sjálfra og þeirri nauðsyn að varðveita þær. Meira hefur verið rætt um tennurnar í heild, en því mið- ur minna um umhverfi þeirra, en það eru stoðvefir tanna. Tennurnar eru ekki einungis til prýði og sjálfsöryggis, þær eru nauðsynlegar við hljóð- myndun í tali og við tyggingu fæðunnar. Einnig halda þær uppi jafnvægi milli þeirra vöðva, sem tengja fjölmörg bein höfuðkúpunnar og þá fyrst og fremst efri og neðri kjálkabein annars vegar og efstu liði hryggsúlunnar hins vegar. Tennur eru líffæri, sem fá næringu sína með blóði líkam- ans eins og önnur líffæri hans. Til þess að tennur geti gegnt því hlutverki, sem þeim er ætl- að, og þær geti lifað, eru þær háðar umhverfi sínu. Stoðvefjum tanna má skipta í mjúka og harða vefi. Mjúkir vefir eru tannhold, munnslím- húð, ásamt vöðvafestingum. Harðir vefir eru kjálkabein, sem má skipta í þétt bein og frauð- bein. Festing tannanna í kjálka- beinum er á þann veg, að tann- rótin liggur ofan í beinholu og frá rótinni liggja bandvefsþræð- ir, sem festast við rótina ann- ars vegar og við tannhold og bein hins vegar. Sakir þessa fyrirkomulags getur tönnin tek- ið við því álagi, sem hún fær við tygginguna. Allir sjúkdómar, sem fyrir geta komið í mannslíkamanum, geta einnig komið fram í munn- holi og þá einnig í stoðvefjum tanna, því að við getum ekki útilokað munninn frá öðrum hlutum líkamans. Þá geta bakt- eríur borizt frá umhverfi tanna með blóðinu til annarra líffæra líkamans og valdið sjúkdómum þar, og eru þeir algengastir í liðum, nýrnahettum og hjarta- lokum. Algengasti sjúkdómur í um- hverfi tannanna er tannholds- bólgan. Orsök hennar er fyrst og fremst bakteríur. Ef matar- leifar fá að vera í friði á mörk- um tannholds og tannrótar, myndast smátt og smátt þykkar skánir, sem bakteríur taka sér bólfestu í. Þar geta þær bæði myndað sýrur, sem leysa upp glerung tannanna, og gefið frá sér eiturverkandi efni, með þeim afleiðingum, að bandvefsþræð- irnir, sem festa tönnina, þrútna og slitna frá rótinni og nærliggj - andi tannholdi og beini. Þá myndast pokar, sem eru gróðr- arstíur fyrir bakteríur, gröftur vellur út úr þeim, beinið leys- ist upp og hverfur. Tönnin losn- ar meir og meir, unz hún fellur burt. Oft verður útfelling málm- salta í skánunum, sem þá nefn- ist tannsteinn. Fyrstu einkenni tannholdsbólgunnar eru blæð- ing úr tannholdi við tannburst- un. Tannholdið verður rautt og þrútið. Þó ber ekki alltaf á þess- um einkennum, og er það mjög athyglisvert, að bólgan getur breiðzt út, án þess að verkur eða sársauki komi til, en það er einmitt ástæðan fyrir því, að sjúkdómurinn heldur áfram án vitundar sjúklingsins. Mest ber á tannlosi eftir 35 ára aldur, og er því tannmissir efri ára mun algengari af völd- um tannholdsbólgu en tann- skemmda. Þó má finna byrjun- arstig tannholdsbólgu á öllum aldri, jafnvel í ungbörnum og einnig á kynþroskaaldri. Ýmsar aðrar orsakir má 128 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.