Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1996, Síða 10
B
ernd
notum við til að átta okkur á tíðni og magni neyslunnar. Ef við
gefum okkur að konan játi því að hún hafi einhvern tíma
drukkið áfengi þá spyrjum við næst: „Hvenær drakkstu áfengi
síðast?“ en slík spurning opnar konunni leið til að ræða um
núverandi neyslu ef einhver er og fyrri neyslu. Flestar
kvennanna svara þvf efiaust til að þær hafi ekki drukkið frá
því fyrir þungun og jafnvel löngu áður. Sumar konur hafa
drukkið áfengi fyrstu vikur meðgöngunnar, áður en þær
áttuðu sig eða fengu staðfestingu á þunguninni, en hætt því
algjörlega eftir það. Hins vegar sitja þessar konur gjarnan
uppi með mikið samviskubit yfir því að hafa drukkið f byrjun
meðgöngunnar, jafnvel þótt það hafi verið mjög lítið, og þær
eru hræddar um að hafa skaðað fóstrið. Þessi spurning, er ég
nefndi fyrr, gefur konunni færi á að ræða þessar áhyggjur sínar
og um leið ljósmóðurinni/hjúkrunarfræðingnum tækifæri til að
róa konuna því ósennilegt er að svo lítil neysla, rétt í byrjun,
valdi skaða. Ef konan kveðst aftur á móti hafa drukkið daginn
áður eða síðastliðna helgi eða fyrir einhverjum dögum síðan þá
er næsta skref að átta sig á því hversu mikil drykkja sé á
ferðinni og þá að bera upp spurningar eins og: „Hversu mikið
drekkurðu? Hvað drekkurðu? Hversu oft drekkurðu?“
Ef svo virðist, eftir þessar spurningar, að hér sé um
einhverja drykkju að ræða þá er næst að komast að því liversu
mikil áhrif drykkjan hefur á li'f konunnar og er mælt með því
að leggja þá fyrir konuna svokallaðar CAGE spurningar:
1. Hefur þér einhvem ti'ma fundist þú þurfa að minnka
drykkjuna?
2. Hefur fólk verið með afskiptasemi gagnvart
drykkjunni hjá þér?
3. Hefur þér einhvern tíma liðið illa eða verið með slæma
samvisku úl ai drykkjunni?
4. Hefur þú einhvern tíma byrjað daginn á því að fá þér
drykk til þess að róa taugarnar eða losna við timburmenn?
Einnig getur hjálpað að nota eftirfarandi spurningu:
„Hvað þarftu marga drykki til að finna á þér?“ en þessi
spurning gefur vfsbendingu um áfengisþol. Ef konan svarar
því til að hún þurfi meira en tvo drykki til að finna á sér, þá
segir það manni að þolið hefur aukist og misnotkun væntan-
lega til staðar. Sumar konur eru fúsari að viðurkenna aukið
áfengisþol heldur en vandamál er hljótast af drykkjunni.
Þessar spurningar geta gefið manni vísbendingu um það,
hvort um áfengisvandamál sé að ræða hjá konunni eða ekki.
Fræða þarf þessar konur um skaðsemi neyslunnar og hversu
alvarlegar afleiðingar þær geta haft á barnið. Það hefur sýnt
sig að fræðsla í mæðraeftirliti til kvenna hefur skilað góðum
árangri og margar látið af allri neyslu á meðgöngunni. Þeim
konum sem ekki geta hætt neyslu án frekari aðstoðar þarf að
liðsinna, benda þeim á þau meðferðarúrræði sem í boði eru,
hvetja þær til að leita sér meðferðar og fylgja því eftir.
Þó að konan hafi fengið þá fræðslu sem þurfa þykir hjá
sinni ljósmóður/hjúkmnarfræðingi í mæðraeftirlitinu má ekki
láta þar við sitja. Því |)ó hún taki fræðslunni vel og tali um að
hætta allri neyslu, verður að spyrja hana aftur um neyslu næst
er hún kemur í skoðun: „Hefurðu dmkkið nokkurn bjór,
léttvín eða sterkt vín frá þvf síðast er þú varst í skoðun?“
Vænlegast er að orða spurninguna á þennan hátt því mörgum
íinnst bjór eða léttvín varla vera áfengi og líta ekki alvarlegum
augum á slíka neyslu. Ef hins vegar kona neitar allri neyslu á
meðgöngunni en okkur gmnar annað þá ber að spyrja hana
aftur næst þegar hún kemur í skoðun.
