Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1972, Qupperneq 36
Ritnefnd: Hanna Þórarinsdóttir, Hulda Kristjánsdóttir. Elín Stefánsdóttir, Anna Rósa Daníelsdóttir
RADDIR HJÚKRUNARNEMA
AÐALFUNDUR SSEF
eftir Margréti Halldórsdóttur hjúkrunarnema
Aðalfundur sænska hjúkrunarnemafélagsins, SSEF (Sveriges sjuksköt-
erskaelevförening) var haldinn í Váxjö 3.-5. marz sl. Skipulag NEK
(Nordisk elevkonferense) gerir ráð fyrir þátttöku fulltrúa hjúkrunar-
nemafélaga hinna Norðurlandanna í slíkum fundum, og barst Hjúkrun-
ai’nemafélagi Islands boðsbréf sem öðrum. Félagið afþakkaði boðið á
þeirri forsendu, að það hefði ekki fjárhagslegt bolmagn til að standa undir
kostnaði við slíkt ferðalag. Á síðustu stundu hringdi formaður SSEF og
bauð tveimur hjúkrunarnemum á kostnað þess. Boð þetta var þakksam-
lega þegið, en í því fólst kostnaður vegna ferða og allur dvalarkostnaður
þar í landi. Þannig lyktaði því, að tveir íslenzkir hjúkrunarnemar sóttu
fundinn.
Árdegis föstudaginn 3. marz var fundurinn settur. Þátttakendur voru
um áttatíu hjúkrunarnemar frá hinum ýmsu skólum í Svíþjóð, sambands-
stjórnin (aðalstjórn SSEF, sem hefur aðsetur í Stokkhólmi) og aðstoðar-
fólk. Gestir voru auk okkar tveir frá Noregi, tveir frá Danmörku og einn
frá Finnlandi. I þessum fjölmenna hópi voru nokkrir karlmenn, og vai'
ekki skirrzt við að velja þá í hinar ýmsu nefndir.
Þátttakendum var skipt í hópa, og skyldi hver þeirra taka ákveðin verk-
efni til umræðu, en þau skiptust þannig:
A. Menntun I.
Að ræða núverandi menntun og leggja fram tillögur til úrlausna hin-
um ýmsu menntunarvandamálum.
B. Menntun II.
Að ræða og leggja fram áætlun fyrir hjúkrunarmenntun framtíðar-
innar. Athuga skyldi, hvert telja bæri starfssvið hjúkrunarkonu, og
með hliðsjón af þeirri niðurstöðu, skyldi áætla, hver menntun væri
nauðsynleg til uppfyllingar þeim kröfum.
C. Ræða áætlanir og framtíðarhorfur varðandi SSEF sem sjálfstæðs
félags. Ákveðinn hópur hafði verið valinn árið 1971, sem falið var
það verkefni að vinna markvisst að viðurkenningu SSEF sem stéttar-
félags, er starfað gæti óháð hjúkrunarfélögum og gert eigin samninga.
Hér skyldi ræða árangur starfsins og leggja fram nýjar tillögur til
úrbóta.
D. Athuga starfsáætlanir frá nýliðnum árum, hversu framkvæmdar hefðu
verið, og kanna leiðir til úrbóta, fyrst og fremst varðandi samræm-
ingu menntunar.
E. Endurskoða allar fjárhagsáætlanir fyrir árið 1972 með tilliti til hinna
ýmsu sjóða. Leggja fram tillögur til úrbóta.
F. Endurskoða alla starfsemi SSEF sl. ár, og athuga, hve miklu fé var
varið til starfsins. Með tilliti til niðurstöðu þeirrar athugunar skyldi
á sameiginlegum fundi næsta dag greiða atkvæði um það, hvort sam-
þykkja skyldi eða ekki frjálsræði sambandsstjórnar til ábyrgðar.
148 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS -----------------------