Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1996, Blaðsíða 33
f
k
Doktorspróf
Guörúii Kristjánsdóttir
Hjúkrunarfræðingur varði doktorsritgerð
í heilbrigðisfræði við Norræna
heilbrigðisháskólann í
Gautaborg 10. júnf sl.
Ritgerðin lieitir
„Recurrent Pains - A
Public Health Concem
in School-Age
Children: an
Investigation of
Headache, Stomach
Pain and Rack Pain“. Ritgerðin byggist
ú sjö eiginda- og meginrannsóknum á
verkjaskilningi og úbreiðslu, ástæðum og
afleiðingum verkja meðal íslenskra
skólabarna á aldrinum 11-12 og 15-16
ára. Guðrún lauk BS-prófi í hjúkmnar-
fræði frá Háskóla íslands 1983 og M.Sc.
prófi í barna- og fjölskylduhjúkrun frá
Bostonháskóla 1986. Guðrún er dósent í
barnahjúkrunarfræði við námsbraut í
hjúkmnarfræði við Háskóla íslands.
Félag fslenskra hjúkmnarfræðinga óskar
þeim Guðrúnu og Sigríði til hamingju
með þennan áfanga.
Sigríður Halldórsdóttir
hjúkmnarfræðingur varði
doktorsritgerð (Dr. Med. Sci.) með
áherslu á umhyggju vfsindi (Caring
Sciences) við
Linköping
háskóla f
Svíþjóð 10.
maf sl.
Ritgerðin
heitir: „Caring
and Uncaring
Encounters in
Nursing and
Health Care -Developing a Theory“.
Ritgerðin byggist á sex rannsóknum
þar sem könnuð var m.a. upplifun
fólks af umhyggju og umhyggjuleysi
í samskiptum við heilbrigðisstarfs-
menn. Sigríður lauk BS-prófi í
hjúkmnarfræði frá Háskóla íslands
1978, uppeldis- og kennslufræði frá
félagsvísindadeild Háskóla íslands
1979, M.S.N. gráðu frá University of
British Columbia, Vancouver,
Kanada 1988. Sigríður erforstöðu-
maður heilbrigðisdeildar Háskólans
á Akureyri.
Fæturmr eru grunnur að vellíðan okkar!
ARA FITNESS heilsuskór stuðla
að heilbrigðu og óþreyttu baki
Stamur
innisóli
llstuðningur
sem hvílir
Tágrip sem
örvar blóórásina
Ekta korkblanda
(einangrar)
Microcellu sóli, sem dregur úr
þreytu og virkar dempandi.
Laut fyrir hæl
sem veitir stuóning
Loftbólstraður sóli
frá tábergi aó hæl
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
DOMUS MEDICA & KRINGLUNNI
Toppskórinn
1 1 VIÐINGÓLFSTORG
Póstsendum samdægurs!
FRETHR
Stofnun Hollvinasamtaka
Hóskóla íslands
Stofnuð hafa verið Hollvina-
samtök Háskóla íslands, sem eru
samtök fyrrverandi nemenda skólans
og annarra velunnara hans.
Meginmarkmið þessara samtaka er að
efla tengsl þeirra við Háskólann og
styðja hann í menntunar- og
rannsóknastörfum sfnum. Hollvinirfá
send ýmis rit sem gefin em út af
Háskólanum og einnig munu verða í
boði tónleikar og fyrirlestrar fyrir
hollvini, svo eitthvað sé nefnt.
Áætlað er að stofna hollvina-
félög einstakra deilda, skora eða
námsbrauta innan Hollvinasam-
takanna. Þannig gefst hollvinum
tækifæri til að starfa nánar í tengsl-
um við fræðasvið sitt og stuðla að
þróun þess. Það er von námsbrautar í
hjúkrunarfræði að hjúkmnarfræð-
ingar, yngri sem eldri, verði virkir
hollvinir og styðji starfsemi náms-
brautarinnar í áframhaldandi þióun
hjúkmnarmenntunar og eflingu
rannsókna á sviði umönnunar.
Skrifstofa Hollvinasamtakanna er í
Stúdentaheimilinu við Hringbraut,
sími: 551- 4374. Framkvæmdastjóri
samtakanna er Sigríður Stefánsdóttir.
Jóhanna Bernharðsdóttir lektor
Tif WHO
Villtorg Ingólfsdóttir
yfirhjúkmnarfræðingur hjá
Landlæknisembættinu hefur verið
ráðin til þriggja mánaða við
Evrópudeild heilbrigðismála-
stofnunarinnar (WHO)
í Kaupmannahöfn.
Vilborg mun þar starfa við hjúkrunar-
deildina.
Settur
ráðuneytisstjóri
Ragnhildur Huruldsdóttir
hjúkrunarfræðingur hefur verið settur
staðgengill ráðuneytisstjóra í
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu frá og með 22. maí til 31.
nóvember nk.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 3 . tbl. 72. árg. 1996
153
FRÆÐSLA