Henni gæti liðið belur þá og verið
ömggari með sig þegar hún fer að
kynnast sinni ljósmóður/
hjúkrunarfræðingi og á þá auðveldara
með að opna sig. En því miður er það
nú svo að ávallt munu einhverjar
þungaðar konur neita neyslu alla
meðgönguna þó þær séu í einhverri
neyslu. Ef allar konur fá fræðslu um
skaðsemi áfengis -og vímuelnaneyslu munu þær þó alltént
verða einhvers vi'sari og kannski verðui' liægt að ná til þeirra
seinna eða jafnvel í næstu meðgöngu.
Lokaorð
Eins og fram liefur komið þá hefur áfengis- og vímuefna-
neysla á meðgöngu víðtæk áhrif á fóstrið bæði andlega og
líkamlega, en það er aldrei of seint að reyna að stöðva
neysluna eins og kemur fram í rannsókn er Korkman, Autti-
Ramö ofl. gerðu á vegum Háskólans í Helsinki árið 1994.
Rannsóknin var um andlegan seinþroska tveggja ára barna eftir
áfengisneyslu móður á meðgöngu. Kom í ljós að greinileg fylgni
var á milli seinþroska hjá börnum og þess hvort móðirin drakk
áfengi í byrjun meðgöngunnar eða út alla meðgönguna.
Seinkaður málþroski og sjónhreyfiþroski kom fram hjá börnum
mæðra er drukku alla meðgönguna. Eingöngu var um athyglis-
skort að ræða hjá börnum þeirra mæðra er drukku fram að 3.
þriðjungi meðgöngunnar. Hjá börnum þeirra mæðra er aðeins
drukku fram að 2. þriðjungi meðgöngunnar var ekki marktækur
munur og á samanburðarhópi. Því fyrr því betra er að grípa inn
í og jafnvel getur íhlutun á 3. þriðjungi meðgöngunnar skipt
sköpum fyrir heilsu bamsins. Það er þvf von mín að þessar
leiðbeiningar geti komið ljósmæðrum og heilsugæslu-
hjúkrunarfræðingum að gagni í mæðravernd og auðveldi
greiningu á þessu alvarlega vandamáli.
Heimiidir:
Autti-Ramo I., Gaily E.og Granstrom ML.(1992). Dysmorphic features in
offspring of alcoholic mothers. Archives of Disease in Childhood
67(6):712-6.
Bartek J. og Twiss J.(1990). The Pregnant Client Using Alcohol.
L. Jack (ritstj.), Nursing Care Planning with the Addicted Client, (bls.61-78)
Vol.II, Stokie IL. Midvest Education Assocition, Inc.
Fries MH. Kuller JA. Norton ME. Yankowitz J. Kohori J. Good WV. Ferriero
D. Cox V. Donlin SS. Golabi M. (1993). Facial features of infants
exposed prenatally to cocaine. Teratology 48(5):413-20.
Froster UG. og Baird PA. (1992). Congenital defects of the limbs and
alcohol exposure in pregnancy: data from a population based study.
American Journal of Medical Genetics, 44(6):782-5.
Geller A. (1991). The Effects of Drug Use During Pregnancy. P. Roth
(ritstj.), Alcohol And Drugs Are Women’s Issues, (bls.101-6) The
Scarecrow Press, Inc., Metuchen, N.J.
Hinderliter SA. og Zelenak JP. (1993). A simple method to identify alcohol
and other drug use in pregnant adults in a prenatal care setting.
Journal of Perinatology, 13(2):93-102.
Korkman M. Hilakivi-Clarke LA. Autti-Ramo I. Fellman V. Granstrom ML.
(1994). Cognitive impairments at two years of age after prenatal
alcohol exposure or perinatal asphyxia. Neuropediatrics 25(2): 101-5.
LaFlash S., Aronson RA. og Uttech S. (1993). Alcohol use during
pregnancy: implications for physicians. Wisconsin Medical Journal,
92(9):501-6.
Sondgrass SR. (1994). Cocaine babies: a result of multiple teratonenic
influences. Journal of Child Nourology, 9(3):227-33.
Ársskýrsla SÁÁ (1995).
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 3. tbl. 72. árg. 1996