Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 40

Fréttablaðið - 13.05.2017, Page 40
Sólveig Gísladóttir solveig@365.is Ásdís Snót Guðmundsdóttir, skóla- stjóri Bíldudalsskóla. „Fólki getur líka fækkað jafn hratt og því fjölgar, ef ein barnmörg fjölskylda flyst í burt fækkar um marga nemendur í skólanum.“ mynd/BíldudalSSkóli Þrjátíu og sjö krakkar sækja Bíldudalsskóla. Nemendur voru færri en tuttugu þegar fæst var. „Það hefur verið ævintýralegt að fylgjast með fólksfjölgun í sveitar- félaginu síðustu ár og auðvitað mjög ánægjulegt,“ segir Ásdís Snót Guðmundsdóttir, skóla- stjóri Bíldudalsskóla, en þar hefur fjöldi nemenda hátt í tvöfaldast á nokkrum árum. Krakkarnir voru hér fæst í skól- anum átján talsins og hafði þá farið fækkandi í nokkur ár. Upp úr árinu 2007 fór aðeins að lifna yfir málum en um það leyti var kalkþörunga- verksmiðjan reist í sveitarfélaginu og íbúum fjölgaði. Haustið 2015 voru þeir orðnir þrjátíu og fimm en þá hafði Arnarlax hafið starf- semi í Arnarfirði. Síðasta haust var fjöldi nemenda við skólann orðinn þrjátíu og sjö. Fólki getur líka fækkað jafn hratt og því fjölgar, ef ein barnmörg fjölskylda flyst í burt fækkar um marga nemendur í skólanum. En vonandi heldur áfram að fjölga, það er skemmtilegri þróun,“ segir Ásdís. Þá sé skólinn í nánu sam- starfi við leikskólann í bænum þar sem fjöldi barna sveiflast einnig til. „Leikskólakrakkarnir koma í hverri viku í skólann og ungling- arnir okkar eru í vali um að fara í leikskólann í útivist með krökk- unum. Þetta er mjög vinsælt val og hefur gengið frábærlega vel. Þetta eflir tengslin milli stofnana,“ segir hún. Bíldudalsskóli búi vel að menntuðu starfsfólki sem fagni þeim áskorunum sem fylgi fleiri nemendum. „Fjölgun og fjölbreytileika fylgja auðvitað nýjar áskoranir. Nem- endahóparnir eru stærri og flóran er fjölbreyttari. Hjá okkur er meiri- hluti starfsmanna fagmenntað fólk, ýmist fagmenntað eða í námi í kennslufræðum. Til okkar kom kennaranemi í haust, sem klárar B.Ed. næsta haust. Eiginmaður hennar fékk vinnu á svæðinu og þeim líkar svo vel að þau vilja setjast hér að. Ég hugsa að helstu vaxtarverkir þessarar þróunar séu húsnæðis- málin,“ segir Ásdís. það vanti leigu- húsnæði fyrir fjölskyldufólk. „Fólk leggur kannski síður í að byggja úti á landi með tilheyrandi kostnaði.“ Sjálf er Ásdís innfæddur Bíld- dælingur og hafði kennt í mörg ár við skólann áður en hún tók við skólastjórastöðunni síðasta haust. Um tíma hafði hún sjálf íhugað að flytja burt. „Við maðurinn minn fluttum eitt ár til Grundarfjarðar en komum til baka. Enda skildi fólk ekkert í okkur að vera að fara,“ segir hún sposk. Fjöldi nemenda hefur tvöfaldast Oddrún með Salbjörgu ósk atladóttur sem er á reiðnámskeiði hjá Fræðslu- nefnd fatlaðra í Herði. mynd/Eyþór Oddrún er menntaður reið-kennari frá Hólum og hefur í gegnum tíðina kennt krökkum með raskanir á borð við einhverfu og ADHD. „Um tíma starfaði ég sem stuðningsfulltrú í skóla og það kveikti endanlega í mér að fara í nám í þroskaþjálfun,“ segir Oddrún sem kunni afar vel við námið og samnemendur sína sem voru á öllum aldri. „Þá var mun meira af strákum í náminu en verið hafði sem var mjög skemmti- legt.“ Hún segist hafa lært afskaplega mikið. „Þegar ég byrjaði fattaði ég hvað ég vissi í raun lítið um rétt- indi fatlaðs fólks og heillaðist mest af því að geta orðið málsvari þeirra sem þurfa á því að halda.