Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1996, Side 42
Ásta Möller, formaður Félags íslenskra lijúkrunarfræðinga
Um skipan heilsuverndarmála í Reykjavík
Nýverið lagði stjórn Heilsuvernda-
rstöðvar Reykjavíkur fram tillögur um
framtíðarhlutverk stofnunarinnar og voru
þær kynntar í fjölmiðlum á þeim tíma.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga ákvað að skipa nefnd til að skoða
tillögur stjómar Heilsuverndarstöðvar-
innar og að setja fram hugmyndir
félagsins um framtíðarskipan heilsu-
verndar í Reykjavík. í nefndinni áttu
sæti eftirtaldir stjórnarmenn: Ásta
Möller, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Hjördís Guðbjörns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri og
Jóhanna Rernharðsdóttir, lektor. Auk
þess sat í nefndinni Þómnn Ólafsdóttir,
hjúkmnarforstjóri, formaður fagdeildar
hjúkrunarforstjóra í heilsugæslu innan
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Félag íslenskra hjúkmnarfræðinga
leggur hér fram tillögur um framtíðar-
skipan heilsuvemdarmála í Reykjavík,
en þær tillögur taka jafnframt til sam-
ræmingar á heilsuverndarþjónustu um
allt land:
Tillögur Félags Cslenskra hjúkrunar-
frœðinga um framtíðarskipan heilsu-
verndar í Reykjavík.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
telur að breytingar á skipulagi heilsu-
verndarþjónustu í Reykjavík skuli miða
að því að auka samræmingu á starfsemi
heilsugæslustöðva, efla forvarnastarf og
skapa aðstæður til að þróa þekkingu sem
nýtist öllum skjólstæðingum heilsugæsl-
unnar með jafnræði og gæði í þjónustu í
huga.
í meginatriðum er Félag íslenskra
hjúkmnarfræðinga sammála tillögu
stjórnar HR að aðalþættir lögbundinnar
heilsugæsluþjónustu þ.e. heimahjúkrun,
skólaheilsugæsla, ungbamavernd og
mæðravemd eigi að flytjast til heilsu-
gæslustöðva. Þess verður þó að gæta að
jafnhliða slíkri ákvörðun verður að setja
á laggirnar stofnun sem taki m.a.
formlega við þvf óformlega hlutverki sem
HR hefur haft í krafti sérhæfingar m.a. á
sviði heimahjúkrunar, ungbarnaverndar,
mæðraverndar og skólaheilsugæslu.
Félag íslenskra hjúkrunarfrœðinga
leggur því til eftirfarandi:
1. Heilsuverndarmiðstöð/
Forvarnastofnun sem starfi á
landsvísu
Sérstök Heilsuverndarmiðstöð/
Forvarnastofnun verði sett á laggirnar,
sem starfi á landsvCsu, og taki yfir
eftirfarandi þœtti heilsugœslu og
forvarna:
• Hlutverki sem HR hefur haft
óformlega í ýmsum þáttum heilbrigðis-
þjónustu t.d. varðandi samræmingu á
þjónustu og ráðgjöf.
• Hlutverki ýmissa ráða og nefnda
á vegum hins opinbera sem hafa unnið
að ýmsum forvamaverkefnum , s.s.
heilsueflingu, slysavömum, manneldis-
málum, tannvernd, kynfræðslu og
smitsjúkdómavörnum, tóbaks- áfengis-
og fíkniefnavörnum og etv. forvörnum
vegna umferðarmála.
• Hlutverki sem landlæknis-
embættið hefur haft varðandi samræm-
ingu á framkvæmd einstakra þátta
heilsugæslu og forvama.
Með framangreindu fyrirkomulagi
er verkaskipting skýr milli hinnar nýju
stofnunar annars vegar og landlæknis-
embættisins hins vegar, þar sem stofn-
unin hefur með höndum samræmingu á
framkvæmd heilsuvemdarþjónustu, en
landlæknir sinnir eftirliti með heilsu-
verndarstarfi sem liann lögum samkvæmt
ber ábyrgð á. Skýr verkaskipting styrkir
eftirlitshlutverk landlæknis með
framkvæmd heilbrigðisþjónustu.
Stofhunin hefði eftirfarandi
hlutverki að gegna gagnvart
heilsugœslunni:
• Mótun og samræming á heilsu-
gæsluþjónustu og hafi t.d. ábyrgð á að
setja staðla um framkvæmd einstakra
þátta heilsugæslu (sbr. handbók
heilsugæslustöðva).
•Rannsóknir og þróun í
heilsugæslu.
• Utgáfustarfsemi fyrir heilsu-
gæsluna; t.d. útgáfu upplýsingarita fyrir
almenning sem og fyrir starfsfólk
heilsugæslunnar.
• Sérhæfð ráðgjafaþjónusta við
starfsfólk heilsugæslu.
• Ábyrgð á þjálfun og endur-
menntun starfsfólks í heilsugæslu ,
í samvinnu við
heilbrigðisstarfsfólk og
endurmenntunarstofnanir.
• Skipulagning á menntun
nemenda í heilbrigðisfræðum
innan heilsugæslunnar í samvinnu
við viðkomandi menntastofnanir.
• Þróun á námskeiðum og
fræðsluefni vegna hópstarfs innan
heilsugæslunnar, s.s. fyrir ungar
mæður, nýbakaða foreldra,
stuðningshópa vegna sorgar og
missis, þunglyndis eftir fæðingu
eða vegna sérstakra aðstæðna
barna og unglinga t.d. vegna
eineltis eða vimuefnaneyslu
o.s.frv.
• Skipulagning á fræðslu
fyrir sérstaka hópa, sem hafa
sértæk eða sjaldgæf vandamál sem
glímt er við utan sjúkrahúsa, s.s.
fyrir foreldra fatlaðra bama,
foreldra langveikra barna eða á
hinn bóginn fræðslu fyrir skjól-
stæðinga heimahjúkrunar sem
eiga við tiltekin heilbrigðis-
vandamál að glíma.
Hlutverk stofnunarinnar yrði
sambærilegt gagnvart öðru
forvamastarfi og framan er lýst t
gagnvart frumheilsugæslunni.
Mikilvægt er að beina forvama-
starfi í gegnum heilsugæsluna, þar
sem hún er í sá aðili sem hefur
mesta yfirsýn yfir heilbrigðisþarfir
almennings í landinu. Heilsu-
162
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 3. tbl. 72. árg. 19%