Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2007, Blaðsíða 26
Margrét Gísladóttir og Erla Kolbrún Svavarsdóttir.
Margretgisla@simnet.is
ÞRÓUN FJÖLSKYLDUMEÐFERÐAR FYRIR
UNGAR KONUR MEÐ ÁTRÖSKUN
Eitt til þrjú prósent kvenna eru álitin greinast
með átröskun. Hærri prósentur hafa sést eða að
allt að 10% kvenna hefðu einkenni átröskunar.
Tölur um fjölda einstaklinga með átröskun gefa
til kynna að margar fjölskyldur þurfi að takast
á við vanda einhvers í fjölskyldunni út af útliti
og þyngd en átröskun er yfirleitt greind hjá
fólki á aldrinum 15-22 ára (Eisler, Dare, Hodes,
Russell, Dodge og Le Grange, 2000).
Átröskun er langvinnur sjúkdómur og
það tekur yfirleitt nokkurn tíma að ná
sér. Átröskun hefur víðtæk heilsufarsleg
áhrif á þann sem fær sjúkdóminn og
einnig á aðstandendur en þekkt er að
þeir finni fyrir erfiðleikum í samskiptum
og áhrifum á allt fjölskyldulífið (Cottee-
Lane, Pistrang og Bryant-Waugh,
2004). Þjónusta fyrir aðstandendur í
heilbrigðiskerfinu á íslandi hefur ekki
verið nægjanleg þó henni hafi verið
sinnt að einhverju leyti og sama virðist
vera í öðrum löndum. Aðstandendur eru
álitnir í lykilstöðu að hjálpa sjúklingi með
átröskun (Uehara, Kawashima, Goto,
Tasaki, og Someya, 2001) og þeir leita
fyrr eftir upplýsingum og stuðningi en
sá sem hefur sjúkdóminn og brýnt er að
koma til móts við það.
Margrét Gísladóttir, geðhjúkrunar-
og fjölskyldufræðingur MS. Starfar
á göngudeild geðdeildar
Dr. Erla Kolbrún Svavarsdóttir,
prófessor við hjúkrunarfræðideild
Háskóla íslands og forstöðu-
maður fræðasviðsins fjölskyldu-
hjúkrun
24
Tlmarit hiúkrunarfræðinga - 4. tbl. 83. árg. 2007