“ reiðnámskeið sem með- ferðarform Oddrún hefur unnið mikið með hestamannafélaginu sínu, Herði í Mosfellsbæ, sem heldur úti afar metnaðarfullu starfi fyrir fatlaða. „Fræðslunefnd fatlaðra var stofnuð árið 2010 en verkefni hennar er að þróa reiðnámskeið sem henta sem meðferðarform og frístund fyrir fatlaða einstaklinga,“ segir Odd- rún en námskeiðin njóta mikilla vinsælda. „Í dag eru námskeið sex sinnum í viku, fimm hestar eru í notkun fyrir námskeiðin og færri komast að en vilja. Mjög bland- aður hópur sækir námskeiðin og er mismunandi hversu mikið af aðstoðarfólki þarf hverju sinni, stundum þarf þrjá og stundum engan,“ útskýrir hún. Sýna aðra hegðun kringum dýr Þegar kom að því að velja efni í lokaritgerð kom fátt annað til greina hjá Oddrúnu en að nýta sína fyrri menntun, reynslu og áhuga á hestamennsku. Úr varð ritgerðin Aðstoð hesta í lífi ein- hverfra einstaklinga. „Mig langaði að kafa aðeins dýpra í hvernig hægt er að nota hestamennsku sem meðferðar- form. Á undanförnum árum hefur reiðþjálfun með fötluðum ein- staklingum aukist mikið hér á landi en taka skal fram að erlendis er reiðþjálfun ekki ný af nálinni og hafa verið gerðar ýmsar rann- sóknir því tengdar,“ segir Oddrún sem vildi skoða reiðþjálfun og ávinning hennar fyrir fatlaða ein- staklinga en hún ákvað að afmarka sig við einstaklinga sem greindir hafa verið með einhverfu. Hún skipti ritgerðinni upp í tvo hluta. Í öðrum skoðaði hún fræðilega greiningu á áhrifum reiðþjálfunar. „Heimildir eru reyndar af nokkuð skornum skammti en nokkuð hefur verið skrifað um meðferðarform með gæludýrum. Temple Grandin er til dæmis þekktur prófessor í háskóla í Colorado og er greind með ein- hverfu. Hún hefur skrifað margar bækur um það hvernig er að vera einhverfur einstaklingur og hefur einnig skrifað bækur um dýr. Hún telur að einhverfir hafi sérstök tengsl við dýr sem aðrir einstakl- ingar hafi ekki. Margar rannsóknir sýna til dæmis að einhverfir hegði sér á mismunandi hátt eftir því hvort þeir eigi í samskiptum við menn eða gæludýr. Þau geta sýnt dýrum hegðun sem þau geta ekki sýnt mannfólkinu. Í samneyti við gæludýrin getur ótti minnkað sem og óviðeigandi hegðun og kvíði. Færni einstaklinganna í félagslegri hegðun eykst og þau sýna gælu- dýrunum oft mikla alúð og ást,“ lýsir Oddrún. Hún bendir á að til séu meðferðir sem kallist meðferð með hjálp dýra og virkni með hjálp dýra. „Rannsóknir um virkni hafa sýnt að þetta meðferðarform sé árangursríkt fyrir einstaklinga með einhverfu. Í meðferðinni virðist einstaklingurinn fá stuðning frá dýrinu og sjálfsálit virðist aukast í kjölfar þess.“ Viðtöl við aðstandendur og notendur Í hinum hluta ritgerðar sinnar tók Oddrún viðtöl. „Ég tók viðtal við Berglindi Ingu Árnadóttur, eiganda Hestamenntar og Harðarfélaga, sem hefur mikla reynslu af því að vinna með fötluðu fólki á hestbaki. Þá tók ég viðtöl við tvo aðstand- endur og notendur sem hafa verið á reiðnámskeiðum og eru með ein hverfu greiningu.“ Henni fannst hún fá einna mest út úr því að tala við aðstandendur. „Þeir töluðu um hversu hestarnir hefðu haft góð áhrif á einstakling- inn, róað hann og aukið ein- beitingu. Þá töldu þeir námskeiðin einnig hafa góð áhrif á líkamlegu hliðina á borð við jafnvægi.“ Oddrún hefur fullan hug á að starfa áfram að framgangi reið- námskeiða fyrir fatlaða. Hún skilaði með ritgerðinni bæklingi með sínum hugmyndum að því hvernig best væri að byggja upp slík reiðnámskeið en þar telur hún mikilvægast að mynda teymi í kringum hvern einstakling sem ynni að markmiðasetningu í sam- ráði við reiðkennara. „Síðan er það ósk okkar í fræðslunefnd fatlaðra að breiða út boðskapinn og fá fleiri hesta- mannafélög í lið með okkur þannig að boðið yrði upp á námskeið sem þessi víðar en í Mosfellsbæ.“ Áhrif hesta á líf einhverfra Oddrún Ýr Sigurðardóttir útskrifast sem þroskaþjálfi frá Háskóla Íslands í vor. Í loka- ritgerð sinni skoðaði hún hvaða áhrif hest- ar geta haft á líf einhverfra einstaklinga. 6 kynninGarBlaÐ 1 3 . m a Í 2 0 1 7 l au G a r daG u r 1 3 -0 5 -2 0 1 7 0 3 :5 6 F B 1 2 8 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 9 -B 9 4 4 1 C D 9 -B 8 0 8 1 C D 9 -B 6 C C 1 C D 9 -B 5 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.